Page 1 of 1
Púðurskmatarar
Posted: 25 Apr 2014 18:06
by Aflabrestur
Sælir.
Er að velta fyrir mér nákvæmni á þessum gripum er sjálfur með gamlan Lymann sem er að skamta þetta +/- 0,2 grn í milligrófu púðri að jafnaði, en svo kemur alltaf einn og einn skamtur alveg úr kortinu jafn vel +/- 1 grn inn á milli þannig að ég treysti honum aldrei almennilega og vigta allar hleðslur.
Hvernig skamtara eru menn að nota og hver er nákvæmnin hjá ykkur.
Re: Púðurskmatarar
Posted: 25 Apr 2014 18:48
by Gisminn
Ég var með lyman og þekki þetta vel en ég fékk mér Hornady og hann virðist klippa mun betur allt frá því að það koma 5 akkurat og svo 0,2-04gr inn á milli er ég þá að miða út frá N-140 Hann er aðeins óstöðugari á 4064 en samt 2-4 eins og svo skekkja oftast yfir en tek eftir að þegar púðurmagn í skamtaranum fer niður fyrir jafnara plötuna þá minkar skamturinn
Re: Púðurskmatarar
Posted: 25 Apr 2014 19:38
by karlguðna
er ekki teskeiðin og góð vigt málið

ég myndi aldrei treysta þessu dóti án þess að vigta en það gæti kannski flýtt fyrir með því að skammta rétt undir hleðslunni og trikkla svo ,,, eða er ég bara skeftískur að óþörfu,,, hef ekki fengið mér svona fínerí ,,

Re: Púðurskmatarar
Posted: 25 Apr 2014 22:33
by Gisminn
Við vigtum alltaf en höfum undir eins og þú og triklum svo en nákvæmur skamtari flýtir mikið fyrir
Re: Púðurskmatarar
Posted: 25 Apr 2014 23:42
by Aflabrestur
Sælir.
Ég skammta aðeins undir, vigta og trikkla uppí endanlegt. Það er bara þegar hann skamtar yfir sem fer ferlega í pirrurnar á mér, ég er sko búinn með teskeiðar pakkan eftir rúm 600 skot í einum rikk þá aldrei þannig aftur

Re: Púðurskmatarar
Posted: 25 Apr 2014 23:55
by karlguðna
Re: Púðurskmatarar
Posted: 26 Apr 2014 16:16
by Gísli Snæ
Var með sjálfvirkann skammtar frá Smart Reloader og hann var engann veginn að virka þannig að ég skilaði honum.
Fékk mér þá RCBS 1500 vogina og stefndi alltaf á að fá mér skammtara eininguna - ekkert orðið af því ennþá.
Þess í stað er ég að nota gamlan RCBS skammtara, skammta aðeins undir og nota síðan Omega trikkler til að fara í rétta vikt. Er bara mjög sáttur við þetta combo og eins og ér hef ég engin áform um að fá mér RCBS skammtara eininguna.
Re: Púðurskmatarar
Posted: 26 Apr 2014 19:29
by Birgir stranda
Hef verð að nota lyman type 55 en hef alltaf þurft að skammta aðeins undir vikt og klárað með trickler.
Er nýbúinn að fá Redding módel 3 skammtara og er aðeins byrjaður að nota hann. Var að hlaða með honum 41 gr af 4064 og með micrometerinn á skammtaranum stilltan á 41.1 gr kemur hann með 41 gr stöðugt.
líst vel á hann og ef fer sem horfir hætti ég að not tricklerinn, sem var planið.
Rosalega er Sinalco gott.
Re: Púðurskmatarar
Posted: 27 Apr 2014 20:58
by KarlJ
Sæll Jón, ef þú ert búinn að fá nóg af skeiðinni þá skaltu fá þér rcbs 1500 rafmagnsskammtarann hann er ALLTAF réttur, sama hvort þú ert með grófkorna eða fínkorna púður.
Kv. Kalli