Page 1 of 1
Stálsandur.
Posted: 27 Apr 2014 09:18
by Aflabrestur
Sælir.
Veit einhver hvar maður getur fengið stálsand í minni einingum en 25kg.
Vantar bara svona ca. 1l eða 2-3kg
Re: Stálsandur.
Posted: 27 Apr 2014 22:01
by Veiðimeistarinn
Sæll Jón aflabrestur, takk fyrir síðast!
Ég mundi reyna að hafa samband við Stjörnublástur á Seyðisfirði, þar ræður ríkjum Sævar Jónsson ættaður af Reykjarströnd út þar, þú gætir kannast við kauða allavega af afspurn, hann hefur vafalaust verið ódæll í æsku og alræmdur um allar sveitir!
Hann hefur oft reynst mér haukur í horni með eitt og annað smálegt, frá honum hefi ég eigi gengið bónleiður til búðar, þá ég hef til hans leitað, sem þó alloft verið hefur.
Síminn hjá honum er 892-8132
Re: Stálsandur.
Posted: 28 Apr 2014 13:07
by valdur
Sigurður!
Mig langar bara að leiðrétta það að Sævar frændi minn sé ættaður af Reykjaströnd. Foreldrar hans búa að sönnu á Skaganum en hann er ættaður úr Hegranesi, frá Hvalnesi í Lóni og svo af Ströndum.
Enginn veit til þess að hann eða hans ætt hafi komið á Reykjaströnd nema svona rétt þegar fólkið átti leið hjá.
Re: Stálsandur.
Posted: 28 Apr 2014 16:02
by Veiðimeistarinn
Hvað er þetta maður.!.....það er ekki svo naugið með haglabyssu..!!!!!
Ég vissi að hann átti einu sinni heima í Hróarsdal, hans framættir var mér hins vegar ókunnugt um, en mitt gullfiskaminni nær svo stutt aftur að ég átti bágt með að fara út í þetta lengra aftur en út Reykjaströnd, enda maðurinn örugglega alræmdur um allan Skagafjörð
Samt held ég að það sé þess virði fyrir félaga Jón Aflabrest að bjalla á hann út af gullsandinum, þrátt fyrir allt þetta minnisleysis og vankunnáttu klúður

Re: Stálsandur.
Posted: 28 Apr 2014 16:37
by gylfisig
Er það sem mér sýnist, að Valdur sé loksins mættur hér.
Var ekki löngu kominn tími til....
Re: Stálsandur.
Posted: 28 Apr 2014 22:10
by uxinn
Aflabrestur wrote:Sælir.
Veit einhver hvar maður getur fengið stálsand í minni einingum en 25kg.
Vantar bara svona ca. 1l eða 2-3kg
Ef þú átt leið á Akureyri getur þú rent í sandblástur og málmhúðun ferð á lagerinn með fötu og Betlar sand hef fengið sand hjá þeim i svona litlu magni og manni er vel tekið þarna
Kv Arnar
Re: Stálsandur.
Posted: 29 Apr 2014 07:41
by Aflabrestur
Sælir piltar.
Takk sömuleiðis Siggi gamann að hitta menn í persónu, og velkominn Þorvaldur.
Þakka upplýsingarnar um sandinn og ættfræðina

En fór að lesa mér til í reglonum og vigta græjuna og það er ekki eins mikið borð fyrir báru til þingingar og ég hélt, og ekki leyfilegt að nota stálsand í restin hvorki að framan eða aftan.