Page 1 of 1
Hleðsla í 270 cal
Posted: 05 Jun 2014 10:45
by mjonsson
Vantar að vita hleðslu eða reinslusögur af 270 cal Hornady sst 130 gr og N160 púður.
Hornady bókin er með N165 Lámark 53gr og hámark 62gr
Re: Hleðsla í 270 cal
Posted: 05 Jun 2014 11:17
by Sigurður Páll
Sæll
Sierra 130 gr kúlurnar komu best út hjá mér í kringum 54 grain af N-160
kv Sigurður
Re: Hleðsla í 270 cal
Posted: 07 Jun 2014 23:32
by karlguðna
sælir .... ég hef prófað bæði nosler og hornady kúlur í þessari þyngd og alltaf hafa noslerinn komið betur út ,,, en aldrey var ég sáttur við grúbburnar sama hvaða púðurmagn ég notaði en svo seldi Siggi hjá hlað mér sierra mark kúlur 115 gr, og ég notaði sömu hleðslu og ég notaði á nosler 130 gr, 52 gr, 160vv. og viti menn kallinn sem er ekki nein alvöru skýtta setti tíu skot í röð í 12,34 mm,,, engin flyer og sjálfsálitið varð pínu meira á eftir

ég mæli með sierra kúlum í 270 ,,, ætla að prófa 110 gr ,, veiðikúlur næst því hlað átti ekki 130 gr, held að kúlutegund skifti jafn miklu máli og púðurmagn,,!!! en takktu allt sem ég segi með fyrirvara ,, er bara byrjandi í faginu .

Re: Hleðsla í 270 cal
Posted: 09 Jun 2014 11:12
by mjonsson
Ég hef verið að skjóta 110gr Sierra Pro-Hunter og hefu komið ágætlega út með 53,5 gr N160 en langar að prófa 130 gr sst kúluna frá Hornady með N160.