Page 1 of 1

Leupold hringir

Posted: 17 Jun 2014 21:40
by skepnan
Sælir netverjar allir.
Nú er svo málum háttað að mig vantar hringi, ekki á fingur heldur sjónaukahölduhringi :mrgreen: flott orð :D. En það munu vera 30mm hringir, sérlega vel vaxnir bæði upp og niður ( super high ), matt svarta helst, fyrir STD basa frá Leupold. Eða eins og framleiðandinn myndi orða það - Leupold STD rifle scope ring, 30mm, Super High, Matte Black og framleiðslunúmerið myndi vera 51033
Vonandi á einhver þetta hér á skerinu, þeir voru ekki til hjá Veiðihorninu né Vesturröst.

Kveðja Keli

Re: Leupold hringir

Posted: 22 Jun 2014 13:51
by Aflabrestur
Sælir.
Ef svo vill til að þú sleppir með "high" 49959 þá á ég svoleiðis fyrir mjög lítið.

Re: Leupold hringir

Posted: 22 Jun 2014 22:37
by skepnan
Sæll Jón, takk fyrir þetta. En þar sem framlinsan á sjónaukanum er 56, þá þarf ég super high samkvæmt ráðleggingum framleiðanda. Ég er búinn að panta svona hringi frá alríkjasambandinu í westri og nú er bara að sitja með hendur í skauti og bíða :lol: :lol: :lol:

Kveðja Keli