Skemmtilegt mót að vanda og vegleg verðlaun Zeiss fjarlægðarmælir.
Jóhann A. Kristjánsson (Vinur frú Sollu á facebook), sigraði með glæsibrag eins og í fyrra, þá fékk hann reyndar svona fjarlægðarmælir líka, svo nú getur hann mælt í tvö dýr í einu með sitthvorum sjónaukanum á báðum augum í einu...

Frá mínum bæjardyrum séð er ég nokkuð sáttur... Stemmdi á að ná í a.m.k. 180 stig en náði 179, sem er bæting um 14 frá því í fyrra. Þá tapaði ég reyndar 10 stigum þegar ég skaut 5 skotum á eina skífu og 3 á aðra...
Annars til hamingju Jóhann, Hjörtur og Eiríkur...