Page 1 of 1

Ó e riffli

Posted: 06 Sep 2014 15:19
by valdur
Frænda minn, skagfirskan, vantar riffil. 222-223-243 eða svo. Með opnum sigtum. Þarf ekki sjónauka þótt í lagi sé að svoleiðis megi setja á gripinn. Milliþungt eða þungt hlaup; létt hlaup kemur ekki til greina.
8916968

Re: Ó e riffli

Posted: 06 Sep 2014 17:45
by konnari
Ég stórefast um að þú finnir nokkurn timann riffil með þungu hlaupi sem er með opnum sigtum !

Re: Ó e riffli

Posted: 07 Sep 2014 11:38
by valdur
Jæja, frændi. Þá það, en öngvu að síður ekki með allra grennstu gerð. Ég mældi um daginn hlaup á mauser riffli sem var tæpir 16 mm. Það var of grannt fyrir vorn sameiginlegan frænda. Kannski 20 mm væru betri?

Re: Ó e riffli

Posted: 07 Sep 2014 13:36
by gylfisig
Þarna er Valdur lifandi kominn.
Var oft búinn að lesa pistla hans og svör á Hlaðvefnum "sáluga" og hafði alltaf gaman af. Og þar sem mér fannst hann alltaf vera vel pennafær, þá giskaði ég alltaf á, að hann væri á/frá Norðurlandi :D
En skemmst er frá að segja, að reyndar hef ég séð riffil af gerðinni Sako með opnum sigtum, sem var með umræddum hlaupasverleika, þ.e. 20 mm. Sá riffill mun ekki vera til sölu.
Mikið væri nú gaman ef Hræfinnur myndi nú birtast hérna líka, svona rétt eins og skrattinn frá Sauðalæk.

Re: Ó e riffli

Posted: 07 Sep 2014 13:42
by Aflabrestur
Sælir.
Hafið þið frændurnir spáð í Otterup Mauser rifflana sem Hlað var með? Gatasigti, þungt hlaup en að vísu bara til 6,5x55 en var hægt að finna ágæt eintök inn á milli.