Já einmitt mannvitsbrekkurnar mínar, þess vegna spurði ég, það er betra að vera heimskur á lífi og spurja en vera vitur spyrja ekki og dauður
Minn riffill 6,5-284 að vísu er með 8,5" snúningi og hann kemur vel út með 100 gr. Hornady A-Max kúlu og 60 gr. af Norma MRP, veit ekki hvort það kemst í 6,5x55 hylki og enn síður hvort það hæfir 8" snúningi.
En ég mundi prufa 100 gr. kúlur í hann til veiða, það hefur komið ágætlega út í sumum 6,5x55 það ég veit.
Ég mundi líka athuga með Hornady kúlur í Ellingsen, áður en ég færi á eitthert búðar ráp!
Svo er það líka spurning um throdið í honum, sumir 6,5x55 eru með langt throd og þá henta stuttar kúlur afleitlega, það veit ég af eigin raun.
Minn riffill er til dæmis með mjög stutt throd og erfitt að koma mjög löngum kúlum í hann en það var með ráðum gert, þar sem alltaf var gert ráð fyrir að skjóta bara léttum kúlum úr honum.......