Page 1 of 3
243-270 eða 308 ?
Posted: 19 Jan 2015 16:07
by grimurl
Sælir félagar.
Nú er ég nýr í riffilsportinu og vantar ráð frá ykkur varðandi val á caliber til veiða á hreindýrum.
Ég er spenntur fyrir Browning X-Bolt sem Ellingsen er með á útsölu núna. Þeir hafa þennan bara í þessum 3 caliberum 243-270 og 308.
Hvað mæla menn með af þessu?
Kveðjur
Grímur L.
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 19 Jan 2015 16:19
by Gisminn
Eingöngu hreindýr þá tæki ég 270 af þessu en þetta eru allt góð cal þegar menn hafa æft sig og þekkja sýna byssu
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 19 Jan 2015 16:39
by gkristjansson
Ef þú hefur einhver plön, hins vegar, að fara á veiðar erlendis síðar þá myndi ég mæla með .308 (nú fær Siggi slag.....)
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 19 Jan 2015 16:44
by skepnan
Sæll Grímur, ég er með 270 og er mjög sáttur með það.
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 19 Jan 2015 17:06
by TotiOla
Ef maður dregur saman þá umræðu sem maður hefur fylgst með síðustu árin þá myndi ég setja þetta fram svona. Kostir og gallar í mjög grófum dráttum. Endilega leiðréttið ef eitthvað er "way off".
.243
Hratt, flatt og nokkuð nákvæmt, en hefur reynst einhverjum erfitt að ná nákvæmni í +100 gr. kúlur fyrir hreindýr.
.270
Hratt, flatt og þokkalega nákvæmt. Lemur svolítið (alveg á við .308) en alls ekkert óyfirstíganlegt. Frekar vinsælt sem veiði-cal.
.308
Yfirleitt mjög nákvæmt. Mikið kúluúrval. Hægt að hlaða nokkuð hratt og flatt ef menn vilja (með "léttari" kúlum), en annars nokkuð mikið fall sem þarf að læra á ef skjóta á dýr á lengri færum.
Ég tæki .308 af þessum sem eru í boði þar sem að mér finnst nákvæmni skipta meira máli en hraði.
Gangi þér vel með valið
P.s. Sjálfur valdi ég 6.5x55SE fram yfir önnur cal. sem voru í boði þegar ég keypti (vegna endingar, kúluúrvals, flugstuðuls og nákvæmni) og æfi mig til þess að læra á fallið.
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 19 Jan 2015 17:54
by Jenni Jóns
Ég er að sjálfsögðu snar hlutdrægur
243. Þú verður að passa twistið ef þú ert að hugsa um hreindýr annars ræður hann ekki við löglegu kúluna.
270. þekki það ekkert held að menn séu mikið að skjóta 130 gr kúlu á 3100 til 3200 fps svolítið stór baukur og hugsanlegt hlaupslit.
308. ég á riffil í þessu cal sem ég er mjög ánægur með, 125 gr Nosler BT stendur öðrum ekkert að baki út á 250 til 300 metra.
ég er að skjóta henni á 3200 fps.
þetta cal er frekar ódýrt á fóðrum með góða hlaupendingu, auðvelt að fá það til að skjóta flestum kúlum en flugstuðull á léttu kúlunum er frekar slakur.
ég hef skotið 185 gr Berger með fínum árangri á 800 metrum. einnig eru 155 gr Lapua Scenar magnaðar.
af þessum þremur myndi ég taka 308
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 19 Jan 2015 20:06
by iceboy
Ég á x- bolt i 270 og er mjög ánægður með hann. Mér finnst þetta alveg ágætis cal
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 19 Jan 2015 20:57
by ísmaðurinn
Sæll X-Bolt 270 uppseldur síðasti seldur í dag!!
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 19 Jan 2015 23:21
by gylfisig
Þið eruð meiri þokkapiltarnir.
Búið að gefa út risastóran hreindýrakvóta, og svo látiði Sigga fá slag.
En ef ég má segja mitt; ef einungis á að veiða hreindýr, þá myndi eg nú liklega velja 270 win.
Það er rómað veiðikaliber víða um heim. Flatt til þess að gera, og afar öflugt.
Ef hins vegar á að eltast við nákvæmni, þá er svarið 308.
Lærðu á það, og ekkert hreindýr er óhult innan 500 mtr.
Einhverjir hérlendis geta meira að segja skotið kókflösku á 800 metrum með 308. Velti því samt fyrir mér hvort það var kók i gleri, eða 2ja litra
243 er ágætt lika, en sennilega tæki ég það síst af þessum þremur, til hreindýraveiða.
Mér finnst það skemmtilegast með 70-80 grs kúlum. Þá er maður kominn með góðan riffil til vargskotfimi. ´Bæði nákvæmt og flatt.
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 20 Jan 2015 00:00
by jon_m
Sæll
Ég er sammála því sem fram hefur komið og sammála Gylfa með að ef hreindýr er það eina sem þú ætlar að skjóta með rifflinu þá tæki ég hiklaust .270. Það eru alltaf fleiri og fleiri sem mæta með þetta caliber til veiða og gengur í langflestum tilfellum vel að skjóta, jafnvel þó færið sé langt. Hinum tveimur treysti ég ekki jafnvel á löngu færunum, en þar er reyndar yfirleitt vandamálið að skyttan þekkir ekki kúluferilinn nógu vel.
Ef þú vill hafa möguleika á að skjóta pappír þá tæki ég .308 frekar, en ef þú ætlar að nota riffilinn í aðra veiði en hreindýr þá tæki ég persónulega .243 frekar, (eða 25-06 eða .260).
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 20 Jan 2015 01:00
by BrynjarM
Sæll
Ég er nú engin sérfræðingur í þessu en á riffla í bæði 308 og 270 Varð að fá mér annað en 308 til að mega veiða áfram í Jökuldalnum

243 hef ég aldrei átt og langar ekki í. Sem veiðirifflar skila þeir báðir sínu. Veruleikinn er hins vegar sá að þú munt skjóta allavega tugi ef ekki hundruði skota á pappa fyrir hvert eitt skot sem þú skýtur á hreindýr. Það er umtalsvert meira bakslag í 270 heldur en í 308 en ekkert til að hafa áhyggjur af. Yfirleitt mun meira úrval af kúlum, hylkjum og skotum í 308 og sökum minna púðurmagns eitthvað ódýrari í rekstri. Góðir kostir báðir en 308 er skemmtilegra í pappaskotfimi.
Ég er ekki áhugamaður um hraðamælingar eða ferla og dugar mér að vita hvar þeir setja. Þar sem ég fer yfirleitt ekki á lengri færi en 300 metra er munurinn ekki stórkostlegur.
Hef eitthvað skotið úr X-bolt í minna kalíberi og þótt það hið ágætasta verkfæri.
En góða skemmtun, þetta verður gaman sama hvað þú tekur.
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 20 Jan 2015 12:03
by Veiðimeistarinn
Grímur!
Einföld spurning.....einfalt svar
270....pungtur
Ef 270 er uppselt í Browning X-Bolt hjá Ellingsen núna, skaltu fá þér einhverja aðra sort í Ellingsen sem er til í nothæfu hreindýraveiðiikaliberi

Já, og spíking of dewell....allir alvöru hreindýraveiðimenn versla í Ellingsen

Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 20 Jan 2015 12:20
by grimurl
Sælir
Browning 270 er uppseldur í Ellingsen.
Hvað segja menn um Sauer 101 í 6.5x55?
Hann er til bæði með plastskeftum og viðarskeftum en spýtan er um 37 þús dýrari.
Er plastið ekki nógu gott? Kemur það niður á nákvæmni?
Ég hef notað haglabyssur í mörg ár með plastskeftum og líkar ekki síður við það en tréskeftin.
Grímur L.
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 20 Jan 2015 12:24
by Veiðimeistarinn
Sauer 101 í 6,5x55 hentar ágætlega til hreindýraveiða
Það er alveg sama hvort Sauer er í plasti eða spítu....Sauer er alltaf Sauer

Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 20 Jan 2015 12:55
by Jenni Jóns
Ég sé á síðunni hjá Hlað að þeir eiga bæði til cal 25-06 og cal 270
Spurning um að rölta við hjá þeim og ath hvað þeir segja?
Kúluferillinn á 6.5x55 er ekkert ósvipaður og cal 308
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 20 Jan 2015 13:15
by konnari
Sauer 101 í 6.5x55 er topp riffill í hvað sem er !
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 20 Jan 2015 13:16
by grimurl
Hlað á Sauer 101 í 6.5x55 með spýtu og 243 í plasti, ekki fleiri útgáfur var mér tjáð í síma.
Þeir eru með sama verð á tré og plasti, 211þús.
Eru gæðin í Sauer 101 það mikið betri en í Browning X bolt að það réttlæti um 70-75% hærra verði?
Grímur
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 20 Jan 2015 13:18
by konnari
Sauer er bara allt önnur gæði en Browning ! Ekki spurning að fá sér Sauer
Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 20 Jan 2015 13:44
by Jenni Jóns
grimurl wrote:Hlað á Sauer 101 í 6.5x55
Þú getur svo ábyggilega fengið hann rýmaðan í 6.5x284 og farið með Sigga á hreindýr

Re: 243-270 eða 308 ?
Posted: 20 Jan 2015 15:45
by Veiðimeistarinn