Page 1 of 1
Upplýsingar varðandi Skotfélag Kópavogs óskast
Posted: 28 Jan 2015 10:18
by TotiOla
Daginn
Getur einhver upplýst mig um aðstöðu og opnunartíma/æfingar hjá Skotfélagi Kópavogs?
Langar að komast inn og stilla/prófa sjónauka á 22 lr.
Re: Upplýsingar varðandi Skotfélag Kópavogs óskast
Posted: 28 Jan 2015 10:28
by gni
Re: Upplýsingar varðandi Skotfélag Kópavogs óskast
Posted: 28 Jan 2015 10:35
by TotiOla
Nei. Netið hérna í fyrirtækinu hleypir mér ekki þarna inn vegna vírussýkingar á síðunni... Þannig að ég mæli með því að vera ekki að opna hana.
"VIRUS
The site you have tried to access appears to have a virus within the content and has therefore been blocked.
Content contained "Troj/SEO-A" virus. Details: Virus: Troj/SEO-A; File: No file name available; Sub File: \Gzip; Vendor: Sophos, Plc.; Engine error code: 0x20040203; Engine version: 3.58.3; Pattern version: 5.10.8420634.2611186425; Pattern date: 2015/01/27 21:48:00."
Re: Upplýsingar varðandi Skotfélag Kópavogs óskast
Posted: 28 Jan 2015 12:13
by bjarniv
Ætli það sé ekki best á milli klukkan 20:00 og 22:00 á miðvikudögum. Þá er Silhouette, en líka kannski hægt aðra daga.
Re: Upplýsingar varðandi Skotfélag Kópavogs óskast
Posted: 28 Jan 2015 12:45
by Björn R.
Sælir, ég komst inná síðuna þeirra án vandræða. Fann þessi tvö pdf skjöl. Vonandi hjálpa þau eitthvað
Kv
Björn
Re: Upplýsingar varðandi Skotfélag Kópavogs óskast
Posted: 28 Jan 2015 13:09
by TotiOla
Kærar þakkir fyrir þetta Björn.
Mér sýnist föstudagurinn vera vænlegur kostur til þess að skjót saman riffil og sjónauka.
Re: Upplýsingar varðandi Skotfélag Kópavogs óskast
Posted: 28 Jan 2015 13:15
by Stebbi Sniper
Sæll Þórarinn
Það er ekki líklegt að það verði neinn upp í Digranesi á föstudagskvöldið, þar sem við erum að keppa í Egilshöllinni á laugardaginn og þá fara flestir þangað að æfa á föstudagskvöldið fyrir mótið.
Þetta með vírusinn virðist vera endalaust vesen! Alveg óþolandi pakk alltaf að skrattast í síðunni hjá okkur. Ég fæ þó engar meldingar sjálfur þegar ég fer inn á hana, en ég er nýbúinn að restora henni.
Þarf að skoða þetta mál betur.
Re: Upplýsingar varðandi Skotfélag Kópavogs óskast
Posted: 28 Jan 2015 14:00
by TotiOla
Blessaður og takk fyrir síðast.
Hvenær væri þá best fyrir mig að mæta í Kópavoginn?
Ég sá einmitt að það var mót uppi í Egilshöll á lau. og taldi mig því ekki eiga möguleika á að fara þangað fyrr en í fyrsta lagi á mánudag, þar sem þeir auglýsa lokun á föstudaginn (og ekki ætla ég að fara að vera fyrir á æfingu keppenda

).
Code: Select all
Skv. heimasíðu SR
Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud.
Almenn. Almenn Skamm Byrjendur Opið
19-21 19-21 19-21 19-21 Lokað 10-12 Lokað
Re: Upplýsingar varðandi Skotfélag Kópavogs óskast
Posted: 28 Jan 2015 14:32
by Stebbi Sniper
Í kvöld, að vísu er verið að skjóta á 40m í kvöld, en þá stilliru hann bara rétt yfir á 40, þá er hann réttur á 50m...
Re: Upplýsingar varðandi Skotfélag Kópavogs óskast
Posted: 28 Jan 2015 14:40
by Gísli Snæ
Ertu orðin svona mikil kuldaskræfa Tóti - búinn að færa allt skytterí inn í hús????
Re: Upplýsingar varðandi Skotfélag Kópavogs óskast
Posted: 28 Jan 2015 14:53
by TotiOla
Góður Gísli

Nei, það er nú ekki svo slæmt. Langar bara að sjá hvað þessi nýji 22 lr. getur í logni áður en ég fer út og sé hvað ÉG get í "logni"
Stefán... Er það ekkert vesen/óvinsælt að menn séu að stilla inn og gera æfingar á meðan aðrir eru að æfa Silhouette?
Re: Upplýsingar varðandi Skotfélag Kópavogs óskast
Posted: 28 Jan 2015 15:05
by Stebbi Sniper
Nei, það hef ég ekki trú á! Það er aldrei vesen á Jóni Pé og Pálma!
Re: Upplýsingar varðandi Skotfélag Kópavogs óskast
Posted: 28 Jan 2015 15:15
by TotiOla
Ok. Stefni þá á að mæta í kvöld.
Takk fyrir upplýsingarnar.