Útdráttur hreindýraleyfa á ESB svæðinu?
Posted: 08 Mar 2012 13:53
Ég spurði félaga minn, sem þekkir ágætlega inn á evrópurétt, hvaða áhrif aðild að ESB hefði á veiðar hér heima. Miðað við þær upplýsingar sem ég fekk frá honum og svo því sem ég hef lesið um þetta þá verður hægt að veiða áfram það sem veitt er út í Evrópu allavega, eins og t.d. hreindýr.
Það sem gerir málin flóknari er að innan ESB er gerð krafa um jafnræðið. Þ.e.a.s. að það má ekki mismuna fólki eftir þjóðerni né öðru innan ESB. Þetta myndi gilda jafnt um veiðar eins og annað.
Hvaða áhrif myndi það hafa á útdrátt hreindýraleyfa ef allt ESB svæðið getur sótt um, sem yrði nánast öruggt?
Hitt er að ekki væri hægt að meina ESB búum að veiða í almenningi, en í dag er aðeins íslenskum ríkisborgurum heimilt að veiða í almenningi. Þetta gæti haft áhrif á rjúpna og heiðagæsastofna líka eða hvað?
Ef þetta er svona, þá er hætta á því að þetta muni draga úr eða koma í veg fyrir möguleika Íslendinga til veiða á okkar landi, þar sem veiðistofnarnir myndu sennilega bera mikið meiri veiði.
Hvaða áhrif myndi þetta fyrirkomulag hafa á verðið til veiða, eða möguleika Íslendinga til veiðana?
Ef ég er að fara með rangt mál þá má leiðrétta það.