Page 1 of 1
ÚTDRÁTTUR HREINDÝRA Á MORGUN 21/2
Posted: 20 Feb 2015 11:34
by Gisminn
Útdráttur hreindýraveiðileyfa fer fram á morgun laugardaginn 21.febrúar kl. 14.00 í húsakynnum Menntaskólans á Egilsstöðum sem er opið öllum.
Útdrátturinn verður sýndur í beinni útsendingu á vefsíðu Umhverfisstofnunar ust.is. Þeir umsækjendur sem fá dýr þurfa að greiða veiðileyfið að fullu eigi síðar en 15.apríl hyggist þeir taka leyfið.
Re: ÚTDRÁTTUR HREINDÝRA Á MORGUN 21/2
Posted: 20 Feb 2015 22:33
by grimurl
Já þetta verður bara spennandi!
Ég og félagi minn ætlum að hittast og horfa á þetta og sjá hvað gerist.
Verðum við dregnir út?
Ef ekki hvar erum við á biðlistanum?
Gæti verið að við tækjum tappa úr flösku ef "drátturinn" verður góður.
Til hamingju með daginn veiðimenn!
Kveðja Grímur
Re: ÚTDRÁTTUR HREINDÝRA Á MORGUN 21/2
Posted: 20 Feb 2015 23:01
by Sveinbjörn
Ég verð að passa fyrir mína konu og því ekki útilokað að hafi rækifærir til að fylgjast með.
Tel reyndar ágætar líkur á því að ég fari í túr því að veiðifélagi minn sækir líka um og fái hann en ég ekki fer ég samt.
Helst viljum við fá báðir en hitt verður líka gaman ef svo fer
Re: ÚTDRÁTTUR HREINDÝRA Á MORGUN 21/2
Posted: 20 Feb 2015 23:37
by Gisminn
Sæll Grímur ef þú verður ekki dregin út og ert ekki sýndur á bið færð þú tölvupóst um hvar þú ert á biðlistanum.
Og Svenni ég og Keli gerðum þetta einmitt svona að sækja um og sá sem fengi dýr fengi að skjóta en hinn kæmi með og tæki þátt í kostnaði.
Við fengum báðir dýr og fórum báðir og skutum dýr sem reyndar rataði í nýútgefna bók

Re: ÚTDRÁTTUR HREINDÝRA Á MORGUN 21/2
Posted: 21 Feb 2015 10:31
by JAK
Sæll Grímur.
Það er ekki óalgengt að veiðifélagar myndi hóp um hreindýraveiðar þar sem menn fara saman, hjálpast að og skifti kostnaði og afrakstri á milli sín.
Heilagur Húbertus er einn slíkur hópur

Re: ÚTDRÁTTUR HREINDÝRA Á MORGUN 21/2
Posted: 21 Feb 2015 15:36
by Haglari
well... nú getur maður farið að anda léttar þegar þetta er loksins búið.
Ég lenti númer 40 á biðlista eftir tarf á svæði 7... hversu mikklar líkur eru á dýri svona neðarlega á lista
Ég þóttist nú sjá nokkurn nafn þarna sem maður kannast við hérna á spjallinu! Ég vil óska þeim til hamingju sem fengu úthlutað

Re: ÚTDRÁTTUR HREINDÝRA Á MORGUN 21/2
Posted: 21 Feb 2015 15:44
by Einar P
Þá er maður kominn með tarf á svæði 7 og er klár með skotprófið, best að fara að bóka gæd. Geta menn mælt með einhverjum góðum fyrir svæði 7, ætla að mæta á veiðar 15 eða 16 júlí .
Re: ÚTDRÁTTUR HREINDÝRA Á MORGUN 21/2
Posted: 21 Feb 2015 16:12
by grimurl
Ég endaði nr 9 á biðlista og félagar mínir 2 lentu í 18 og 31 sæti á biðlista á svæði 1
Vonandi fæ ég þó dýr svo við getum þá allir farið saman.
En til hamingju þeir sem fengu dýr!
Kv. Grímur
Re: ÚTDRÁTTUR HREINDÝRA Á MORGUN 21/2
Posted: 21 Feb 2015 17:22
by jon_m
Grímur þú getur farið að hlaða strax og gera ráð fyrir þessum kostnaði.
Þið fáið mjög líklega allir leyfi ef þið viljið, bara spurning hvenær röðin kemur að ykkur.
Sjálfur er ég no 9 á bið eftir tarfi á 6 og svo 18 á fimmskiptareglu sem fara fram fyrir ef þeir fengu ekki leyfi.
Re: ÚTDRÁTTUR HREINDÝRA Á MORGUN 21/2
Posted: 21 Feb 2015 18:50
by Gísli Snæ
Grímur - byrja að yfirfara riffilinn og bera á gönguskóna. Þið eruð pottþéttir.