Page 1 of 1

Vantar Hodgdon Lil' Gun

Posted: 21 Feb 2015 11:22
by Aflabrestur
Sælir.
Fyrirsögnin segir allt býr einhver svo vel að eiga svona púður, og vilja selja.
baikal(a)orginalinn.is
8691759

Re: Vantar Hodgdon Lil' Gun

Posted: 21 Feb 2015 13:10
by gylfisig
Sæll . Er þetta ætlað i .22 Hornet?

Re: Vantar Hodgdon Lil' Gun

Posted: 22 Feb 2015 11:38
by Aflabrestur
Sælir.
Jamm er með Brno Fox í .22 Hornet og langaði til að prufa þetta fyrir 40 grn kúlur hef verið með 45 grn og N110 sem hefur svo sem virkað fínt, ef ég geri mitt þá er hann að setja 5 skot í innann við 2cm á 100m og gæsirnar ekkert kvartað bara dáið út á 150m. :twisted:

Re: Vantar Hodgdon Lil' Gun

Posted: 22 Feb 2015 12:33
by gylfisig
Ég datt niður á mjög góða hleðslu, einmitt i Brno fox. Hún var 11,2 grs N 120. Kúla 45 grs Sierra Blitz Moly og primerinn REm 7 1/2 Bench rest. Ath Moly kúla og bench rest primer.
Þessi hleðsla skaut mjög vel, og það voru ekki þrýstimerki á hylkinu þó svo þessi hleðsla sé yfir mörkum.

Re: Vantar Hodgdon Lil' Gun

Posted: 22 Feb 2015 22:26
by Aflabrestur
Sæll Gylfi.
Varstu að moly húða þetta sjálfur eða var/er þetta til yfir borðið hér heima?
Hvernig er það þarf ekki einhverjar serimoniur við þrif þegar verið er að nota moly? eitt hvað er mig að rámi í umræður um að það væri ekki gott að nota húðað/óhúðað á víxl?
Og varstu ekki farinn að þjappa rúmun 11 grn af 120 all duglega mér hefur fundist hylkið vera nærri fullt með 10+ grn af 110