Page 1 of 1

Skotpróf Búinn.

Posted: 01 Mar 2015 04:37
by Sveinbjörn
Eftir upphitunaræfingu í kulda og trekki spurði dómarinn hvort að við ætluðum að skjóta ?
Ég hafði hringt í háverðugan dómara á leið minni í Hafnarheiði og beðið hann um að kippa með sér dómarahatti og skotskífum.

skotpróf var framlvæmt í öllum þeim besta fatnaði sem fæst í Ellingsen. Ullarnærförum næst sér og dúnjakki þar yfir ásamt brókum frá Deerhunter.
Svo var farið í gæsagallann yfir allt og prófið tekið. Mér var bara nokkup heitt þegar gengið var í myrkrinu til að skoða árangur.

Feginn að hafa þetta frá og vill nú fá gíróseðil og borga og brosa :D

Re: Skotpróf Búinn.

Posted: 01 Mar 2015 09:21
by Gisminn
Til lukku með þennan áfanga :-)