Page 1 of 1

T.S. Bold Gikkur fyrir M98-ráðstafað

Posted: 06 Mar 2015 22:12
by petrolhead
Sælir félagar.
Þannig er mál með vexti að mig vantaði gikk í Mauser 98 lás svo ég loggaði mig inn síðuna hjá Boyds og pantaði :geek:
Nú en þar sem ég kann mér ekki alltaf hóf :oops: þá ákvað ég að taka 2 stk....svona úr því að ég var að þessu á annað borð ;) svo ef einhver hefur áhuga á Bold Premium 98 gikk þá væri snjallt af viðkomandi að hafa samband við mig á netfanginu hér að neðan.
Er ný búinn að panta svo það má búast við 2-3 vikum í að þetta komi.
Tek fram að ég læt gikkinn á kostnaðarverði.

MBK
Gæi

Re: T.S. Bold Gikkur fyrir M98

Posted: 07 Mar 2015 08:56
by Veiðimeistarinn
Sæll Garðar ogtakk fyrir síðast.
Hvað er kostnaðarverðið á honum......ja....svona cirka - a bout?

Re: T.S. Bold Gikkur fyrir M98

Posted: 07 Mar 2015 09:24
by petrolhead
Sæll Siggi, og takk sömuleiðis.

Ég tók tvo svona í fyrra og þeir enduðu í rúmum 11 þús stk, dollarinn er búinn að hækka svo ég mundi giska á að þeir verði 1500 kallinum dýrari núna.

MBK
Gæi

Re: T.S. Bold Gikkur fyrir M98-ráðstafað

Posted: 07 Mar 2015 10:37
by petrolhead
Þá er gikkurinn genginn út.

Ef einhverjir fleiri hafa áhuga á að fá svona gikk þá hefur það reynst mér vel að versla hjá Boyd's og ef einhverjar spurningar vakna þá er alltaf velkomið að hafa samband.

MBK
Gæi