Page 1 of 1

6x47Lapua?

Posted: 08 Apr 2015 19:58
by Sveinbjörn V
Er einhver snillingur hér með góðar hugmyndir til að hálsþrengja 6,5x47Lapua hylki niður í 6x47Lapua?

Re: 6x47Lapua?

Posted: 08 Apr 2015 20:11
by Spíri
Sæll, hef reyndar ekki þrengt 6,5x47 í 6x47 en ég hef þrengt 6,5x284 niður í 6mm284. Einfaldlega smyr vel og nota bara neck dieann, og passar það bara þannig í riffilinn minn. Hef ekki þurft að fullþrengja fyrr en við aðra-þriðju hleðslu. Bara að passa að smyrja vel en þess skal getið að mér finnst lapua hylkin eru best af þeim sem ég hef prófað.

Re: 6x47Lapua?

Posted: 08 Apr 2015 21:41
by Aflabrestur
Sælir.
Sama og að ofan nema úr 7x57 í 6.5x57 vel smurt og notaði fullsise þar sem ég hef ekki neck í þetta cal.

Re: 6x47Lapua?

Posted: 08 Apr 2015 22:16
by Sveinbjörn V
Takk fyrir þetta strákar.
Ég hélt að ég þyrfti að gera þetta í tveimur skrefum kannski, en gott ef að svo er ekki.

En nú er td. Wilson neck dieinn minn fyrir .243win þannig gerður að hann fer ekki alla leið að öxlunum.
Ég þarf örugglega neck diea sem fer alla leið til að byrja með þó ég noti kannski Wilson td. í framhaldinu, eða smíða neck diea fyrir bushingu sjálfur jafnvel.

Ég þarf kannski alltaf að komst í fullsize diea í þetta verkefni..

Re: 6x47Lapua?

Posted: 09 Apr 2015 00:13
by grimurl
Alltaf gaman að lesa tæknimál á "íslensku" :shock:

Re: 6x47Lapua?

Posted: 09 Apr 2015 09:52
by E.Har
Þú ert bara að þrengja hálsinn um 0,5 mm þarft ekki að gera þettatveim þrepum. Þetta er lítið mál.
´Þú ert ekki að blása út axlir eða neitt slíkt.

Re: 6x47Lapua?

Posted: 11 Apr 2015 01:01
by Sveinbjörn V
Já Grímur ég er alveg sammála þér :D
Ég var mikið að hugsa hvernig ég ætti að koma orðum að þessu.
Var alltaf búinn að þýða orðin og skrifa,
en strokaði svo út aftur og notaði ljótu hefðirnar á orðin svo fleirri mundu skilja þetta rugl :lol:

En þráðurinn hefur sennilega skilað sínu fyrir bæði mig og annan ágætan félaga okkar sem er í sambærilegum verkefnum..

Ég hélt samt kannski að ég fengi einhverjar háþróaðar ráðleggingar með þetta frá nákvæmnis mönnunum í bekkja-legu deildinni góðu. :?
Þeir liggja samt líklega í dvala fram í maí :)