Page 1 of 1
6mm284
Posted: 19 Mar 2012 12:27
by Spíri
Hlakka mikið til að geta farið að prufa nýja gripinn, en þetta er rem 700cal 6mm284 og nightforce nxs!
Re: 6mm284
Posted: 19 Mar 2012 12:37
by maggragg
Til lukku með nýja gripinn! Spennandi verkfæri

Re: 6mm284
Posted: 20 Mar 2012 12:47
by Pálmi
Þetta er snilldar kaliber,70 gr kúla á 4000 fps.
kv Pálmi
Re: 6mm284
Posted: 20 Mar 2012 20:11
by Veiðimeistarinn
Til hamingju með þennann riffil Þórður, þetta er fallegur gripur.
Þekki þetta caliber, það er fanta gott sérstaklega fyrir léttari 6 mm kúlurnar allt niður í 58 gr. berger en ég veit til þess að þegar reynt var að skjóta 100 gr. kúlum úr svona caliberi fylltist hlaupið af kopar og það þurfti að leggja það í sýru til að ná honum úr.

Re: 6mm284
Posted: 22 Mar 2012 19:21
by Spíri
Nú er búið að prófa gripinn, og stóðust sjónauki og riffill fyllilega undir væntingum en myndir af árangri verður að bíða betri tíma

Re: 6mm284
Posted: 22 Mar 2012 20:36
by konnari
Þórður! Hvaða stækkun er á nightforce sjónaukanum þínum ?
Re: 6mm284
Posted: 22 Mar 2012 20:38
by Spíri
Stækkunin er 5,5-22 og linsan 56m/m
Re: 6mm284
Posted: 22 Mar 2012 20:42
by konnari
Þetta lookar bara helv. vel hjá þér þetta sett !
Re: 6mm284
Posted: 27 Mar 2012 09:45
by Garpur
Til hamingju með þennan og vonandi reynist hann vel, ég hef notað þetta kaliber þónokkuð og það hefur reynst mér vel.
kv Garðar