Page 1 of 1

222 á fugl.

Posted: 22 Mar 2012 20:25
by Aflabrestur
Sælir.
Hvaða kúlu hafa menn verið að nota í 222 á fugl þannig að það sé eitthvað annað eftir en goggur og stél. Ekki væri verra ef hleðsla fylgdi með líka.
kv.
Jón Kristjánss

Re: 222 á fugl.

Posted: 22 Mar 2012 21:24
by Gisminn
Það verður gaman að sjá svör miðað við yfirlýsingar margra að 222 og 223 séu vonlausar til fuglaveiða ef nýta á kjöt af þeim.
Bíð spentur eftir svörum og já Jón bráðlæti mitt varð þolinmæðinni yfirsterkari og Henrý er seldur og komin með savage með öllum græum :twisted:

Re: 222 á fugl.

Posted: 22 Mar 2012 21:32
by maggragg
Ættu 52. gr Matchking ekki að fara vel með kjötið? Kannski of heilar í þetta?

Re: 222 á fugl.

Posted: 22 Mar 2012 22:02
by Gisminn
Mér skilst að fuglarnir fari svona :twisted:
http://www.youtube.com/watch?v=3ZDsngqsfjQ

Re: 222 á fugl.

Posted: 22 Mar 2012 22:14
by Benni
52gr Matchking kom ekki sérlega vel út hjá mér í 223 rem á gæs, skaut svosem bara eina með þessari kúlu á 220-230 metrum og fór kúlan í gegn um fuglinn frá hlið og reif helminginn af bringunni úr og útgatið var allavega 5cm.
Svosem varla marktækt að dæma kúluna frá einu skoti en allavega fanst mér þetta full mikill skaði til að veiða gæsir með.
Þó 222 rem sé örlítið hægari ætti ekki að vera allur munur þar á.

Er einmitt að spá í kúlu fyrir gæsir í 22cal en er með 22-250 svo það verður forvitnilegt að fylgjast með þessum þræði.

Kv Benni

Re: 222 á fugl.

Posted: 22 Mar 2012 22:14
by maggragg
Myndi þetta annars ekki kallast gæsapate :lol:

Re: 222 á fugl.

Posted: 22 Mar 2012 22:33
by Veiðimeistarinn
Ég er búinn að skjóta óteljandi fugla með 222.
Sako 222 var minn fyrsti riffill, ég komst aldrei í kynni við 22 í árdaga, byrjaði að skjóta fugla um fermingu með Sako 222 riffli sem pabbi átti síðan seinna með öðrum eins heilskeptum sem pabbi fékk til varðveislu hjá öldruðum afabróður mínum.
Ég skaut með þessum rifflum allt frá rjúpum upp í álftir og allt þar á milli aðallega endur og gæsir.
Venjulegast notaði ég verksmiðjuhlaðin Sakoskot með 50 gr. soft point kúlum, nema á rjúpuna á hana notaði ég eins skot en bara full metal jaket 50 gr. einnig.
Það heyrði til undantekninga ef fuglarnir voru það mikið skemmdir að það var ekki hægt að nýta þá!
Já og svo skaut ég fullt af hreindýrum með þeim, enn með 50 gr. soft point, já og nokkrar tófur líka, en á þær notaði ég skot sem ég hleð sjálfur með 40 gr. ballistik tip kúlum á 3200 fetum.