Page 1 of 2
					
				Figt kvöldsins
				Posted: 14 Oct 2015 23:54
				by Aflabrestur
				Sælir.
Smá tilrauna starfsemi, á eflaust eftir að slá öllu öðru við flatara, hraðara og hár nákvæmt auk þess sem feilskot og óhittni verða algjörlega óþekkt fyrirbæri. 

 ekkert nema 10ur og x
 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 15 Oct 2015 18:33
				by petrolhead
				Félagi Aflabrestur; ég tel að hér hafir þú hitt algerlega naglann á höfuðið 

 . Frá þessari marg rómuðu kúlu kemur konungleiki, góður flugstuðull og mikil nákvæmni. Frá hylkinu kemur svo mikill hraði og flatur ferill svo það er mín trú að hér sért þú kominn með genatískt hið albesta cal. sem völ er á og það eigi eftir að skúbba allri samkeppni út af borðinu....og skífunum  
 
 
MBK
Gæi
 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 15 Oct 2015 18:43
				by sindrisig
				Merkilegur andskoti að það kemur hvergi fram hvaða kúla þetta er og hvað þá cal. Er þetta svona þraut eða þannig?
kv
			 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 15 Oct 2015 20:06
				by baikal
				Sælir félagar.
 
 er ekki bresturinn að vísa í 6.5 Creedmoor græjuna sem er á leiðinni til hans 
 
  
eins og oft hefur komið fram hér á spjallinu, 

  spurningin er græjan komin á klakan  

 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 15 Oct 2015 20:08
				by gylfisig
				Er   þetta ekki  bara 308  win   með  10  grs  " Ballester tip "  kúlu     

 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 15 Oct 2015 20:14
				by Aflabrestur
				Sælir.
Það er spurning? það mætti kænski gera úr þessu getraun  

 fyrst Gæi orðaði þetta svona skemmtilega en svarið kemur framm hjá honum ef menn hugsa málið.
 Sumir vita að vísu meir en aðrir  

 (Guðmann þegi þú) 

 .
OK hvaða kúla og hvaða hylki er um að ræða? þetta tvennt á oftast ekki samleið 

 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 15 Oct 2015 20:16
				by baikal
				Satt segir þú Gylfi,
 
  brestinum gæti hafa dottið í hug að renna sápukúlu í 308 til 
að fá meiri hraða 
 
  
 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 15 Oct 2015 20:26
				by petrolhead
				Úr því að það er minnst á þetta cal. þá verð ég nú að setja hér inn mynd af 6,5 Creedmoor, þá hægt að fara að rannsaka lögun baukanna og bera saman  
 
 
MBK
Gæi
 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 16 Oct 2015 16:41
				by karlguðna
				ég giska á 308 og norma oryx  

 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 16 Oct 2015 19:09
				by Jenni Jóns
				Cal 308 win
kúla Lapua Scenar 220 grs  

 (ég mynd allavega telja það fikt)
 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 16 Oct 2015 21:00
				by petrolhead
				Sælir félagar.
308.....er það ekki eitthvað sem kastar kartöflum  
 
 
Mig minnir að ég hafi látið frá mér fara þessi orð 
" Frá hylkinu kemur svo mikill hraði og flatur ferill" í minni túlkun er mikill hraði 3500- 4000 fps  

  og ég minnist þess nú ekki að hafa séð þann hraða neins staðar tengdan 308 hylkinu, nema þá þegar er búið að nekka það niður í 6mm og gefa nafnið 243, en amk. er hér ekki um hið ágæta hylki 308 að ræða.
MBK
Gæi
 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 16 Oct 2015 23:13
				by Jenni Jóns
				Alltaf gaman að þessu  
 
   
   
 petrolhead wrote:308.....er það ekki eitthvað sem kastar kartöflum 
Og þessu
petrolhead wrote:í minni túlkun er mikill hraði 3500- 4000 fps    og ég minnist þess nú ekki að hafa séð þann hraða neins staðar tengdan 308 hylkinu,
þú hefur kannski aldrei skoðað neitt um hið ágæta hylki 308 win og því rétt að benda þér á hið  hávísindalega rit 
Reloading Guide for Centerfire Cartridges frá VihtaVuori Bls 36 í útgáfu 11 (sennilega flestum útgáfum) á fyrstu línuna í hleðslutöflunni 
og reyndar í netútgáfunni líka
http://www.vihtavuori.com/en/reloading- ... ester.html 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 17 Oct 2015 10:56
				by petrolhead
				Heill og sæll Jenni.
Ég get nú víst ekki þrætt fyrir það að hafa ofurlítið gluggað í tölur yfir .308  

  og get þá játað í leiðinni að hafa velt fyrir mér að fá mér riffil í því cal. og reyndar á ég trúlega eftir að fá mér einn slíkan, svona þegar ég er orðinn gamall og hægfara svo ég og riffill verðum í stíl  
 
   
   
 
En þessa tölu hafði ég ekki séð en langar núna mikið að sjá þessa kúlu sem um ræðir, 57gn í .30 cal. hlýtur að vera eins og Rosanne Barr í laginu  
 
 
Ég renndi nú yfir töfluna sem þú sendir mér og sé nú ekki betur en þessi fyrsta lína sé bara undantekningin sem sannar regluna  

  amk. held ég að það sé klárt að .308 er ekki "þekkt" fyrir að vera hratt og flatt eins og það hylki sem félagi Aflabrestur er með á myndinni.
MBK
Gæi
 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 17 Oct 2015 14:29
				by johann
				Ég myndi giska á 7mm-08
			 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 17 Oct 2015 15:53
				by Jenni Jóns
				petrolhead wrote:held ég að það sé klárt að .308 er ekki "þekkt" fyrir að vera hratt og flatt eins og það hylki sem félagi Aflabrestur er með á myndinni.
Það er ekkert ólíklegt að þú hafir rétt fyrir þér hvað það varðar.
Oftast verð nú samt "hröðu og flötu" ferlarnir töluvert bognir í endann ef færin lengjast og því fannst mér tilvalið að benda á kúlu úr 308 sem hefur hraðan og flatann feril út á 50 metra 
 
   
   
 
Varla eru menn að tala um 7-08 því það er ekkert hraðara en 308
Og hylkið er tæplega nógu langt til að tilheyra 06 fjölskyldunni.
Ég held að kúlan sé Lapua Scenar en átta mig ekki á hylkinu
 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 17 Oct 2015 21:19
				by Aflabrestur
				Sælir.
Það er náttúrulega bara ein leið til að koma letingja eins og 308 úr sporunum og það er að hlaða hann með einhverjum sandkornum, ég tek undir með Gæa mér þætti gamann að sjá 57gn kúlu í .30 cal hun væri í verri hlutföllum en ég 
 
 
Annars reyndi Remington sjálfur fyrir margt löngu að koma 308 úr sporunum með 55gn .22 cal kúlu (sjá mynd) hver nákvæmnin var get ég rétt ýmyndað mér, 308 og þetta hel....... eeeeennnn þessi óskapnaður fór í 4000 fet +  

 þetta er kænski meira svona þrjúhundruð og hálfátta 
 
 
Sumir eru á réttri leið aðrir ekki, en eitt er ljóst að 308 eða þess afkvæmi eignast ég ALDREI einu möuleikarnir væru KÆNSKI Browning BLR eða Sako Finnwolf.
En smá hint rétt kúlan er scenar og hylkið er oft kennt við villimann.
 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 17 Oct 2015 22:40
				by Sveinn
				300 Savage með Lapua Scenar?
			 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 17 Oct 2015 22:43
				by Aflabrestur
				Menn eru að hitna 

 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 17 Oct 2015 23:06
				by Sveinn
				300 Savage með 150 eða 180 gr Rem Core-Lokt? 

 
			
					
				Re: Figt kvöldsins
				Posted: 17 Oct 2015 23:29
				by Aflabrestur
				Kólnar!  hint:  mínus 50