Page 1 of 1
					
				Besta skíðmálið
				Posted: 12 Jan 2016 18:45
				by Gísli Snæ
				Er að nota tvö skíðmál, eitt venjulegt og eitt digital. Þau eru svo sem ágæt en mér finnst oft of auðvelt á fá þau til að flakka um einhverja þúsundustu (ekki gott fyrir mann sem er með frekar mikla nákvæmnisþörf).
Hvað eru menn að nota og hvar fær maður bestu skíðmálin á sem bestu verði hér heima?
			 
			
					
				Re: Besta skíðmálið
				Posted: 12 Jan 2016 22:42
				by Stebbi Sniper
				Sæll Gísli
Ég býst við að þú finnir eitthvað bitastætt í Fossberg.  Efast um að það sé allt á síðunni hjá þeim sem er til þar.
			 
			
					
				Re: Besta skíðmálið
				Posted: 12 Jan 2016 23:06
				by Gísli Snæ
				Takk Stebbi
Er að finna hleðslu fyrir nýjan riffil núna og því er mikil hylkjavinna, kúlusetningar o.s.frv. og ég vill reyna að hafa þetta sem allra nákvæmast. Er aðeins farinn að missa trúna á þessum ódýru sem ég er með núna - en kannski er það bara smiðurinn, ekki hamarinn.
			 
			
					
				Re: Besta skíðmálið
				Posted: 12 Jan 2016 23:36
				by Stebbi Sniper
				Ertu ekki með meira info um gripinn sem þú vilt deila með okkur!  Hvaða cal ertu með?  6 Dasher?
			 
			
					
				Re: Besta skíðmálið
				Posted: 12 Jan 2016 23:47
				by Gísli Snæ
				Nei reyndar er þetta 338 LM. Bara hefðbundinn settur saman ùr hlutum frá Hlað
			 
			
					
				Re: Besta skíðmálið
				Posted: 13 Jan 2016 16:32
				by Stebbi Sniper
				Þá er líka hægt að fá tommustokk í húsasmiðjuni...  
 
  
 
			
					
				Re: Besta skíðmálið
				Posted: 14 Jan 2016 09:41
				by prizm
				Það sem ég hef rekist á sem er mjög vandað er Mitutoyo en þeir bjóða upp á mjög vönduð skiðmál og einnig til að mæla þykkt á hylkjum.
Ég man ekki hverjir voru með þau en mig rámar í Ísól.
Starret voru lika með góð skíðmál en ég efast um að þau séu seld hérna á landi.
			 
			
					
				Re: Besta skíðmálið
				Posted: 14 Jan 2016 15:31
				by Veiðimeistarinn
				Ég held að þetta heiti skífumál  

 
			
					
				Re: Besta skíðmálið
				Posted: 14 Jan 2016 15:49
				by Stebbi Sniper
				Skífumál, skíðmál eða rennimál... allir hérna vita nokkurnveginn hvað um er að ræða svo lengi þeir hlaða sjálfir!  Held reyndar að þetta sé allt rétt...
Tófa myndi ekki vera spá í það hvort þetta héti V-Max eða A-Max...  
 
  
 
			
					
				Re: Besta skíðmálið
				Posted: 14 Jan 2016 22:05
				by krossdal
				Ég keypti mér svona:

Þetta verður aldrei rafmagnslaust. Það sýnir reyndar bara tommur en það plagar mig ekki. Nákvæmnin er 0,001''.
 
			
					
				Re: Besta skíðmálið
				Posted: 15 Jan 2016 12:39
				by konnari
				Sæll Gísli,
Ég hef heyrt að Mitutoyo sé mjög gott skíðmál.
			 
			
					
				Re: Besta skíðmálið
				Posted: 15 Jan 2016 13:35
				by joivill
				Þetta skíðmál eða það sem ég kalla skífumál ( hvorutveggja rétt) er ég búinn að eiga í 20 ár, fékk þetta í verðlaun við útskrift mína í byssusmíðanáminu frá UFA . Það hefur reynst vel, búin að eiga nokkuð mörg ásamt þessu, en þetta er uppáhalds, framleitt í Sviss af TESA   þeir framleiða mikið af mælitækjum,ekki veit ég hvort þetta fáist hérlendis en sé að á E-Bay er til nokkuð úrval

 
			
					
				Re: Besta skíðmálið
				Posted: 15 Jan 2016 18:22
				by Gísli Snæ
				Á akkúrat eitt svona Kristján. Ætla að athuga með Mitutoyo hjá Ísól