Page 1 of 1
Alvöru .cal
Posted: 27 Jan 2016 17:01
by Aflabrestur
Sælir.
Eignaðist þennan gæða grip á vordögum og ekki gefið mér tíma til að prufa hann fyrr en núna.
Þetta er Sako L61R síðan um 1970 og sjónaukinn er Leupold VX-II 3-9x40 frá sama tíma, þessi riffil hefur alla tíð verið á Ísland og verið talsvert notaður, Ég hef löngum sagst aldrei ætlað að eignast Sako en braut odd af oflæti mínu fyrir þetta sérstaka eintak.
Skotin eru Sako 275gr HP og Winchester superX 300gr FMJ
Það verður að játast að eftir 15 275gr+ skot þá er öxlin orðin pínu aum

Re: Alvöru .cal
Posted: 27 Jan 2016 19:35
by iceboy
Og hvaða cal er þetta?
Svona fyrir fáfróða
Re: Alvöru .cal
Posted: 27 Jan 2016 19:44
by Aflabrestur
Sælir.

375H&H Magnum
Re: Alvöru .cal
Posted: 27 Jan 2016 20:22
by iceboy
það er fullorðið
Re: Alvöru .cal
Posted: 27 Jan 2016 20:29
by karlguðna
Held ég eigi alveg nóg með minn 270 win, kíkti á eina bakslags töflu sem er gaman að skoða, þó að þessi slái all verulega þá eru þarna caliber sem ég myndi ekki snerta á fyrir mitt litla líf
http://www.chuckhawks.com/recoil_table.htm
Re: Alvöru .cal
Posted: 27 Jan 2016 23:13
by Aflabrestur
Sælir.
Jú þetta tekur aðeins í en er ss. ekki alveg óvanur, er líka með Marlin 1895g í 450 Marlin og hann lætur mann alveg vita afsér

Annars er þetta mjög áhugaverð tafla hjá gamla Hauknum margt sem kemur mér á óvart þessa á ég eftir að geima og stúdera betur

Re: Alvöru .cal
Posted: 28 Jan 2016 17:47
by konnari
Jónbi ! Ég ætti að leyfa þér að taka nokkur skot úr 458 Lott sem ég á, þá finnst þér 375H&H ljúfur sem lamb á eftir
https://upload.wikimedia.org/wikipedia/ ... WinMag.png
https://en.m.wikipedia.org/wiki/File:45 ... WinMag.png
Re: Alvöru .cal
Posted: 28 Jan 2016 22:18
by Aflabrestur
sælir.
Ég tek þig á orðinu Ingvar þetta er eh. sem ég væri alveg til í að prufa, ég er ekkert að kvarta yfir 375 hann er ekki svo slæmur og alls ekki fríhendis ekkert verri en 3.5" 12ga í veiði, en 15 skot í rikk á borði með púða er alveg ágætt.
Re: Alvöru .cal
Posted: 29 Jan 2016 14:37
by Gísli Snæ
Bara að hafa þessar sleggjur nógu þungar og með bremsu - þá eru þær ljúfar sem lamb

Re: Alvöru .cal
Posted: 30 Jan 2016 06:29
by konnari
Gísli....það nennir enginn að dröslast með klettþungann riffil í viku-tíu daga veiði t.d. í afríku...svo harðneita guidar þar mönnum að nota brake á riffla ! Maður verður bara að bíta á jaxlinn og æfa sig

Re: Alvöru .cal
Posted: 30 Jan 2016 10:18
by petrolhead
Nú verð ég að gera mér ferð vestur yfir heiði og fá að prófa gripinn hjá þér félagi Jón, það hljómar sem hin vænsta skemmtun að lúðra úr þessu cal.
MBK
Gæi
Re: Alvöru .cal
Posted: 30 Jan 2016 17:57
by Aflabrestur
Sælir.
Ávallt velkominn Gæi. Annars er mig er farið að langa til að prufa shooting stick´s allt annað að skjóta úr þessu standandi heldur en á borði hvað varðar bakslag, ekkert að því að takka 5-10 skot í einu standandi.
Fer þetta kænski að verða spurning um bigbore eh. hitting eða mót?