Page 1 of 1

Trump forseti

Posted: 09 Nov 2016 12:43
by skepnan
Hvernig ætli niðurstöður kosninganna í Ameríkunni hafi áhrif á möguleika okkar til að versla hluti tengda áhugamáli okkar? Verður lokað fyrir allt eða þveröfugt?

Re: Trump forseti

Posted: 09 Nov 2016 12:47
by maggragg
Held að verð á eftir að lækka og framboð eftir að aukast þar sem lítil hætta verður á því að farið verði í breytingar á byssulöggjöfinni þarna ytra þegar republikanar ráða þinginu og forsetastólnum. Hinsvegar er hætt við því að Bandaríkin einangri sig frekar miðað við tal verðandi forseta í aðdraganda kosningana og geti gert útflutning erfiðari, en gæti líka farið á hinn veginn.

Re: Trump forseti

Posted: 10 Nov 2016 21:37
by Sveinbjörn
Forseti hins frjálsa heims verður upptekinn af ýmsum brýnum verkefnum og á ég ekki von á því að hann verði Íslenskum veiðimönnum til ama.

Þó tel ég ekki útilokað að vegna vandræðaskríls sem hemja þarf um víða veröld að millilanda fluttningar á skotjárnum verði enn strangari.