
Það getur verið að það sé bleyta í veginum ennþá en það mun lagast. Eitt af fyrstu verkunum er að leggja nýjan veg að svæðinu sem styttir leiðina þangað töluvert.
Við erum að undirbúa að steypa sökkla undir leirdúfuhúsin sem verða á skeet vellinum, en við vonum að hann verði kominn í gagnið sem fyrst. Við þurfum að sjálfsögðu sjálfboðaliða til að aðstoða við að koma vellinum upp.
Við höfum verið í því að undirbúa kaup á félagshúsi sem við viljum koma á svæðið sem fyrst en það skiptir miklum máli að hafa afdrep á skotsvæðinu.
Félagið er orðinn fullgildur aðili að HSK og telur skotfélagið orðið 45 meðlimi sem er virkilega gott.
Fréttir af því sem við erum að fara að gera verða settar inn hér og sendar í tölvupósti til félagsmanna.
Jafnframt er félagið með facebook síðu: https://www.facebook.com/skyttur
Fyrir þá sem ekki vita hvar svæðið er þá er hægt að sjá það hér: http://spjall.skyttur.is/starfsemin/hel ... -t178.html
Hér eru svo öryggisreglur fyrir skotsvæðið: http://spjall.skyttur.is/starfsemin/ory ... s-t42.html