Ég er bara búin að setja hann á riffillinn og fikta aðeins og það verður spennandi að fara og prófa hann. Hann er virkilega skýr og turnarnir eru virkilega skemmtilegir. Það er létt að snúa þeim en jafnframt eru þeir mjög öruggir og það er eins og að aðeins tölurnar á turninum snúist en ekki strikin því hann færist alltaf jafn mikið í hverju klikki.
Ég tók mrad turn þar sem þá hef ég sömu einingu og í krossinum sem er mildot. Það þýðir að eitt klikk er 0.1 mrad eða 1 cm á 100 metrum. Einn hringur á turninum er 5 mrad sem samsvarar um 20 MOA. Turnin er merktur í 0.1 mrad þannig að það eru 50 einingar í einum hring. Þetta er þægilegt að reikna þar sem maður notar tugakerfið en ekki 1/4 reikning eða tommureikning.
Ég var með Nightforce NXS 5.5-22x56 á rifflinum og það er erfitt að sjá mun þegar maður horfir í gegnum þá en ég er ekki frá því að litir séu skarpari í Sightroninum og einhvernvegin stærri mynd líka. Á eftir að bera þá betur saman á skotsvæði með testskífur. Sightronin er örlítið léttari en þeir eru sambærilegir að stærð að öðru leyti. 30 mm túpa og svipað langir.
Sightronin er með 70 MOA elevation stillingu og þar sem ég er með Ken Farrel basa með 20 MOA halla ætti ég að ná 55 MOA færslu upp sem kemur mér út í nálægt 1200 m færi, og þá á ég eftir 5 MIL í viðbót í krossinum eða um 20 MOA.
Ástæðan fyrir því að ég valdi Sightron er sú að þeir eru með mjög áræðanlega turna, semsagt eiga að tracka sérstaklega vel, mjög góð gler og mjög hagstæðir.
Verður gaman að sjá hvernig hann kemur út á vellinum en svakalega er gaman að fá nýjar græjur

Þeir hjá Skyttan.is klikka ekki og verður maður að benda á frábæra þjónustu þar á bæ eins og alltaf
