Page 1 of 1

Eitthvað er nú eftir af hinum svarta fugli!

Posted: 21 Apr 2012 18:55
by Veiðimeistarinn
Mikið af fugli fyrir norðan, allt virðist morandi við Grímsey samkvæmt þessari frétt á mbl.is

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/ ... i_grimsey/

Re: Eitthvað er nú eftir af hinum svarta fugli!

Posted: 21 Apr 2012 19:16
by maggragg
Er þetta ekki Mossberg 12gauge með boltalás sem sést þarna á myndinni?

Re: Eitthvað er nú eftir af hinum svarta fugli!

Posted: 21 Apr 2012 20:06
by Veiðimeistarinn
Neeeei...ekki alveg! Þetta er Stevens 12 gauge með boltalás og tveggja skota magasíni og stillanlegri þrengingu!

Re: Eitthvað er nú eftir af hinum svarta fugli!

Posted: 22 Apr 2012 00:14
by sindrisig
Það er alveg hörmung hvernig veðrið er að leika okkur hérna niðri á fjörðunum, endalaus A og NA o.þ.a.l. ekkert veður til að ná sé í surt í soðið. Nóg af skógarþröstum aftur á móti, en þeir greyin fá nú ekkert nema epli og flot.

Re: Eitthvað er nú eftir af hinum svarta fugli!

Posted: 22 Apr 2012 09:37
by Benni
Held að Gylfi Þ. Gunnarsson Grímseyingur hafi sagt allt sem hægt er að segja um þetta!

„Ég held bara að það sé til alltof mikið af vel lærðum vitleysingum hér á landi, fólki sem þykist vita allt, kunna og geta, en áratuga reynsla manna af vettvangi er einskis metin,“

Re: Eitthvað er nú eftir af hinum svarta fugli!

Posted: 22 Apr 2012 10:47
by maggragg
Heyrði af einum sem fór fyrir nokkrum dögum út á Reykanesinu og þeir höfðu mjög góðan afla þar. Annars er þessi byssa mjög svipuð mossberg sem ég hef skotið úr, 12 gauge bolta með tveggjaskota magasíni og stillanlegri þrengingu þannig að þetta hefur ekki verið óalgeng hönnun í USA :)

Re: Eitthvað er nú eftir af hinum svarta fugli!

Posted: 22 Apr 2012 13:47
by Veiðimeistarinn
Já ég sá það á byssusýningunni hjá SKAUST á Egilsstöðum í fyrra, nákvæmlega eins byssa en bara annað nafn stimplað á hana!