Page 1 of 1
Riffillinn kominn í nýja skeptið Betri myndir
Posted: 26 Apr 2012 16:08
by iceboy
Hérna er mauserinn kominn í nýtt skepti:-)
Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið
Posted: 26 Apr 2012 16:38
by Veiðimeistarinn
Sæll Árnmar.
Já hann er bara flottur.
Myndin er eitthvað aflöguð.
Skeftið sýnist svo stutt og feitt.
Já þú getur sent mér hana á sa1070@simnet.is
Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið
Posted: 26 Apr 2012 16:42
by iceboy
já þetta varð eitthvað asnalegt þegar ég minnkaði myndina. Ef einhver nenniri að setja inn myndina í betri gæðum þá get ég sent hana á mail og einhver sett hana inn fyrir mig
Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið Betri myndir
Posted: 26 Apr 2012 22:08
by maggragg
Flott skepti. Er þetta breyttur Otterup?
Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið Betri myndir
Posted: 26 Apr 2012 22:12
by iceboy
Þetta er mauser 98 með otterup hlaupi i 6,5x55. Á þessu er svo vortex viper 6,5-20x 50
Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið Betri myndir
Posted: 26 Apr 2012 22:15
by maggragg
Þetta eru skemmtilegir rifflar, minn aðalriffill er einmitt mauser 98 með Schultz & Larsen hlaup, svokallaður Otterup M69 sem er held ég eins og þess, skilst þó að þeir hafi líka verið með Otterup hlaupum. Hvaðan fekkstu þessi skepti?
Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið Betri myndir
Posted: 26 Apr 2012 22:21
by iceboy
skeptið er frá rifle-stocks.com
Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið Betri myndir
Posted: 26 Apr 2012 22:26
by maggragg
Já, þetta er glæsilegt skepti í alla staði sýnist mér

Til hamingju með það. Það er alltaf gaman að fá nýja hluti og betrumbæta byssurnar sínar

Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið Betri myndir
Posted: 26 Apr 2012 22:31
by iceboy
Já ég er mjög sáttur. Nú er ég búinn að taka hleðslunámskeið svo nú fer ég að prófa hleðslur
Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið Betri myndir
Posted: 27 Apr 2012 09:15
by konnari
Til hamingju með riffilinn.......það er óhætt að segja að það sé engin hætta á að týna þessum riffli

Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið Betri myndir
Posted: 27 Apr 2012 09:38
by iceboy
Takk fyrir það:-) Nei hann ætti ekki að týnast þessi:-)
Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið Betri myndir
Posted: 27 Apr 2012 10:18
by Benni
Flottur riffill.
Ég er með skepti í pöntun frá Richard microfit líka, hvernig var skeptið þegar það kom? var mikil vinna að klára að pússa það og græja fyrir beddun?
Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið Betri myndir
Posted: 27 Apr 2012 10:35
by iceboy
Nei alls ekki, það er bara að pússa það nokkrum sinnum. Það var í raun ekki lengi gert. Svo er búið að setja nokkrar umferðir af lakki á þetta. Fyrst 3 umferðir af kraftlakki sem var sprautað á, viðurinn drakk vel í sig af því og svo er búið að setja 4 umferðir af bílaglæru á þetta til þess að fá almennilega flotta áferð á yfirborðið. það er kannski óþarfi að setja svona margar umferðir en sá sem sprautaði þetta fyrir mig er með svoltla fullkomnunaráráttu og ég se svosem ekkert að kvarta yfir því

Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið Betri myndir
Posted: 27 Apr 2012 10:47
by Gísli Snæ
Flottur riffill Árnmar. Og hvernig er sjónaukinn síðan að koma út? Heyrði aldrei frá þér meira með ásetninguna.
Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið Betri myndir
Posted: 27 Apr 2012 10:50
by iceboy
Takk fyrir það Gísli. Ég er mjög ánægður með sjónaukann. Hann er mjög bjartur og skýr. Flott græja og ekki dýr;-)
Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið Betri myndir
Posted: 28 Apr 2012 09:04
by Veiðimeistarinn
Sæll Árnmar.
Riffillinn er rosalega flottur!!! Skeftið kemur vel út svona,enda fallega lagað skefti, kannski ekki hlutlaus af því ég á eins skefti nema í öðrum lit.
En heldur þú að það lakkið skemmist ekki á skeftinu þegar þú ferð að fara með riffilinn upp um fjöll og firnindi?
Ég lagði ekki í að lakka mitt skefti, Jói Vill olíubar það vel og ég strík annað slagið yfir það með olíu til að halda því í horfinu.
Re: Riffillinn kominn í nýja skeptið Betri myndir
Posted: 28 Apr 2012 12:43
by iceboy
Sæll. Ég veit ekki hvernig verður með skemmdir á lakkinu, það verður bara að koma í ljós. Ég var einmitt að hugsa þetta með að olíubera en ákvað að fara þessa leið.
En ég stefni á að taka hreindýrið með þessum í sumar og eins og þú veist þá er nú ekkert ólíklegt að við rekumst á hvorn annan á heiðinni:-)