Page 1 of 1
Borka herslulykill
Posted: 30 Apr 2012 11:09
by maggragg
Á einhver eða hefur einhver prófað svona lykill? Mig vantar herslulykill til að festa sjónaukahringina rétt og rakst á þessa græju sem hefur fengið mjög góða dóma úti og er líka einföld. Býður m.a. uppá 15 pund/tommu og 65 pund/tommu sem ég þarf til að stilla
Nightforce hringina.
[urlhttp://
www.borkatools.com/pages/atd12/mtsd.html]Borka herslulykill[/url]
http://www.youtube.com/watch?v=vDFKcxfAptA

Re: Borka herslulykill
Posted: 30 Apr 2012 14:38
by Gísli Snæ
Nei, pældi mikið í þessu þegar mig vantaði lykil en endaði á að kaupa Wheeler Fat wrench þar sem hann var til í Cabelas þegar ég fór þangað. Á samt eftir að fá mér svona - örugglega sniðugt að taka þetta með sér út á skotsvæði.
Re: Borka herslulykill
Posted: 02 May 2012 10:28
by Veiðimeistarinn
Magnús, þetta er snilldar græja, einmitt eitthvað sem alltaf vantar þegar verið er að setja nýja sjónauka á riffl en ég lendi stundum í að hjálpa vnum mínum við svoleiðis.
Gísli átt þú mynd af þínum lykli eða slóð á Cabelas?
Re: Borka herslulykill
Posted: 02 May 2012 18:18
by Gísli Snæ
Sæll Siggi
Ég fékk mér svona síðastliðið haust úti í Cabelas. Mjög sáttur við þetta. Búinn að nota það til að setja tvo sjónauka á riffla.
http://www.cabelas.com/product/Shooting ... t104370480
Re: Borka herslulykill
Posted: 02 May 2012 18:24
by Veiðimeistarinn
Já þessi er flottur og dugar mér alveg, auk þess sem hann er ódýrari en Borka lykillinn, en kannski ekki eins góður, ætli það sé ekki með þetta eins og annað ég borga fyrir gæðin!
Verð að athuga þetta ef ég fer til Minniapolis í haust eins og stefnt er á.
Re: Borka herslulykill
Posted: 02 May 2012 18:42
by Gísli Snæ
Ég hef nú séð myndbönd þar sem byssusmiðir eru að nota þennan. Hann er að virka mjög vel. En er ekki eins handhægur.