Page 1 of 2
Stærð á skotbjöllu?
Posted: 03 May 2012 13:25
by maggragg
Ég er að spá í að láta smíða fyrir mig skotbjöllu úr 10mm HARDOX 500 stáli og eina spurningin er núna hversu stór á hún að vera. Ég hafði hugsað mér hana til að setja á hin ýmsu færi, allt að 1 km. Mér datt í hug 40cm þvermál en það er um 1.5 MOA stærð.
Sigurður gæti kannski sagt mér hvað svæðið er stórt á hreindýri sem maður verður að hitta á. Kannski væri hægt að nota þá stærð til hliðsjónar?

Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 03 May 2012 13:41
by Gísli Snæ
Láttu smíða 2 - ég skal taka 1 stk
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 03 May 2012 14:52
by Veiðimeistarinn
Magnús, hún mætti vera upp í 50 cm. Það eru rúmir 50 cm. frá herðakambi niður á bringukoll á meðal hreinkú, lungna og hjartasvæðið er lengra í cm. fram og afturmælt á sama dýri.
Tarfarnir eru aftur stærri.
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 03 May 2012 17:05
by maggragg
50 cm gæti verið heppilegt. Sérstaklega fyrir mjög löng færi en ég var að lesa mér til og úti er 18-20" notað á þessu löngu færum. Þetta passar líka fyrir mil-dot sjónauka því þá væri hringurinn akkurat 1 mil á 500 metrum. Væri svo spurning að eiga aðra fyrir styttri færi, t.d. 25 cm sem væri þá hálft mil á 500 o.s.f.v.
Þetta kosta sitt en ég hringdi áðan í Héðin og hringur 40 cm í þvermál með skurði kostar um 8-10 þúsund.
Gísli, ég get pantað tvær þegar ég hef ákveðið hvernig

Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 04 May 2012 19:20
by maggragg
Þessi er nokkuð flott:
Skotbjallan má ekki heldur vera of þung eða fyrirferðamikil svo að það sé ekki hægt að ferðas með hana með góðu móti.
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 04 May 2012 19:29
by Gísli Snæ
Lítur vel út
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 04 May 2012 20:58
by Maggi
Prófaði 500m æfingu um daginn með stálplötu. Virkilega skemmtilegt að heyra hvort maður hitti.
Annars voru kúluförin líka greinanleg í sjónaukanum.
Það var um 7m/s vindur frá hlið og þurfti því aðeins að skrúfa sjónaukann uppí vindinn. Það hefði því mátt vera breiðari platan uppá það að gera. Þurfti að taka 3 skot til að lenta inná plötu.
kv
Maggi
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 04 May 2012 21:16
by Gísli Snæ
Rosalega er þetta fallegur riffill Magnús. 6,5x284?
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 04 May 2012 21:18
by Maggi
Takk fyrir það. Já þetta er jalonen 6.5x284
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 07 May 2012 20:01
by maggragg
Það er í raun betra að hafa skífuna stærri á hliðina en hæðina þar sem óvissan er alltaf meiri með vindinn. Ég ætla að fara í 40 cm hringlaga og svo sé ég bara til hvernig það kemur út. Alltaf betra að setja sér meiri kröfur en þarf

Gísli, á ég að taka tvær þannig?
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 07 May 2012 21:07
by Gísli Snæ
Ekki spuring - tek þátt í þessu. Sendu mér síðan bara póst á gislisnae@islandia.is og við finnum út rest.
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 09 May 2012 09:08
by maggragg
Búin að teikna tvær útgáfur. Er sjálfur hrifnari af nr.1
Gísli, ég verð í bandi við þig þegar ég hef fengið verð á þetta en þetta verður í 10 mm HARDOX 500.
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 16 May 2012 17:43
by maggragg
Þá er skotbjallan tilbúin og vonandi fæ ég hana á föstudaginn

Verður gaman að prófa hana á 500 þegar rólan verður tilbúin. Vantar góðar hugmyndir hvernig ég ætti að hafa róluna, úr hverju, til að hún verði meðfærileg en samt stabíl til að halda svona plötu í keðjum?
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 29 Nov 2012 19:52
by Gísli Snæ
Jæja þá er skotbjallan loksins að verða tilbúin. Ekki viss um lengdina á fótunum - gætu verið of langir.
Stytti þá bara eftir fyrstu ferð ef mér sýnist svo.
Hægt er að taka statífið allt í sundur og er það því auðvelt í flutningi
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 29 Nov 2012 21:18
by Jón Pálmason
Sælir/ar.
Ágætur félagi smíðaði þessar skotbjöllur fyrir mig í sumar. Úr hardox.
Hef hugsað þær fyrir lítinn riffil í sveitinni.
Ætla að prufa að setja inn mynd???
Kveðja, Jón P.
P.s. eins og sést þá skilaði myndin sér ekki.
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 29 Nov 2012 21:21
by Gísli Snæ
Magnús pantaði 2 stk hjá Héðni í sumar og tók ég aðra. Bróðir minn sem er vélstjóri smíðaði síðan standinn fyrir mig, þ.e. tengistykkin og hverslána. Fæturna keypti ég bara sjálfur
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 29 Nov 2012 21:30
by maggragg
Já, mín er ekki komin upp
Vantar einmitt standinn. Hef svo verið nokkuð upptekin í haust og vetur og hefur bjallan bara safnað ryki.
Verður spennandi að sjá hvernig hún kemur úr. 10mm hardox 500 ætti að þola nánast allt á eðlilegu færi.
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 29 Nov 2012 21:35
by Gísli Snæ
Ef þú ert í vandræðum með myndina Jón þá getur þú sent mér hana og ég smellt henni inn
gislisnae@islandia.is
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 29 Nov 2012 23:08
by Bc3
Platan mín er 30 x35
Re: Stærð á skotbjöllu?
Posted: 08 Dec 2012 18:45
by maggragg
Gísli, hvað var efnisverðið fyrir statífinu, þarf að fara að græja þetta. Langar orðið að fara að dúndra eitthvað