Ég er að spá í að láta smíða fyrir mig skotbjöllu úr 10mm HARDOX 500 stáli og eina spurningin er núna hversu stór á hún að vera. Ég hafði hugsað mér hana til að setja á hin ýmsu færi, allt að 1 km. Mér datt í hug 40cm þvermál en það er um 1.5 MOA stærð.
Sigurður gæti kannski sagt mér hvað svæðið er stórt á hreindýri sem maður verður að hitta á. Kannski væri hægt að nota þá stærð til hliðsjónar?
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546 "Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Magnús, hún mætti vera upp í 50 cm. Það eru rúmir 50 cm. frá herðakambi niður á bringukoll á meðal hreinkú, lungna og hjartasvæðið er lengra í cm. fram og afturmælt á sama dýri.
Tarfarnir eru aftur stærri.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
50 cm gæti verið heppilegt. Sérstaklega fyrir mjög löng færi en ég var að lesa mér til og úti er 18-20" notað á þessu löngu færum. Þetta passar líka fyrir mil-dot sjónauka því þá væri hringurinn akkurat 1 mil á 500 metrum. Væri svo spurning að eiga aðra fyrir styttri færi, t.d. 25 cm sem væri þá hálft mil á 500 o.s.f.v.
Þetta kosta sitt en ég hringdi áðan í Héðin og hringur 40 cm í þvermál með skurði kostar um 8-10 þúsund.
Gísli, ég get pantað tvær þegar ég hef ákveðið hvernig
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546 "Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Prófaði 500m æfingu um daginn með stálplötu. Virkilega skemmtilegt að heyra hvort maður hitti.
Annars voru kúluförin líka greinanleg í sjónaukanum.
Það var um 7m/s vindur frá hlið og þurfti því aðeins að skrúfa sjónaukann uppí vindinn. Það hefði því mátt vera breiðari platan uppá það að gera. Þurfti að taka 3 skot til að lenta inná plötu.
Það er í raun betra að hafa skífuna stærri á hliðina en hæðina þar sem óvissan er alltaf meiri með vindinn. Ég ætla að fara í 40 cm hringlaga og svo sé ég bara til hvernig það kemur út. Alltaf betra að setja sér meiri kröfur en þarf Gísli, á ég að taka tvær þannig?
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546 "Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Þá er skotbjallan tilbúin og vonandi fæ ég hana á föstudaginn Verður gaman að prófa hana á 500 þegar rólan verður tilbúin. Vantar góðar hugmyndir hvernig ég ætti að hafa róluna, úr hverju, til að hún verði meðfærileg en samt stabíl til að halda svona plötu í keðjum?
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546 "Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Ágætur félagi smíðaði þessar skotbjöllur fyrir mig í sumar. Úr hardox.
Hef hugsað þær fyrir lítinn riffil í sveitinni.
Ætla að prufa að setja inn mynd???
Magnús pantaði 2 stk hjá Héðni í sumar og tók ég aðra. Bróðir minn sem er vélstjóri smíðaði síðan standinn fyrir mig, þ.e. tengistykkin og hverslána. Fæturna keypti ég bara sjálfur
Vantar einmitt standinn. Hef svo verið nokkuð upptekin í haust og vetur og hefur bjallan bara safnað ryki.
Verður spennandi að sjá hvernig hún kemur úr. 10mm hardox 500 ætti að þola nánast allt á eðlilegu færi.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546 "Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"