Page 1 of 1
Plastoddur
Posted: 03 May 2012 22:20
by iceboy
Ég er ekkert hrifinn af kúlum með plastoddi en ég keypti einn pakka af þessu til að grófstilla riffilinn hjá mér og af því að ég var ekki komin með hleðsluleyfið.
Þetta gekk ágætlega EN þegar ég tók út eina patrónuna eftir að hafa skotið þá kom þessi líka fína rauða flís með patrónunni.
Hafið þið lent í því að kúlan hreinlega flísist í rifflinum?
Re: Plastoddur
Posted: 03 May 2012 23:25
by Gisminn
Sæll ég nota NoslerBT mikið og eru þær með svona oddi og hef notað þetta í 243 og 6,5x55 og ekki lent í þessu Samtals ca 500 kúlum.
svo mitt svar er nei
Re: Plastoddur
Posted: 04 May 2012 07:45
by Veiðimeistarinn
Nei, ég hef ekki lent í þessu, samt er ég að skjóta þessum kúlum eingöngu bæði úr 6,5-284 og 222.
Hvernig skot voru þetta sem þú keyptir Árnmar? Með hvað þungum kúlum?
Ég er að nota bæði Nosler Ball.tip 100 gr. og Horniday V-max 95 gr. í stærri riffilinn og V-max 40 gr. í þann minni og hef aldrei séð svona agnir úr plastinu, eða kannski ætti frekar að kalla það teflon, ég held allavega að þetta sé ekki venjulegt plast.
Re: Plastoddur
Posted: 04 May 2012 08:32
by Benni
Prófaðu að útbúa óvirkt skot með sömu heildarlengd og sömu kúlu og skelltu því nokkrum sinnum í gegnum riffilinn.
Það eru góðar líkur á að annaðhvort sé hvöss brún eða flatur staður sem nær að brjóta eða flísa úr plastoddinum á leiðinni úr magasíni uppí hlaup.
Hvernig riffill er þetta og hvaða caliber?
Re: Plastoddur
Posted: 04 May 2012 12:42
by iceboy
Þetta eru verksmiðjuskot, Norma skot 110gr með hornaday v-max.
Þetta var á skotsvæðinu svo skotið fá aldrei i magasínið heldur var magasínið í og skotinu rennt í hlaupið.
Ég er mað browning x-bolt i cal 270
Re: Plastoddur
Posted: 04 May 2012 13:45
by Benni
Hornady eru einu kúlurnar sem oddurinn brotnar af í kúlu dragara hamrinum mínum, sér ekki á Blitzking eða Ballistic tip kúlum svo sennilega eru Hornady plastoddarnir eitthvað viðkvæmari.
Er þetta eins og skafið af oddinum eða eru þetta brot úr honum?
Re: Plastoddur
Posted: 04 May 2012 15:07
by iceboy
Þetta er svona eins og skafið af honum, þetta ver þunn ferköntuð flís.
En ég hef svosem engar áhyggjur, ég nota svona kúlur sjaldan og ætla bara að halda mig við blýið.
Enda kann ég mjög vel við það en ég var bara forvitinn hvort fleiri hefðu lent í svona