Page 1 of 2
Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 11 May 2012 19:06
by maggragg
Þá er reglugerðin komin út og búið að birta hana á stjórnartíðindum en hún var samþykkt 7. maí.
http://stjornartidindi.is/Advert.aspx?I ... 092e9b6d99
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 11 May 2012 19:10
by maggragg
Við fyrstu sýn þá er nánari framkvæmd og útlit prófskífna á forræði Umhverfisstofnunar og það eru ströng viðurlög við því að veiða eða gera tilraun til veiða á hreindýri án þess að hafa staðist þetta próf.
Einnig að verðið fyrir prófið eigi ekki að vera dýrar en rökstuddur kostnaður við að halda það.
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 11 May 2012 20:22
by Padrone
Við fyrstu lesningu finnst mér frekar slappt að skotpróf gildi bara í eitt ár í senn og þurfi að endurtaka það á hverju ári.
Væri alveg hugsandi að hafa það gilt í 5 ár í senn eða jafnvel 10 eins og skotvopnaleyfið. Ekki þarf maður að endurtaka skotvopnaprófið á hverju ári.
Verklegt skotpróf skal tekið á skotsvæði sem samþykkt hefur verið af lögreglustjóra.
Sem þýðir að það má taka það á hvaða skotvelli sem er, eeeen það verður undir geðþóttaákvörðunum hvar það verður haldið, sbr.
Umhverfisstofnun skal á vefsetri sínu hafa upplýsingar um framkvæmdaraðila skotprófa sem og prófstaði.
Bara smá pælingar.
Heimildir:
http://stjornartidindi.is/Advert.aspx?I ... 092e9b6d99
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 11 May 2012 20:34
by Padrone
maggragg wrote:Einnig að verðið fyrir prófið eigi ekki að vera dýrar en rökstuddur kostnaður við að halda það.
Þeir ættu nú að geta haldið þessi próf nokkuð víða á landinu ef þeir auglýsa það með tölvupóstum, til þeirra sem fengu úthlutað, að þau verði haldin á ákv. laugardegi eða sunnudegi (flestir í fríi þá) og þar með haldið kotnaðinum í lágmarki.
Persónulega finndist mér allt í lagi að hafa þetta 1000 krónur fyrir prófið og 1000 krónur fyrir aðgang að skotsvæðinu.
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 11 May 2012 21:17
by Aflabrestur
Sælir.
Ég hef séð tillögur UST að framkvæmd á þessu skotprófi og gæti trúað að það fari ca. 1/2 tími pr. mann í framkvæmd á þessu með öllu, pappírsvinnu og þh.
Þannig að ef við skoðum útseldan tíma hjá iðnaðarmanni+tækjagjald+vsk. þá erum við að tala um 10.000- + á tímannn þannig að mér finnst 5-7.000- ekki óraunhæft. fyrir þessa vinnu.
Sem nb. verður framkvæmd af tilnefndum félögum í sínu skotfélagi á svæði félagsins líkt og verklegi hlutinn í skotvopnaprófinu er í dag, þar sem skotfélöginn eru verktakar hjá UST.
Þannig að ef eh. fæst til að framkvæma þetta á 2000- kall þá er það frábært.
Ég er bara ekki að sjá það gerast!! það fækka þá bara félögunum sem nenna að standa í þessu og menn þurfa að leyta lengra til að komast í próf.
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 11 May 2012 22:34
by Veiðimeistarinn
Ég hef heyrt því fleygt að þetta verði kringum 5000 kallinn!
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 12 May 2012 07:16
by Stefán Einar
Við lestur reglugerðarinnar sýnist mér að það gæti orðið snúið fyrir okkur sem búum erlendis að standast þessar kröfur, þar sem gert er ráð fyrir að skila inn niðurstöðunum fyrir 1sta Júlí.
Verst hvað maður á fáa tvífara.
Kv.
Stefán
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 12 May 2012 09:24
by Veiðimeistarinn
Er nokkuð minnst sérstaklega á ykkur ,,útlendingana" í þessari reglugerð Stefán?
Já það er alveg á hreinu Stefán minn að þú átt fá tvífara! Þú ert alveg einstakur !!!!!
Ég held að það hljóti að vera svo að erlendir veiðimenn geti skilað hér inn þarlendu skotprófi. Það er skilda í einhvejum löndum að taka svona skotpróf. Fordæmið er það að erlendir veiðimenn geta skilað inn byssuleyfi og veiðikorti frá sínu heimalandi áður en þeir sækja um hreindýraveiðileyfi.
Ég sé ekki betur en UST sé skildugt til að taka við svona skotprófum frá veiðimönnum af EES svæðinu.
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 12 May 2012 17:42
by gkristjansson
Ég spurði hann Jóa Gutt út í þetta, útaf Ungverjum sem eru að koma í hreindýr. Jói sagði mér að það væri í lagi að þeir myndu taka prófið við komuna til landsins, 1. Júlí væri ekki takmörkun fyrir þá. Sem sagt það á víst að vera í lagi að erlendir veiðimenn taki prófið eftir 1. Júlí svo lengi sem prófið er tekið fyrir veiði.
Svolítið fyndið þar sem báðir Ungverjarnir veiða mjög mikið og verða ábyggilega búnir að fella nokkur stærri dýr en hreindýr á þessu ári áður en kemur að hreindýraveiðinni....
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 12 May 2012 18:41
by maggragg
2. gr.
Verklegt skotpróf.
Áður en veiðimaður fer til hreindýraveiða skal hann hafa staðist verklegt skotpróf á síðustu tólf mánuðum.
Veiðimaður þarf að skila inn til Umhverfisstofnunar staðfestingu á að hann hafi lokið verklegu skotprófi fyrir 1. júlí ár hvert. Prófdómari skal senda niðurstöðu verklegs skotprófs til Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun er heimilt að veita veiðimanni sem fær úthlutað leyfi til hreindýraveiða eftir 1. júlí frest til að skila inn staðfestingu á verklegu skotprófi.
Við útgáfu eða endurnýjun leyfis til leiðsagnar við hreindýraveiðar þarf umsækjandi að skila inn til Umhverfisstofnunar staðfestingu á að hann hafi á síðustu 12 mánuðum lokið verklegu skotprófi sem ætlað er leiðsögumönnum við hreindýraveiðar.
Sýnist að UST geti gefið undanþágu fyrir þá sem fá úthlutað leyfi eftiri 1. júlí. Spurning hvernig UST túlkar þetta ákvæði þegar kemur að þeim sem eru búsettir erlendis en fengu samt úthlutað leyfi fyrir 1. júlí. Ætla að senda fyrirspurn um þetta.
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 12 May 2012 18:56
by iceboy
Það verður nú lika gaman að sjá hvernig þeir ætla að leisa það þegar verið er að úthluta leyfum síðustu dagana. ég veit að síðasta leyfinu var úthlutað um kl 20 19 sept í fyrra, hvernig ætti að vera hægt að klára skotprófið áður en haldið er til veiða?
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 14 May 2012 09:15
by maggragg
Ég send fyrirspurn á UST varðandi það ef menn byggju erlendis og gætu þar af leiðandi ekki tekið prófið fyrir 1. júlí, og var að fá svar:
Sæll Magnús
Líklegt er að í þeim fáu tilfellum sem þessi er raunin verði mönnum gefinn
kostur á að framvísa sambærilegu verklegu prófvottorði. Þetta á ekki að
þurfa að vera vandamál.
kv.
Einar Guðmann
Umhverfisstofnun
Þannig að UST gerir ráð fyrir því að þessi mál verði leyst þegar þau koma upp samvæmt þessu.
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 14 May 2012 10:50
by iceboy
Ætli undanþágurnar verði ekki fleiri en þeir búast við, það er stutt í 1 júli og ekki búið að ganga frá þessu enþá. Hvað með t.d þá sem vinna á sjó? Þeir eru heima um sjómanna dag og fara margir þá út í mánuð, þá er 1 júli liðinn.
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 14 May 2012 13:00
by Veiðimeistarinn
Það hefur mikið verið rætt hvað þeir sem koma inn af biðlistanum eftir að veiðitímabilið er hafið þurfi að gera eða lendi í varðandi þetta skotpróf!
Ef ég væri á biðlista eftir hreindýraleyfi, á líklegum stað eða það framarlega að ég ætti von um að komast inn, mundi ég enfaldlega fara í skotprófið fyrir 1. júlí eins og hinir, það hlítur öllum sem sótt hafa um hreindýraveiðileyfi að vera heimilt að fara í þetta skotpróf.
Ég mundi vinna tvennt með þessu.
Í fyrsta lagi fá smá æfingu á rffilinn minn, þó ég fengi svo þegar upp er staðið ekkert hreindýraveiðileyfið.
Í öðru lagi þó það kosti enhvern kannski 5000 kall að fara í þetta skotpróf kem ég samt til með að spara með því að fara svona tímanlega í skotprófið, frekar heldur en að vera að taka það á hundavaði þegar allt er komið á eindaga og ég þarf kannski að ferðast um langan veg til að fara í þetta próf.
Veiðimenn verða að athuga það að þetta próf er komið til að vera og nauðsinlegt að taka því bara á jákvæðan hátt og vinna með þessu, þeir geta hvort að er ekki gert neitt annað.
Hafandi fylgst með umræðunni um þetta mál, ég tala nú ekki um á ónefndu vefspjalli, hallast ég helst að því að veiðimenn flestir hverjir eigi við allnokra tilvistarkreppu að stríða.
Þeim hættir svo oft við að taka neikvæðasta pungtinn á öllu er þeim viðkemur og hanga á því ens og kundar á roði!
Ég bara nenni ekki að eyða æfinni í svona neikvæðni endalaust!
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 14 May 2012 15:14
by Hrafnjo
Sælir
Miðað við þann fjölda manna sem maður hittir á skotsvæði Akureyrar og eru á leið að sunnan í hreindýr og stoppa til að annaðhvort prófa rifilinn sinn í fyrsta skipti eða einfaldlega til að stilla hann fyrir "hreindýrakúluna" þá veitir ekki af þessu prófi.
Svo væri líka gaman að vita hversu mörg hreindýr leiðsögumenn verða að fella ár hvert eftir að menn feilskjóta á úrvalsfærum. Ég heyri ítrekað sögur frá þeim leiðsögumönnum sem ég þekki að menn komi illa undirbúnir til leiks eða einfaldlega ofmeti ágæti sitt. Það endar oftar en ekki á leiðinlegan hátt og getur skemmt góðan og skemmtilegan veiðidag.
Það geta allir feilskotið, en líkurnar eru minni ef menn æfa sig markvisst og það er tilgangurinn með þessu prófi, að menn æfi sig og æfi til þess að ná prófinu.
Ef rétt er að þetta verði 5000kr, sem væri reyndar gaman að sjá sundurliðun á hvernig skiptist því ekki má rukka meira en til að standa undir kostnaði, þá er það ekki þannig upphæð að það ætti að stoppa menn sem eru margir hverjir að ferðast þvert yfir landið til að skjóta dýr hreindýr.
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 15 May 2012 08:49
by maggragg
Ég persónulega er hlyntur þessu prófi. Þetta tryggir það að allir þeir sem hyggjast fara á hreindýr séu búnir að æfa sig og skjóta úr rifflum sínum. Auðvitað eru menn eins og við hér sem höfum áhuga á rifflum og veiðum sem ættum ekki að vera í vandræðum með þetta en ég held að það séu alltof margir sem taka þessu hæfilega alvarlega en Sigurður þekkir það kannski betur. Þetta er líka ákveðinn gæðastimpill á veiðarnar hér heima, enda þekkist þetta víða erlendis og mun bara gera allt faglegra í kringum þetta sem mun svo aftur hjálpa málstað veiðimanna síðar.
Ef maður horfir á þetta kalt, finnst mönnum í lagi að menn með enga reynslu né þekkingu aflífi lifandi verur? Þetta tryggir að menn hafi lágmarkskunnáttu til að deyða dýr á mannúðlegan hátt og er það ekki það sem skiptir máli. Útfærsluna er svo hægt að ræða og ég efast ekki um að þegar reynsla er komin á þetta kerfi muni það þróast og breytast, því það er jú verið að stökkva beint í djúpu laugina með þessu en engu að síður þarft að mínu mati.
Varðandi verðið þá er vonandi að það sé hóflegt, en það kostar menn líka að fara á skotsvæði að æfa sig hvort eð er og það er auðvitað lágmarkskrafa að menn æfi sig fyrir veiðar. Margir gera það alls ekki í dag.
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 15 May 2012 09:56
by gkristjansson
Sælir,
Ég vildi bara skjóta hér inn að mér finnst þetta próf hið besta dæmi en spurning um útfærsluna á þessu (stuttur fyrirvari, gildir bara í eitt ár, verður að vera tekið með rifflinum sem notaður verður í veiði o.sv.frv.).
Svona til gamans þá vill ég geta þess að við, í veiðiklúbbnum mínum, erum að taka upp svipað ferli þar sem við munum láta alla gestaveiðimenn, sem koma til okkar í krónhjartarveiði, fara á skotbraut fyrir veiði og skjóta á mark á 100m færi til að sýna að þeir kunni að skjóta.
Á bak við þessa ákvörðun okkar er sú reynsla að við fáum oft til okkar veiðimenn sem hafa litla sem enga reynslu og það kemur niður á veiðinni (og þar með bráðinni sem við erum að eltast við).
Pínu saga til að sýna hvað um er að ræða:
Í fyrra fengum við í heimsókn til okkar Ungverskan veiðimann sem var að koma til að veiða krónhjört. Eins og með hreindýraveiðina á Íslandi, þá er það krafa í Ungverjalandi að það sé alltaf leiðsögumaður með veiðimanni við krónhjartar veiðina.
Jæja á fyrsta degi þá sér leiðsögumaðurinn góðan hjört í um það bil 100m færi. Hann segir veiðimanninum að taka þennan. Byssan upp, miðað og tekið í gikkinn. Ekki kippti hjörturinn sér upp við þetta en byrjar hins vegar að nálgast veiðimanning. Þegar hjörturinn er kominn í um það bil 80 metra færi þá reynir veiðimaðurinn aftur að skjóta, sami árangur, hjörturinn kippir sér ekki upp við þetta en heldur áfram að nálgast. Í 60m færi þá hleypir veiðimaðurinn af þriðja skoti og í þetta skiptið tók hjörturinn eftir þessu og rýkur í burt, ósærður. Ekki var fellt dýr þennan daginn.
Næsta dag þá fara þeir aftur út. Þeir sjá þrjú hjartardýr standa saman, fyrstur er sæmilegur hjörtur síðan kú og loksins, aftast, er kálfur. Leiðsögumaðurinn er orðinn svolítið hvumpinn um veiðimanninn og ákveður að þó að þessi hjörtur sé ekkert sérstakur þá eigi veiðimaðurinn að reyna að taka hann. Byssan upp, tekinn góður tími í það að ná miði og tekið í gikkinn. Viti menn, kálfurinn fellur niður dauður.......
Styst frá að segja að þessi veiðimaður fékk ekki að reyna meira og við lærðum af þessu (próf fyrir veiði....).
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 15 May 2012 11:15
by Veiðimeistarinn
Það er voðalega misjafnt hvernig veiðmenn sem koma til mín nálgast þetta verkefni, að veiða hreindýr.
Stór hluti hefur allt sitt á hreinu hvað skotvopnið varðar, hvort sem þeir hafa átt riffil lengi og skotið mikið, eru nýbúnir að kaupa sér einn slíkan en hafa æft sig, eða hafa fengið lánaðan riffil og kynnt sér eiginleika hans og tekið æfingu eða æfingar á hann.
Síðan er alltaf hluti að veiðimönnum sem er ekki alveg með á nótunum.
Það er hægt að skipta þeim í nokkra flokka.
Menn sem hafa átt riffil lengi og lítið snert hann til fjölda ára en koma með hann og einhvern gamlan skotapakka frá sama tima, skotin eru oft í besta lagi og mennirnir hafa góðar minningar um hittni frá í gamla daga og allt er í lagi þegar búið er að fara aðeins yfir riffilinn, kíkinn, kaliberið og skotin og skýra út hvaða eiginleika þetta allt hefur þegar komið er á veiðar.
Síðan eru menn sem eru nýbúnir að kaupa sér riffil kannski eftir klysjukenndum ráðleggingum manna sem kannski eru ekki vanir veiðum, þeir hafa kaliberið og skotfærin á hreinu en vita ekkert um eiginleika þeirra, segja að riffillinn og kúlan sé það besta sem hægt er að fá. og sé í pungt, og sýna jafnvel skotskífur máli sínu til stuðnings, svo þegar nánar er grenslast fyrir, var færið kannski 100 metrar en kúlan 160 til 180 gr. með hraða niður undir 2500 fet og gera sér ekki grein fyrir að kulan fellur mjög hratt eftir að út í 100 metrana er komið, til dæmis.
Svo eru það menn sem hafa haft B leyfi síðan í gamladaga, fá leyfi svona frekar óvænt, hafa kannski sótt um leyfi vegna þess að það var boðið upp á það þegar þeir skiluðu veiðiskýrslunni, fá lánaðan riffil á síðustu stundu og vita giska lítið hvernig hann virkar, vita jafnvel ekki hvaða kaliber hann er en skotapakkinn sem þeir hafa fengið með rifflinum segir til um kaliberið.
Skotprófið mun jafna þetta eitthvað út og það er vel.
Að síðustu nefni ég að allt of margir koma líkamlega í lélegri þjálfun og eru fljótir að verða ,,bensínlausir".
Varðandi það sem Hrafn spurði um, hvað leiðsögumenn væru að fella mörg dýr eftir mistök hjá veiðimönnum?
Þá er það svo hjá mér að ég er ekki að fella mörg dýr á ári fyrir menn sem hafa klúðrað hlutunum, kannski svona 2-4 af 60-90 á ári, það getur gerst bæði hjá óvönum og lengar komnum, oft fyrir að taugarnar eru ekki nógu sterkar þegar á hólminn er komið.
Hins vegar kemur það of oft fyrir að veiðimönnum mistekst, hitta illa eða ekki, þá kostar það mig mikla vinnu að koma þeim í færi aftur til að klára dæmið, ég geri allt til að menn felli sín dýr sjálfir og gríp ekki í taumana fyrr en málin eru komin í mjög slæman hnút, oftast er það fyrir að veiðimaðurinn gefst upp og getur ekki fylgt særðu dýri eftir vegna lélegs líkamlegs ástands.
Svo er nú líka hægt að nota þetta ,,daginn eftir dæmið" en það er ekki vinsælt, fæstir hafa tíma til þess og veiðlaus dagur hjá mér af þessum orsökum er ekki gjalfrjáls!
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 15 May 2012 12:14
by Gisminn
Enda á dagurinn þinn ekki að vera gjaldfrjáls þar sem þú komst skyttu að dýri rest er í höndum skyttunar ég þekki þetta vel enda leiðsögumaður á annari bráð en sami tilgangur.Ég kem veiðimanni að álítlegum stað mæli með góðri aðferð við að ná bráðini og rest er í höndum veiðimanns og svo get ég gengið frá afla og svoleiðis sé þess óskað.
Re: Reglugerð um verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða.
Posted: 16 May 2012 20:39
by Bowtech
Það er margt óráðið enn, en þetta kemur allt í ljós þegar verklags reglurnar koma fram og gjaldskrá.
Eftir heimildum þá gæti það orðið í næstu viku þangað til held ég að menn ættu að vera slakir.
Ég hef nú verið viðstaddur þar sem var verið að prófa miðað við það sem maður hefur í höndum að þá sýnist manni þetta vera nokkuð einfalt próf svo fremi að þú hafir æft þig aðeins og vitir hvað riffilinn gerir. Það myndi ekki þýða að mæta og ekkert hafa skotið áður. En annars þá finnst mér þetta mjög þarft próf og eins hefur komið fram að þá eru þeir sem ekkert kunna á riffil fleiri en fólk heldur. Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina þega fólk er að koma við á skotvöllum á leiðinni austur á dýr. hitta kannski 2 af 5 á blaðið og segja þetta nógu gott, förum.