Page 1 of 2
Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 12 May 2012 12:29
by T.K.
Af öllum þeim byssum sem þið eigið, hver er sú sem þið notið mest....og af hverju?
Mín er hiklaust Ruger 1022. Hann er reyndar ekkert líkur standard Rugernum, allt meira og minna endurbætt, gikkur, hlaup, bolti.....Er í mjög góðu Thumbhole skepti og Sightron gler toppar þetta uppáhalds verkfæri.
Lèttur og skemmtilegur og alveg nógu nákvæmur fyrir mig á pappann og silúettur. Hlakka til að taka fyrstu skrefin í skotfimi með strákunum mínum með Rugerinn. Líklega mjög góð þjalfun fyrir verðandi riffil skyttur.
Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 12 May 2012 13:05
by Veiðimeistarinn
Krico skíðagönguskotfimisriffillinn minn Húnbogi, ekki spurning.
Það er vegna þess að hann er góður til markskytteríis, mun hentugra að æfa sig á hann en þungu rifflana, þá þarf meiri útbúnað til dæmis heynarhlífar og það er líka dýrara að skjóta úr þeim.
Þeir slá meira og hávaðinn er truflandi, 6,5-284 og 222.
Ég reyni að æfa mig eins lítið á þá og ég kemst af með og nota þess vegna Húnboga meira til æfinga og það kemur mjög vel út.
Ég hleð sjálfur í hina rifflana og er búinn að komast niður á hleðslur sem mér líka, svo ég þarf ekki að vera að prufa hleðslur.
Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 12 May 2012 13:48
by gylfisig
6,5x47 í Sako lás og skepti. Hart hlaup.
Á myndinni er hann með Leupold sjónauka, en er búinn að setja á hann NF 8-32,
Er með heavy varmint skiptihlaup á hann í 6 BR Norma sem ég nota til pappagötunar.
Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 12 May 2012 15:40
by Gisminn
Þetta er Sako 6,5x55 Hunter 85 með Sightron 6-24x50
Treysti alltraf á hann ef aðstæður eru erfiðar = löng færi eða mikill hliðarvindur. þekki hann lang best.
Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 12 May 2012 16:01
by T.K.
Þetta eru fallegir gripir strákar. Hèr er skárri mynd af Rugernum, vonandi skilar hún sér.

Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 12 May 2012 20:21
by maggragg
Ætli ég verði ekki að segja Breyttir Otterupinn minn. Mauser 98 lás með Schultz & Larsen hlaupi eins og margir þekkja í 6.5x55 sem Bóbó tók í gegn. Hlaupbremsa og kvikasilfurstautur þannig að riffillin slær sama og ekkert og maður sér hvar kúlan lendir í gegnum sjónaukann. Sightron 8-32x56 sjónaukir (Nightforce á myndinni) ásamt ýmsum smáfídusum hér og þar til að geta skotið lengra. Er þarna að skjóta 20 lítra brúsa á 600 metrum og var það í mark í fyrsta skoti, reyndar rétt í kantinn á brúsanum en það skal tekið fram að skotið var vel undirbúið með útreikningum og ýmsu og á því lítið sameiginlegt með veiðiskoti

Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 16 May 2012 11:40
by konnari
Sako 85 Hunter Laminated í 300wm er án efa sá riffill sem ég nota mest í veiði, búinn að fara þrisvar eða fjórum sinnum með hann í Hreindýr og hann klikkar aldrei.
Sá riffill sem ég skýt mest úr (fyrir utan 22LR) í dag er hinsvegar Sako 85 Varmint í 260 rem.
Uppáhalds riffillinn er hinsvegar Sauerinn minn S-202 með 2 hlaupum (9.3x62 og 30-06), 2 skeftum (hnota og plast) og 2 sjónaukum Schmidt&Bender 1.5-6x42 (í rekstarveiði) og Schmidt&Bender 2.5-10x56 í allt annað.

Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 16 May 2012 12:39
by Veiðimeistarinn
Ingvar, fottir rifflar ekki amalegt að ,,grípa" svona græjur !!!
Þorsteinn Gisminn, er þetta riffillinn sem þú keyptir í Ellingsen forðum?
Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 16 May 2012 14:28
by Gisminn
Já það Passar
Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 16 May 2012 14:37
by Veiðimeistarinn
Já það er oft hægt að fá góðan díl í Ellingsen!
Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 16 May 2012 15:24
by Gisminn
Já ég er ánægður með riffilinn og ég fékk góðan díl á pakka þarna en ég er búin að losa mig við allt annað sem ég var ekki ánægður með.
Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 16 May 2012 15:28
by Veiðimeistarinn
Nú vaknar forvitnin hjá mér! Hvað losaðir þú þig við?
Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 16 May 2012 15:43
by Gisminn
Byssuskáp sem var altof grunnur fyrir riffil með sjónauka rispar sjónaukana ,Hawke Endurance 30 ir sjónauka.
Svona sem dæmi séu nefnd. Það urðu dálítil leiðindi útaf þessu öllu sem voru svo sett í salt.
Gæti frætt þig nánar í síma

Óþarfi að ýfa vatnið

Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 16 May 2012 15:58
by Veiðimeistarinn
Já, það er eins og mig reki minni til einhverra leiðinda á ónefndum spjallvef

Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 17 May 2012 00:06
by Bowtech
Hjá mér er það Baikal /Remington MP153 hálfsjálfvirk haglabyssa.
Ástæða þess að ég gríp hana er: eina haglabyssan sem ég á og að ég er búinn að sníða skepti á hana sem passar mér og það er ekki fyrir alla að halda henni á eftir það
Var ekki annars verið að tala um byssur almennt

Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 17 May 2012 00:10
by Gisminn
Af myndini að dæma er skeptið svakalega bratt á en er buið að blanda tvem byssum í eina fyrir þig?
Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 17 May 2012 00:18
by Bowtech
Brattin er nú ekki eins mikil núna eins þegar myndin var tekin en er samt mikill, mikið meira en gengur og gerist og búinn að minnka hliðarfærsluna líka. Eitthvað varð maður að gera. þegar maður frekar í hærri kantinum.
Nei þetta er bara ein byssa og Mahony kubbur heflaður og slípaður til, tók 1 ár að fullkomna verkið þangað til maður var sáttur. Enda gert í róleg heitum.. Þú kíkir bara yfir fjallið steini og ég get leyft þér að sjá gripinn

Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 17 May 2012 08:57
by Veiðimeistarinn
Þetta er athyglisvert lag á byssunni hjá þér, ég hefði gaman af að bera svona byssu upp, ég á alltaf í hálfgerðum vandræðum með byssur, skeftið er oftar en ekki, ekki nógu droppað fyrir mig, ég er svo hávaxinn og hálslangur, en þetta er nú kannski ,,to muts".

Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 17 May 2012 09:04
by Bowtech
Já en fyrir mig þá virkar þetta. Það er sama vandamál langur háls, handleggi eins og alpatros.
Veit ekki hvað ég hef mátað marga byssur og enginn hefur komið rétt upp þó að búið hafi verið að bæta við skeptisplötum ofl. Alltaf ofan á öxlum.
Re: Hvaða byssu grípið þið oftast?
Posted: 17 May 2012 09:14
by Veiðimeistarinn
Hvað ert þú hár? Ég er 185 cm.