Page 1 of 2

300win mag

Posted: 13 May 2012 22:46
by Spíri
Nú vantar mig hleðslu fyrir þetta cal. En kúlan sem ég ætla að nota er 165grs Nosler bst. Ég á til þónokkrar tegundir af withavori púðri og er ég með remington magnum primera.
Uppl um hentuga hleðslu eru vel þegnar þar sem ég nenni ekki að fara að fikra mig frá grunni.

Re: 300win mag

Posted: 13 May 2012 22:48
by gylfisig
80 grs af N-165
Federal primer
Þetta er miðað við Lapua hylkin.
Vertu greini neðar ef þú ert með Norma

Re: 300win mag

Posted: 13 May 2012 22:54
by Spíri
Takk fyrir þetta meistari Gylfi, ég er einmitt með norma hylki :)

Re: 300win mag

Posted: 13 May 2012 23:55
by Gisminn
Sæll Gylfi hefur þér fundist þetta algilt með normahylkin samanborið við Lapua eða er þetta sér í 300

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 09:35
by konnari
Það er ekkert óalgengt að 300 wm skjóti 165 gr. kúlu ekkert rosalega vel t.d. fékk ég aldrei minn Sako 85 til að skjóta 165 nosler bt vel þannig lagað.....hins vegar skýtur hann 180 gr. nosler bt og accubond rosalega vel......ef þú lendir í því prófaðu þá 180 gr. kúluna og 76 gr. af N-165 og Norma hylki.

Hér er 5 skota grúbba með 165 gr. accubond sem ég var ekkert rosalega sáttur við en eflaust finnst sumum þetta nokkuð gott og miklu meira en nóg í alla veiði. Formúlan sem ég notaði þar var 79.5 gr. af N-165 og Norma hylki. Nb. Ég klúðraði sjálfur 5 og síðasta skotinu (neðst til vinstri) og hlaupið orðið allt of heitt enda er þetta bara „venjulegur“ veiðiriffill.

Image

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 09:51
by Benni
Málið með Lapua og Norma hylkin í 300 win mag er að Norma framleiddi þau bæði(=

Samkvæmt Kevin West hjá Lapua eru Lapua verksmiðjurnar ekki með búnað til að framleiða beltuð hylki og sömdu við Norma um að framleiða 300 win mag hylkin fyrir sig eftir sinni forskrift svo þau eru ekki eins og Norma 300 win mag þótt Norma framleiddi bæði.

Bara smá svona "useless information" hehe

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 10:40
by gylfisig
Ekki er ég alveg sammála því að 165 grs Nosler bt. geti ekki virkað, eða sé eitthvað vangæf. Nota hana eingöngu í minn TRG, ásamt því að hafa sett hana í þó nokkra riffla, þar með talið, Sako, og hefur öllum líkað hún mjög vel.
Varðandi hylkin, þá á ég bæði Norma og Lapua, í cal 300 og finn greinilegan mun, á því hvað hægt er að setja í hvort hylki.
Það er; ég get ekki sett sama magn af púðri í Norma hylki á móti Lapua.
Hef ekki athugað þetta í öðrum cal. Er það enn í fersku minni, er mjög svo virkur, og umdeildur penni á öðru spjalli óskaði eftir þessum sömu upplýsingum, um 165 grs Nosler í 300 wm.
Ég sagði honum nákvæmlega hvað hann mætti setja max, í hvora hylkistegund.
Nokkrum dögum seinna kom kvörtun frá honum. Hann fór ekki eftir því sem honum var sagt, og fékk þar af leiðandi mikinn yfirþrýsting. Primerinn úr hylkinu, osfrv. Hann taldi sig víst vita betur, þó hann bæði um upplýsingar sem hann fór svo ekki eftir.
'Eg nefni engin nöfn.

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 10:52
by Veiðimeistarinn
Ingvar það er ekkert að þessari grúppu, er hún ekki á 100 metrum? Hún er öll inni á auga á hreindýri ekki slæmt það, fín veiðgrúppa eins og þú sagðir.
Þetta er alveg eins og ég vil hafa þetta hjá þeim veiðmönnum sem ég fer með á hreindýraveiðar, svona 3-4 cm. fyrir ofan miðpungt, að því gefnu að þetta sé á 100 metrum.
Annað mál, ég vara við að nota Nosler accubond í bógskot á hreindýr, af því að kúlan er kápulímd það heldur hún svo vel þyngdinni gegn um dýrið mikið aflöguð með vængi og beitta anga út frá kjarnanum skemmir hún mikið ef hún lendir á beini í bógnum.
Ég hef séð útskotshlið á framparti á 90 kílóa tarfi nánast ónýta, eftir að hafa fengið 140 gr. accubond gegn um bógbein í innskotinu.
Nosler ballistic tip er betri að því leiti að hún er meiri vargur, ekki límd í kápuna og sundrast algerlega þegar hún hittir dýrið og missir alla þyngd og skriðþunga þegar hún hittir en gerir samt fullkomlega sitt gagn dýrið er náttúrlega jafndautt enda eru hreindýr ekki skotharðar skepnur.
Ekket finnst nema kúlubotninn með einhverjum tægjum af hliðarveggnum (oft í holdrosanum við útskotið, Gylfi).
Accubond er hins vegar fín í haus, háls eða lungnsakot þvert vel aftan við þóginn.
Afsakið að ég skuli koma með þennan fyrirlestur á þræði um hleðslu :roll:

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 11:00
by Gisminn
Ég spurði því ég er að sjá fyrstu þreytumerkin í þessum hylkjapartýi Lapua og var para að spá í að fylla upp á móti því sem ég hendi með Norma hylkjum finnst þaug svo svakalega lík.
En ég ætti kannski að prófa að fylla upp í topp á tvem og sjá hve mikill munur sé á rummáli.
Og ef rúmmálið er minna í Norma ætti ég þá að minka hleðsluna sem því næði ?

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 11:01
by Gisminn
Sæll Sigurður öll fræðsla er af hinu góða :-)

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 11:20
by Benni
Sæll Þorsteinn ég myndi ekki blanda þeim saman, ef þú ert að tala um 6,5x55 myndi ég skjóta á að Norma hylkin séu 20-30 greinum þyngri en Lapua hylkin og hafa því minna rúmmál.
Auk þess eru Norma yfirleitt með mikið mýkra brass en Lapua og þola því þrísting ekki eins vel og önnur hylki þótt þau séu þykkari.

Það er yfirleitt ekki gott að blanda saman tegundum af hylkjum því bæði mismunandi þyngd og hersla í brassinu hefur mikið að segja um hvaða hleðslu þau þola.

Viktaði um daginn til gamans hylki í 22 Hornet og voru Sako hylki heilum 20 greinum þyngri en Winchester sem mér þótti ótrúlegt í ekki stærra hylki enda var 9 greina púðurhleðslan nánast að fylla Sako hylkin en náði bara í botninn á hálsinum á Winchester hylkjunum

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 11:21
by konnari
Sælir drengir !

Eins og áður sagði þá tel ég alls ekki að 165 gr. sé eitthvað ónothæf í 300 wm eins og myndin að ofan sýnir (5 skot á 100 metrum) þá er nákvæmnin ágæt.....þetta fer eflaust eftir rifflum en 165 gr. kúlan er bara of stutt í minn riffil.....sem dæmi þá er 180 gr. sirka 0.2mm frá rillum hjá mér og þá er heildarlengdin 91.7mm ! Ég mældi skothúsið í tæpum 92mm og þá var 165 gr. kúlan að detta út úr hylkinu :lol:

Hér kemur svo mynd af kúlum sem voru teknar úr törfunum okkar í fyrra....kúlan vinstra megin er 180 gr. Nosler accubond úr mínum 300 wm (hálsskotin), kúlan fannst milli herðablaðanna og kúlan hægra megin er 130 gr. Nosler bt út 270 win (bógskot).

Image

Það er óhætt að segja að myndin sé skólabókardæmi þ.e. Accubondinn kjarninn og kápan hanga saman og bt kúlan sundrast og bara tóm kápan eftir.

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 11:28
by Gisminn
Takk fyrir þetta Benni og jú ég var að tala um 6,5x55 en ég nota þá bara norma hylkin fyrir 100grn Noslerinn en Lapua fyrir flugskeytin :-)

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 11:35
by Spíri
Tek undir með Sigurði veiðimeistara varðandi nosler bst, hvað hún sundrast fljótt. Hef marg oft prufað að raða plast brúsum fylltum af vatni saman og fara accubond kúlurnar í gagnum fleiri brúsa heldur en bst kúlan. Bst kúlan fer yfirleytt ekki í gegnum fleir en þrjá fimmlítra brúsa af vatni. Mismunandi reyndar eftir cal. Og færunum.

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 11:52
by Veiðimeistarinn
Ingvar, eru báðar kúlurnar hægra megin :?: :o

Spíri, mesti munurinn á skriðþunga kúlnanna Nosler ballistic tip og accubond fer eftir þyngdinni, séstaklega bt kúlan, því léttari því fyrr springur hún og tapar þyngdinni.
Þess vegna nota ég aldrei þyngri kúlur en 100 gr. en það er 6,5-284 og hentar í minni kaliberin.
7 mm. og 30 cal. eru efiðari hvað þetta varðar og er þar helst um að kenna bæði kúlu úrvali og þessi caliber eru að stabílsera svo léttar kúlur frekar illa.
Veit ekki hvort hægt er að fá minni Nosler bt og accubond kúlur en 120 gr í 7 mm. en veit að það er hægt að fá V-MAX í 30 cal. sem hefur verið að koma bísna vel út merkilegt nokk.

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 11:57
by konnari
Ó sorry ! :D Vinstra megin er Accubond og Hægra megin Bt.

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 12:04
by Veiðimeistarinn
Já mér sýndist það svosem....fittar við það sem ég var að bögglast við að segja í löngu og kannski leiðinlegu máli hérna í morgun 8-)

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 12:08
by Spíri
Passar Sigurður, ég er að nota 120 grs bst í 6,5x55 á móti 125 grs accubond í sama cal ;)

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 12:41
by Veiðimeistarinn
Þórður, hefur þú prufað 100 gr. ball.tip ? Svo er líka til 95 gr. V-MAX hún er ekki til í 100 gr. en hefur verið að koma betur út hvað nakvæmni varðar heldur en 100 gr ball. tip hjá mér, en verkunin er sú sama þegar þær koma í bráð!

Re: 300win mag

Posted: 14 May 2012 13:57
by gylfisig
Ég er sammála þessu með Nosler. Accubond hef ég aldrei skotið, og þekki þar af leiðandi ekki, hvernig hún fer með hreindýr, en hef enga ástæðu til að rengja Sigurð.
Varðandi hylki, og endingu þeirra: Gisminn, það er ágætt að renna vír með 90 gráðu beygju, ofan í tómt hylki. Sé hylkið orðið slitið, finnurðu fyrirstöðu neðst. Þar springa hylkin í sundur, séu þau farin að slitna. Oft sést þetta utan frá sem bjartur hringur neðst á viðkomadi hylki.
Varðandi upphafsfyrirspurn þráðarins, þá vil ég benda á, að þegar hlaðin eru skot fyrir veiði, þá ætti alls ekki ap láta kúlu vera í, eða rétt við rillur.
Ég er búinn að sjá Nosler part. nosler bt. sierra gameking, og líklega einhverjar fleiri teg. sem farið hafa í gegnum hreindýr, og eru líklega ljótustu götin eftir Nosler Partition sem skotið var neðst í háls á belju úr 30,06. Man að það var nánast hægt að stinga hendi í gegnum háls dýrsins.
Sjálfur hef ég skotið sams konar kúlum úr 6,5-284 en einungis í haus.
Sierra Gameking fór frekar illa með tarf sem kunningi minn skaut úr sama riffli.
Þannig að... líklega er Nosler bt, eins og Siggi hefur lengi tuðað um :D .. jafnabesta kúlan á hreindýr.
En þetta er orðið talsvert út fyrir upphafsspurninguna.