Page 1 of 1

formun á 6.5-284 hylkjum

Posted: 18 May 2012 10:14
by Maggi
Sælir

Þið sem eruð að skjóta 6.5-284, hver er ykkar reynsla á hversu oft þarf að full forma hylkin?

Ég er að skjóta 123 Scenar með 53grs MRP og 120 BT með 53.7grs MRP, en báðar þessar hleðslur eru nokkuð undir hámarki. Hylkin eru frá Lapua.

Ástæðan fyrir þessum pælingum er nú aðallega forvitni.

kv
Maggi

Re: formun á 6.5-284 hylkjum

Posted: 18 May 2012 11:14
by Veiðimeistarinn
,,Ég spyr nú bara eins og fávís kona" þetta er frasi úr sveitinni í gamla daga. Hvað er að fullforma hylki? Spurt er ,,hversu oft þarf að full forma hylkin". Til hvers þarf að fullforma? Spyr sá sem ekki veit!

Re: formun á 6.5-284 hylkjum

Posted: 18 May 2012 11:19
by Maggi
Blessaður Sigurður

þar á ég við full-size og neck-size
þeas forma allt hylkið eftir notkun eða bara hálsinn.

kv
Maggi

Re: formun á 6.5-284 hylkjum

Posted: 18 May 2012 11:44
by Veiðimeistarinn
Já auðviðað hvernig læt ég, takk fyrir þetta Magnús.
Ég svosem tel ekki hvað ég forma hylkin oft, ég er með 6,5-284 og Lapua hylki fullsizaði þau einu sinni, síðan hef ég nekksizað þau að minnsta kosti sjö sinnum eða svona átta til tíu sinnum alls, sennilega níu sinnum!
Þessi hylki eru ekki farin að ganga mikið úr sér, ég hef að vísu ekki farið með vinkilvír ofan í hylkin að athugað hvort það sé komin brún í þau, en örfá hafa eyðilagst, öll með sprungin háls svona 4 til fimmaf sextíu hylkjum sem ég nota en bara alveg undir það síðasta.
Ég er að setja í þau fyrst 59 gr. af N560 púðri og núa seinni tíman 6o gr af N560 en alltaf 100 gr. kúlur og 95 gr. líka, þetta gefur hraða upp á um 3400 fet per sekund og þar af leiðandi dálítinn þrýsting þó það garði ekki primerinn en fletur hann aðeins út.

Re: formun á 6.5-284 hylkjum

Posted: 18 May 2012 16:41
by gylfisig
Komdu sæll Magnús.
Þegar þér finnst orðið stíft að loka á hylkin, þá er kominn tími á að full sæza þau.
Sum hylki þarf aldrei að fullþrenga, sbr 300 wm hylkin mín í TRG. Hef aldrei þurft að fullþrengja þau.
Mér virðist þetta misjafnt milli hylkja. Það getur verið kostur að vera með svo kallaðan "body die" til að renna hylkjunum upp í.
Hann þrengir þá ekki hálsinn, því ég vil einmitt ráða því hvað ég þrengi hálsinn mikið með bushingum sem ég vel í diann sem ég nota. Gæti verið skynsamlegt að eiga body die lika, þegar menn eru að nota bush die til að stjórna þrengingunni.Einnig getur verið samspil milli frekar "heitrar " hleðslu, og stífleika, þ.e. ef þú minnkar pressuna, þá er minni hætta á að það verð stíft að loka á hylkið. En eins og áður sagði; full þrengdu þegar það er orðið stíft að loka á hlaðið hylki.

Re: formun á 6.5-284 hylkjum

Posted: 18 May 2012 23:11
by kúla
Komdu sæll maggi ég er að nota 6,5x284 og er að fara að skjóta
úr lapua patrónum í 5 skifti aldrei stíf
er með tikku út rímaða

Re: formun á 6.5-284 hylkjum

Posted: 18 May 2012 23:25
by Maggi
Sælir og takk fyrir góð svör

Ég er með Lapua hylki sem búið er að nota í hleðsluprófanir frá mildum og uppí heitar hleðslur. Ég rakst á það að einstaka hylki var örlítið stífara í riffilinn en hin eftir aðeins 2 hleðslur. Væntanlega hylkin sem fengu hvað heitastu hleðsluna. Ég eyddi kvöldinu í kvöld í að full forma og trimma þau öll.

Niðurstaðan úr prófunum var eftirfarandi:
Lapua Scenar 123grs - 53.0grs MRP - 80.0mm
Nosler BT 120grs - 53.7grs - 79.0mm

Fyrir var ég búinn að prófa Nosler BT 100grs og 120grs með N560, Hornady A-max 123 með MRP og N560. Margt af því var ágætt en Scenarinn og Noslerinn skara greinilega framúr í mínum riffli með MRP púðri. Riffillinn er Jalonen með 1:9 tvist.

kv
Maggi

Re: formun á 6.5-284 hylkjum

Posted: 18 May 2012 23:38
by Veiðimeistarinn
Takk fyrir þetta Gylfi, það er orðið stíft að loka mínum Mauser 98 á hlaðin hylki, þá fullþrengi ég bara næst og þá kemur í ljós hvaða hylki eru orðin léleg, við næsta skot hljóta að koma rifur i hálsinn á þeim sem eru orðin léleg.