Page 1 of 1
Hleðsla fyrir 155 grs A-max í cal 308
Posted: 18 May 2012 21:23
by Alexíus
Sælir spjallverjar
Er einhver sem hefur verið að hlaða 155 A-max frá Hornady í 308 ? Ég er með N-140 og N-150 og eitthvað af N-540 til að prufa. Er með Savage model 12 með 26" hlaupi og 1 : 10 twisti. Allar upplýsingar vel þegnar.
Með fyrirfram þökk
Alexíus Jónasson
Æðey
Re: Hleðsla fyrir 155 grs A-max í cal 308
Posted: 22 May 2012 11:23
by Alexíus
Sælir spjallverjar
Það væri kannski nær að spyrja hvort einhver hér sé að hlaða í 308 , það virðast flestir hér spila í 6.5mm deildinni

Re: Hleðsla fyrir 155 grs A-max í cal 308
Posted: 22 May 2012 12:08
by Benni
Báðir 308 rifflarnir sem ég hef átt (Tikka varmint og Rem 700) voru að skjóta 167 scenar og 168 matchking best af öllum kúlum báðir með 11" twisti.
prufaði aldrei 155gr Amax en fiktaði töluvert með 155 scenar með mismunandi árangri, suma daga skaut hleðslan mjög vel og svo næsta ekkert sérstaklega meðan 167-168gr kúlurnar voru mikið jafnari í báðum rifflum
Re: Hleðsla fyrir 155 grs A-max í cal 308
Posted: 22 May 2012 12:51
by GBF
168gr MK með 44.5gr af N-150 kemur vel út í mínum, og einnig 150gr GK með 46.5gr af N-150.
Georg
Re: Hleðsla fyrir 155 grs A-max í cal 308
Posted: 22 May 2012 13:18
by Veiðimeistarinn
Alexíus, 150 gr. kúlur upp í 168 gr. eru fínar fyrir markskitterí. Ég get ekki ráðlagt þér neitt um hleðslur á svona þungum kúlum vegna þess að ég hef aldrei hlaðið svo þungar kúlur.
Ég hleð bara fyrir einn vin minn í 308 og á einhversstaðar uppskrift fyrir hleðslu á 110 gr V-MAX sem ég nota eingöngu.
Þú ættir að prufa líka 110 gr. V-MAX kúluna frá Hornady, hún hefur verið að koma á óvart með nákvæmni úr 308, hún er alveg upplögð á hreindýraveiðar ef riffillin stabíliserar hana á kringum 3000 fet pr. sek. niður í tommu grúbbu!
Þess vegna er gott að vera búin að prufa hana ef ske kynni að þú færir einhverntíman á hreindýr
