Page 1 of 2
Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 24 May 2012 11:41
by maggragg
23. gr.
Verkleg skotpróf fyrir hreindýraveiðimenn og leiðsögumenn.
Umhverfisstofnun heldur verkleg skotpróf fyrir hreindýraveiðimenn og leiðsögumenn samkvæmt 11. mgr., sbr. 8. og 9. mgr. 14. gr. laga, nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Umhverfisstofnun innheimtir gjald vegna verklegs skotprófs í samræmi við 11. mgr. 14. gr. laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Gjaldið skal vera kr. 4.500.
GJALDSKRÁ fyrir verkefni og þjónustu Umhverfisstofnunar.
http://stjornartidindi.is/Advert.aspx?I ... 414ced3b5d
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 24 May 2012 12:28
by iceboy
Ætli þetta gjald sé allt sem þarf að borga eða þarf að borga t.d fyrir aðgang að skotsvæðinu?
T.d kostar að mig minnir 2500 kr fyrir utanfélagsmenn að skjóta í álfsnesinu
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 24 May 2012 13:27
by Benni
Sælir ég var svo forvitinn að ég hringdi í umhverfisstofnun og spurði að þessu og skv þeim er 4500 kallin heildar upphæðin og tekur umhverfisstofnun 500krónur fyrir umsýslu og skotskífur og 4000kallinn fer til skotfélagana.
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 24 May 2012 13:54
by Gisminn
Þarna kemur þyrnirinn sem ég hef áður bent á.
4000 er í sjálfu sér ekki mikið ef þetta væri kostnaður fyrir skotfélagið en þetta er ekki kostnaður fyrir skotfélagið nema að litlu leiti.
Ef ég ætti að giska má útfæra kostnað uppá 1000kr Nýan bakgrunn eftir x tíma en skotskífurnar eru skaffaðar af UST en hitt er styrkur til félagana.
Ef skotfélag mun reyna að nota það sem rök að laun á tíma séu x mikil er það í flestum tilfellum kjaftæði því skotfélög eru byggð upp í sjálboðavinnu . Og síðast þegar ég vissi var sjálfboðavinna í þágu félags einmitt til að efla og styrkja sitt félag.
Um leið og skotfélag fær samþykt að tíminn sé miðaður út frá launuðu starfi er hæg heimatökin að hækka á hverju ári og bera fyrir sig hækkun launavísitölu.
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 24 May 2012 14:17
by Aflabrestur
Sæll Steini.
Ætlast þú til að ég mæti á völlin frítt fyrir þig til að fara í skotpróf????? við skulum athuga það að ég er seldur út á 5700- kr á tímann í vinunni fyrir utann skatt og vekfæragjald, ég þarf svo að koma mér á svæðið og fl. hvort ég gef svo mínu félagi mína vinnu er svo mitt val. Við skulum gá að því að við hér á mínu svæði erum að gera þetta af áhuga einum samann, Það er heldur ekki sjálfgefið að við nennum yfirhöfuð að standa í þessu og fá ekkert nema skammir fyrir.
Og þá þarftu suður eða á Akureyri ef þér finnst það betra.
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 24 May 2012 15:19
by Gisminn
Ef þú rukkar skotfélagið um tímakaup er þetta besta mál en ef þú gefur vinnuna þína en ætlast til að ég borgi skotfélaginu samt tímakaupið þitt er það gjörsamlega allt annar handleggur.
Eins og ég sagði það er kjaftæði að þú rukkir skotfélagið um þetta tímakaup það vitum við báðir.
En það má leysa þetta þú getur selt út tímann þinn og ég er sáttur við það og svo gefið skotfélaginu afraksturinn mig varðar ekkert um það en skattmann yrði sáttari því skotfélög eru ekki góðgerðarstofnun.
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 24 May 2012 15:57
by TotiOla
Ef ég skil þig rétt, Þorsteinn, þá er ég að vissu leyti mjög sammála þér.
Hver er kostnaður skotfélagsins umfram venjulega opnun? Væri ekki maður frá félaginu á staðnum hvort sem skyttan er að skjóta á pappa sem hann kom með sjálfur eða pappa sem kominn er frá UST?
Auðvitað er í góðu lagi að styrkja þau frábæru skotfélög sem opin eru fyrir því að halda þetta skotpróf og stytta vegalengdir fyrir þá sem annars þyrftu að sækja prófið lengra. Það er hinsvegar hættulegt að fara að horfa á þetta sem nýjan tekjustofn.
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 24 May 2012 16:23
by Gisminn
Þú skilur mig rétt en það má samt ekki mistúlka það að ég sé á móti skotfélögum eða fyrst þetta próf se komið til að vera eru sennilega skotfélögin best til þess fallinn að framkvæma ptófin vegna þeirrar aðstöðu sem þau hafa. Sum félög eru ekki með fastan mann á staðnum heldur opnunar tíma eða hægt að óska eftir opnun.
Ég hef ekkert á móti að borga útlagðan kostnað en ég hef mikið á móti því að vera að borga ímynduð laun sjálfboðaliða þá er þetta orðið enn eitt styrkjarformið og eins og ég sagði fyrr hægt að hækka því styrkjaformið væri launatengt.
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 24 May 2012 21:34
by Aflabrestur
Sælir Strákar.
Ég bara nenni ekki að munnhöggvast við ykkur um þetta hér.
Ef þið vilji ræða þetta eh. frekar þá er síminn 8691759
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 24 May 2012 22:45
by TotiOla
Sæll Jón
Við skulum alveg sleppa því að munnhöggvast

Leyfum því að einskorðast við ónefnt spjallborð. Við getum hins vegar rætt þetta í rólegheitum og virt viðhorfs hvors annars. Jafnvel gengið svo langt að læra af hvor öðrum. Ég er allavega hér til þess að auka þekkingu mína og miðla þeirri litlu reynslu sem ég hef.
Ég skil til dæmis vel sjónarmið þitt ef til þess kemur að skotfélag þitt þarf að auka við opnunartíma eða þjónustu í kringum þessi próf. Ekki þekki ég nógu vel til starfsins sem fram fer í skotfélögum til þess að geta metið það hvort til þess kemur. Ef þú getur þá mættir þú endilega upplýsa mig aðeins um það, ef það er á annað borð komið á hreint.
Ég gæti sjálfur séð fyrir mér að utanfélagsmenn eins og ég borguðum fullt gjald (4.500 kr.) en félagsmenn skotfélaga fengju 50% afslátt af þeim gjöldum sem á annað borð ganga til viðkomandi skotfélags og greiði þá 2.500 kr. Hvernig litist ykkur á þá tillögu?
Svo gæti maður líka bara hætt að eyða tíma og orku í þessar pælingar og greitt bara uppsett verð...? En það væri ekkert skemmtilegt.

Þá hefðum við ekkert til þess að ræða um.
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 24 May 2012 23:52
by Gisminn
Ekki langar mig að munnhöggvast eða vera með leiðindi út í jón og ég á örugglega eftir að fá hann í kaffi eða ég að skreppa yfir fjallið og þá ræðum við þetta örugglega í mesta bróðerni en eitthvað segir mér að við verðum kannski ekki sammála en það á líka ekki altaf að vera sammála og það hefur líkastundum skilað millilendingum sem hafa reynst mjög vel.
En það er 6 gr í reglugerðini sem þú settir inn Þórarinn sem ég er að hnýta í.
http://stjornartidindi.is/Advert.aspx?I ... 092e9b6d99
6. gr.
Prófgjald.
Umhverfisstofnun er heimilt að innheimta gjald fyrir verklegt skotpróf. Gjöld skulu aldrei vera hærri en sem nemur rökstuddum kostnaði við veitta þjónustu. Gjald fyrir verklegt skotpróf er tilgreint í sérstakri gjaldskrá Umhverfisstofnunar. Gjald fyrir verklegt skotpróf fæst ekki endurgreitt.
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 25 May 2012 09:06
by maggragg
Þetta er áhugaverð umræða. Ég get ekki verið hlutlægur í þessari umræðu þar sem ég er að vinna í að koma upp skotsvæði fyrir skotfélagið okkar og ég er ekki með hreindýr á þessu ár heldur.
Hvað verðið varðar þá myndi það kosta utanfélagsmann 1.000 kr. að fá að nota riffilbrautina á svæðinu en mér skilst að það sé lítið verð miðað við sum skotfélög. Þetta er verið fyrir þá þjónustu að nota brautina og er ein af fjáröflunarleiðum félagsins enda dýrt að koma upp skotæfingasvæði, sérstaklega í upphafi.
Að mínu mati er eðlilegt að félög rukki meira fyrir meiri þjónust eins og að menn fái aðgang að brautinni og svo prófdómara til að fara í gegnum prófið. Hversu mikið meira veit ég ekki samt.
Félagsgjöld og svo notkunnargjöld af aðstöðunni er helsta tekjulind skotfélagana og að sjálfsögðu vinna félagsmenn allt í sjálfboðavinnu í þágu félagsins. Núna eru fjórir prófdómarar hjá Skyttunum sem eru tilbúnir að fara á skotvöllinn til að fara í gegnum prófin með mönnunum og gera menn þetta af með glöðu geði m.a. í þágu félagsins því að við viljum jú geta boðið uppá betra skotsvæði og betri þjónustu.
Menn eru ekki sammála um þessi mál, það er á hreinu. Það eru mismunandi hagsmunir sem ráða. Þessar reglur voru setta á af UST og ráðherra og þeir ákváðu gjaldið en eins og Þorsteinn bendir á þá á það ekki að vera meira en rökstuddur kostnaður. Þetta er svolítið snúið.
Mér skilst að það kosti fyrir utanfélagsmann 2.500 kr. að nota riffilbrautina á álfsnesi. Það er þá rökstutt að það kostar minnst 2.500 að taka prófið. En þessi 2.500 kr. er aðeins fyrir riffilbrautinni. Er ekki eðlilegt að ef skotfélagið býður uppá meiri þjónustu en þessi 2.500 kr. eru fyrir að þá kosti það eitthvað meira? Væri það ósanngjarnt gagnvart öðrum sem ætla sér aðeins að notfæra sér riffilbrautarinnar án frekari þjónustu að borga það sama og þeir sem fá þessa auknu þjónustu ( ef þetta telst aukin þjónusta )? Það er allveg mögulegt að rökstyðja þetta verð á Álfsnesi.
En hvað með eins og hjá okkur og fleirrum skotfélögum úti á landi. Ef það kostar 1.000 kr að nota rifflibrautina, hvernig eru þessar auka 3.000 kr. rökstuddar? jú eitthvað fyrir aukna þjónustu en með hitt?
Þá kemur annað sjónarmið inn í þessar pælingar. Geta skotfélögin boðið mismunandi verð á þessu eins og þau vilja? Væri það ekki orðið mismunun eftir búsetu, þar sem mönnum er skylt að taka þetta próf fyrir ákveðinn tíma ef þeir ætla að skjóta á hreindýr. Það væri held ég ekki hægt að mismuna fólki á þann hátt. Að sá sem er staddur fyrir austan borgi kannski bara 2.500 kr. meðan sá sem býr í RVK borgi 4.500. Það myndi sennilega ekki standast jafnræðisregluna þar sem um opinbert gjald er að ræða.
Þetta er svona má innleg og hugleiðing inn í þessa umræðu en það er held ég erfitt að meta hvað er rökstuddur kostnaður. Það er jú ekki hægt að fara fram á það að félögin rukki minna fyrir þetta en þau rukka fyrir brautina öllu jöfnu, og svo er það mín skoðun að fyrir þetta aukna viðvik sé eðlilegt að þau taki aðeins meira, en hversu mikið væri eðlilegt veit ég ekki. En eins og ég segi er ég ekki hlutlægur í þessu enda í stjórn skotfélags sem er í erfiðasta fasanum akkurat núna við að setja flottasta skotsvæði landsins á laggirnar

Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 25 May 2012 15:38
by Veiðimeistarinn
Ég hef ekkert við þetta verð að athuga, það kom mér á óvart hvað það er lágt miðað við margt annað í þessum geira.
Veiðikortið er það ekki 3500 kr. þar er ekkert gert nema prenta út skirteinið og síðan er rukkað fyrir að senda mér það í pósti.
Byssuleyfið er 5000 krónur og það þurfum við að punga út með í hvert skipti sem við kaupum vopn og þurfum að bæta því inn á skírteinið, eigum ekki val!
Við eigum þó val um hvort við sækjum um hreindýraveiðileyfi
Mér finnst ekki mikið að borga skotfélaginu 4000 krónur fyrir að prófa mig í skotfimi, ég er mest hissa á að UST telji það nóg að fá 500 krónur upp í sinn kostnað, miðað við til dæmis veiðikortin.
Fyrst tekin var sú ákvörðun að láta taka þetta próf á skotsvæði á annað borð er þessi kostnaður eðlilegur.
Skotsvæði eru dýr í uppbyggingu og ekki eðlilegt að þar geti hver sem er komið og notað þau fyrir ekki neitt, auk þess þarf að kalla út menn til að annast prófið og pappírsvinnuna kring um það, athugið að núna fyrir veiðitímann er hægt að afgreiða leyfishafa í kippum, en eftir að veiðitíminn er byrjaður og farið að úthluta af biðlistanum verður þetta mest maður á mann, auk þess sem alltaf verða einhverjar eftirlegukindur af þeim sem eru þegar komnir með leyfi og komast ekki á auglýstum tímum.
Athugið að byssuleyfið er gefið út af lögreglu sem annast það með öðrum störfum og svo er einnig um veiðikortið.
Eins og ég sagði í þræði hérna m daginn var nauðsin að koma þessu skotprófi á.
http://spjall.skyttur.is/hreindyr/reglu ... -t347.html
Það er með þetta eins og margt annað, ,,það eru rónarnir sem koma óorðinu á brennivínið"

Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 25 May 2012 23:07
by reynirh
Hvaða bull er þetta í ykkur strákar? Menn meiga ekki halda að við sem erum í skotfélögum ættlum að fara vinna í sjálfboða vinnu fyrir þriðja aðila.
Við gefum okkar vinnu til skotfélagsins, en þegar að þriðji aðili þarf að nota okkar aðstöðu hvort sem hann er félagsmaður eða ekki og þarf að fá mann frá félaginu þá borgar hann fyrir það og sjálfboðaliðinn lætur þá borgun renna til félagsins.
Kv Reynir Hilmarsson Húsavík.
ps mér finnst þetta gjöf en ekki gjald.
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 25 May 2012 23:42
by Gisminn
Sæll Reynir minn og hvernig ætlar þú að útfæra þetta fyrir skattinum ?
Ætlar þú að rukka félagið um x tölu og gefa því svo það aftur og borga skattinn sjálfur af x laununum þínum eða ætlaru að gefa vinnuna? Og ef það er svo þá segir það sig sjálft að ókeypis vinna (sjálfboðavinna) er ekki útlagður kostnaður fyrir félagið ekki satt ?
Þriðji aðili eða ekki þá er þetta prinsip mál að það á ekki að nota þetta nýja gjald sem styrkur til skotfélaga heldur á sannarlega að borga fyrir sannarlegan útlagðan kostnað.
Ps það er satt þetta er gjöf til skotfélagana
Svona svo ég tali nú bara hreint og beint út. Mér sýnist sannarlega að skotfélöginn ætli sér að mjólka þessa nýfengnu fjáröflunarleið og það þykir mér mjög miður.
Og svo ég sendi smá sneið til Sigurðar til að hugsa um þá er það einmitt það sem kom fyrir veiðikortið veiðikortið er orðið bákn í bákninu og styrkir sjálft sig með okkkar peningum og aðal kostaðarliður þess eru laun til umsýslu og útprentana og yfirlestrar á reglugerðum í reglugerðarverkinu sem það sendi ráðherra til að semja nýja reglugerð sem þarf að fara yfir.
Þetta getur leikandi orðið það sama uppi á teningnum með prófgjaldið ef við samþyggjum órökstuddar launakröfur og óútskýrða kostnaðarliði.
Eins og var komið inná þá er iðnaðarmaðurinn 5700 fyrir vask og slíkt en eftir 2 ár ca 10,000
og próftökugjaldið kannski orðið 11.000 eða meira vegna launavísitölu og hækkana á umsýslugjöldum og ég veit ekki hvað.
Eiga hreindýraveiðimenn að borga uppbyggingu skotfélagana ?
Helduru að við sem gædar kæmust upp með að hækka prísinn á gædinu af því að okkur vantaði eða langaði í bakk kastara eða 180°kastara á bílana okkar og viljum loftpúða í staðin fyrir fjaðrir kengúru grind framan á stuðarann . Ég bara tek svona sem dæmi því við gætum alveg rökstutt þetta sem kostnað þrátt fyrir að við vissum báðir að þetta væri nú ekki það bráðnauðsinlegasta.
En eins og ég sagði í upphafi og vil ítreka þetta snýst ekki um að vilja ekki borga fyrir kostnaðinn sem af prófinu hlýst heldur er það prinsip mál að það sé ekki verið að búa til nýtt styrkjakerfi fyrir skotfélögin.
Menn velja að ganga í þau og borga félagsgjöld og önnur gjöld svo geta skotfélögin eins og Magnús benti vel á reynt að lokka fleyri til sín með alskonar afsláttum eða fríðindum.
Menn verða að staldra við og spyrja sig hvort þetta nýja próf hafi verið sett til að fækka særðum og illa skotnum dýrum eða var þetta sett upp sem styrktarkerfi fyrir skotfélögin ?
Eins og ég benti á með 6 Greinina hér fyrr með að ekki mætti rukka meira en rökstuddan kostnað og mér sýnist þá skotfélögin ættla að rökstyðja það með launakostaði en það er bara svo rangt af þeim.
Réttlætiskendin alveg öskrar alveg mörg ljót orð.
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 26 May 2012 00:18
by maggragg
Bara til að halda því til haga þá hafa skotfélögin ekki heimild til að víkja frá gjaldskrá Umhverfisstofnunar en skotfélögunum er hinsvegar heimilt að neita að bjóða uppá þessi próf.
Hvað sem mönnum finnst um þetta gjald og þetta próf þá hafa þýðir ekki að agnúast í skotfélögin. Þau verða að innheimta þetta gjald eða sleppa þessu allveg.
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 26 May 2012 00:30
by Gisminn
Satt Magnús þau meiga ekki rukka hærra gjald en mega taka lægra eða eins og ég skil það sem nemur útlögðum kostnaði.
En ég er allavega búin að koma minni skoðun og sannfæringu á framfæri og vil samt vona að menn taki því bara þannig því þetta er ekki sett fram til að vera með leiðindi heldur vill ég segja þetta strax í staðin fyrir að þegja eða hælbítast og síðar þykjast hafa sagt þetta allt og varað menn við hættuni.
Svo þetta er gott í bili nema að mér verði beint spurningar.
Óska öllum hið besta.
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 26 May 2012 00:38
by maggragg
Enda hafa allir rétt á að koma skoðunum sínum að
En til að það sé allveg á hreinu þá geta skotfélögin hvorki hækkað né lækkað gjaldskránna. Það kemur skýrt fram í samningi sem gerður er milli framkvæmdaraðila (skotfélags) og UST að ekki megi víkja frá gjaldskrá UST.
Fyrir utan þennan samning þá er þessi gjaldskrá auglýst í stjórnartíðindum og því um opinbert gjald a' ræða fyrir þessu þjónustu.
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 26 May 2012 00:52
by Aflabrestur
Sæll Steini.
Leitt að þú lítir svona á þetta og metir vinnu okkar fyrir félöginn ekki meira. Ég er búinn að eiða nokkur hundruð klst á ári síðust árinn í að bygga upp aðstöðu til að þetta sé framkvæmanlegt yfir höfuð.
En ég skal gera þér díl þú kemur og vinnur á vellinum hjá hjá okkur frítt í sjáfboðavinnu 3 tíma og ég skal taka þig í skotpróf frítt í sjálfboða vinnu eða greiða það sem þarf úr eiginn vasa.
Hvað gjaldið varðar þá höfum við ekkert um það að segja, þetta er ákveðið af ráðuneyti líkt og gjaldið fyrir skotvopnanámskeiðið hef ekki heyrt neinn skammast yfir 5000- kallinum sem við fáum fyrir umsjón með verklega hlutanum af því og hann hefur ekki breyst í manna minnum, en kænski við ættum að gera það frítt líka!!!!!!.
Að við séum að maka krókinn á þessu held ég að sé fjarstæða ég væri alveg til í að gera eh. annað við minn tíma ss. skjóta sjálfur, en ég lít á þetta sem vissa skildu okkar við félaga okkar sem ætla á veiðar að veita þessa þjónustu á heimaslóð og menn ættu ekki að lýta á það sem sjálfgefið að einhver fórni sinum frítíma í þetta, ég geri það til að styrkja mitt félag og hef lúmskt gamann af því að vinna fyrir það, auk þess sem ég fæ vonandi kynnast nýum og skemmtilegum veiðimönnum sem gerir þetta þess virði.
Af hverju er þitt heimafélag ekki með í þessu ferli?????
Svona riffil aðstaða eins og við höfum að bjóða kostar eflaust eh. tugi millls í dag + starfsfólk og ef hið opinbera ætti að sjá um þetta væri kostnaðurinn við þetta próf eflaust einu 0 hærri en er nú þegar. Þessi aur er dropi í hafið rekstri svona félags, bara miðað við tímann sem ég er búinn að eiða í þetta nú þegar þá þarf ég að prófa ansi marga til að koma út í plús.
Að lokum þá er á það að líta að okkur í félogonum ber enginn skilda til að veita þessa þjónustu og er ég að sumu leiti farinn að sjá eftir að hafa gefið mig í þetta og hugsa að ég geri það ekki að ári.
Re: Gjald fyrir verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða
Posted: 26 May 2012 01:14
by Gisminn
Sæll Jón ég met vinnu ykkar mikils og dreg kostnaðin við uppbygginguna ekki í efa né sé ég neitt athugavert við inntökugjaldið né félagsgjaldið ykkar. Og ég er alls ekki að agnúast út í skotfélögin sem slík.Ég bara skil ekki hvernig þessi upphæð var fundin út eins og komið hefur fram hjá mér áður.
Það er bara þessi spurning eins og með veiðikortið. Hvenær verður þetta bákn í bákninu og eftir nokkur ár verða menn að rífast um hvort tilgangurinn helgi meðalið eða meðalið helgi tilganginn.
Við tökum aríu um skotvotnanámskeiðið yfir kaffisopa

Ég tók ekki námskeiðið hjá skotfélagi heldur var það lögreglustjórinn hér sem hélt það bæði þetta bóklega og líka að láta mann skjóta af byssu einu skoti. Það var í þá gömlu og góðu

En ég gæti vel tekið í að vinna sjálfboðavinnu hjá ykkur þó ég sé ekki með hreindýr þetta árið svo ef ykkur vantar einhverja aðstoð þá er ég þó nokkuð laus á næstuni ef þið gætuð notað mig