Page 1 of 1
Fyrsta 1000 metra grúbban.
Posted: 27 May 2012 22:19
by Pálmi
Sælir
Jæja loksins hafði ég það af, fór í gær og setti upp batta á 1000 metrum í höfnum.
Hérna er firsta grúbban með 338 lm, aðstæður voru þokkalegar vindur 4 ms og hrikaleg tíbrá.
Ég prófaði líka 6,5x47 á þessu færi en það var ekki að virka í þetta sinn,(þarf að skoða það betur næst) þarna sér maður munin á þessum kaliberum.
Re: Fyrsta 1000 metra grúbban.
Posted: 27 May 2012 22:51
by Gísli Snæ
Takk fyrir prufuskotið í dag Pálmi. Það var magnað að sjá þessar græjur sem þið eruð búnir að koma ykkur upp.
Glæsilega skotið í fyrstu tilraun.
Re: Fyrsta 1000 metra grúbban.
Posted: 27 May 2012 22:59
by Pálmi
Sæll Gísli
Verði þér að góðu.
Re: Fyrsta 1000 metra grúbban.
Posted: 28 May 2012 20:26
by kra
Flott hjá þér Pálmi. Þú mannst , ætlaðir á mæta á Húsavíkina með gripinn.
Hér er reyndar bara brautir upp að 300 mtr. en nafni minn Philips gerði braut uppá 800 mtr.
Prufaði 7mm STW í dag á 611 mtr. Nokkuð sáttur. grúbban 82mm
Re: Fyrsta 1000 metra grúbban.
Posted: 28 May 2012 21:53
by maggragg
Þetta er glæsilegt. Ég á ennþá eftir að fara í 1.000 metrana en vonandi verður það í sumar

Re: Fyrsta 1000 metra grúbban.
Posted: 28 May 2012 22:02
by Pálmi
Sæll Kristján
Kem norður um miðjan júlí og tek gripin með.
Þessir statíonvagnar eru að skjóta hevíti vel, það er ekki hægt að kvarta yfir þessar grúbbu.

Re: Fyrsta 1000 metra grúbban.
Posted: 10 Jun 2012 14:17
by Pálmi
Sælir
Fór í Hafnir í morgun , það var bongó blíða og aðstæður hinar bestu, 1000 m og ég mundi sennilega brosa í hring ef ég hefði ekki eyru með árangurinn

Re: Fyrsta 1000 metra grúbban.
Posted: 11 Jun 2012 00:58
by samuel83
Svo að ég spyrji eins og kjáni, en er þetta ekki innan við 1 MOA eða tæplega 0,9 MOA?
Re: Fyrsta 1000 metra grúbban.
Posted: 11 Jun 2012 21:03
by Pálmi
Sæll samson
Nei, ég held að hún mælist 0,75 moa.
Er moa ekki um 30 cm á 1000 m?
Re: Fyrsta 1000 metra grúbban.
Posted: 12 Jun 2012 13:43
by samuel83
Já ok ennþá flottara, Mikið ofsalega væri ég til í að geta skotið svona.
Til lukku
Re: Fyrsta 1000 metra grúbban.
Posted: 12 Jun 2012 13:54
by Gisminn
Ef ég fer rétt með þá eru 1000 metrar tæpir 1100 yardar sem gerir þá 28cm í MOA og þá er þetta 0.8 MOA sem er stóóóórglæsilegt

Þetta ætla ég ekki að reyna einusinni með 6,5x55
