Page 1 of 1

Hentugur riffill fyrir silhouettu skotfimi?

Posted: 29 May 2012 19:04
by maggragg
Hvaða riffli mynduð þið mæla með fyrir 100 metra silhouettu skotfimi.

Kröfurnar eru eftirfarandi:
.22lr
Má ekki vera þyngri en 4.6 kg með sjónauka.
Hlaup ekki lengra en 30" :)
Nákvæmur.
Áræðanlegur.
Já og góður og stillanlegur gikkur...
Silhouettu riffill
Silhouettu riffill

Re: Hentugur riffill fyrir silhouettu skotfimi?

Posted: 29 May 2012 19:10
by Gisminn
Hvað er silhouettu skotfimi ?

Re: Hentugur riffill fyrir silhouettu skotfimi?

Posted: 29 May 2012 19:31
by maggragg
Það er skotið standandi á stálskotmörk, hænu, svín, kalkún og hrúta á færunum 40, 60, 77 og 100 metrum. 40 Skotum alls og 30 sek á skotið. Tekið í 5 skota hollum en það eru 5 stykki af hverju dýri og teknar tvær umferðir. Þetta var stutta útgáfan.

Þetta er alþjóðleg skotgrein og er ein af viðurkenndu skotgreinunum hér á landi.
http://www.imssu.org/

Re: Hentugur riffill fyrir silhouettu skotfimi?

Posted: 29 May 2012 19:44
by Gisminn
Takk sem sagt fríhendis skotfimi og heita skotmörkin silhouettur ?

Re: Hentugur riffill fyrir silhouettu skotfimi?

Posted: 29 May 2012 20:11
by maggragg
Já mikið rétt. Silhouette þýðir skuggamynd eða útlínur gróft þýtt og þessar stálplötur sýna útlínur fyrrgreindra dýrafígúra.

Fann hérna mjög ítarlega og góða lýsingu á greininni á Íslensku:
http://www.isnes.is/riffill.htm

Er að skoða mig um með riffill fyrir þessa grein :)

Re: Hentugur riffill fyrir silhouettu skotfimi?

Posted: 10 Jun 2012 08:26
by Stebbi Sniper
Sæll Magnús, varst þú ekki með .22 riffil með gatasigtum á? Þú ættir að kíkja í heimsókn til okkar í Digranesið með hann og skjóta svo Enska riffilinn með okkur næsta vetur.

Það er besta æfingin sem maður getur fengið fyrir 300 metrana, sem mér sýnist að muni fara í gang næsta sumar, á miða við áhugan.

Re: Hentugur riffill fyrir silhouettu skotfimi?

Posted: 10 Jun 2012 10:25
by maggragg
Sæll Stefán.

Jú er með einn með gatasigtum sem ætlunin er að nota í 50 metra riffilinn sem er væntanlega það sama og enski riffillinn. Verð endilega að kíkja á ykkur og læra grunnþættina og æfa sig svolítið :) Það er svo 50 metra braut væntanleg hjá okkur svo maður stefnir á að stunda þetta eitthvað af ráði ásamt silhouettu þegar það verður klárt :) Allavega á sumrin ;)