Page 1 of 1
Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 31 May 2012 17:16
by agustbm
Komið þið sælir,
Ég er að leita að Tikku T3 lás eða riffli til að smíða 223 riffil.
Þetta má vera dapur riffill (ef svoleiðis Tikka finnst) eða lás með 222-223 bolta-face-i ásamt gikkverki og magasíni.
Öll jákvæð komment vel þegin
kveðja,
Ágúst Bjarki
Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 01 Jun 2012 09:41
by Hrafnjo
Sælir
Er því miður ekki með lás hjá þér, bara forvitnisspurningar...
Hvernig eru Tikka lásarnir til breytinga?
Á að smíða sér .204 Ruger?
Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 01 Jun 2012 13:26
by agustbm
Sæll vertu,
Eftir því sem ég hef lesið eru þessir lásar bara fínir til breytinga og smíði.
Hugmyndin var nú bara að smíða 223 með hröðu twisti og skjóta þungum kúlum úr honum ..
Getur verið að ég hafi selt þér ansi skemmtilegann Sako 243 riffil fyrir fáum árum .. hmm ?
Bestu kveðjur,
Ágúst Bjarki
Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 01 Jun 2012 14:19
by Veiðimeistarinn
Sæll Ágúst.
Velkominn á þetta ágæta spjallborð
Hér færð þú ekkert nema jákvæð komment, þess vegna er hægt að kalla þetta ágætt spjallborð
Er ekki bjartsýni að leyta eftir ,,döprum" Tikka riffli, ég hélt að þeir væru ekki til

Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 01 Jun 2012 23:31
by agustbm
Blessaður Siggi !
Gaman að detta hérna í jákvæða félagskapinn

- var bara að skrá mig hérna inn.
Langt síðan maður hefur komið á Vaðbrekku - fékk dýr 4 ár í röð og er búinn að fá neitun nú 4 ár í röð..

Aldrei að vita nema maður komi samt við með félögunum sem dráttardýr

Annars fer ég í skemmtilegann túr til Skotlands í lok september í tarfaveiði, alls ekkert leiðinlegt við það.
Annars er jú frekar erfitt að finna dapra Tikku í brotajárn, fínir rifflar og girnilegir lásar smíðerí.
Veiðikveðja,
Ágúst Bjarki
Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 02 Jun 2012 10:15
by Spíri
Sælir, Ég á tvær tikkur T3 í cal 6,5x55 og 308win og eru það mjög vel smíðaðir og vandaðir rifflar. En ég set smá spurningarmerki við að nota T3 lásinn fyrir 223 þar sem að tikka lásinn er long action, það er að segja að tikka lásarnir eru allir jafn langir hvort sem er fyrir 222 eða 300win mag. Það er kanski ekkert vandamál en ég myndi frekar reyna að ná í Sako short action lás eða Remington 700 short lás

Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 04 Jun 2012 08:13
by Hrafnjo
Sæll Ágúst
Jú mikið rétt verslaði af þér þennan fína Sako í 243. Reif hann í spað fyrir skömmu og bjó til 6.5*47, er að koma honum saman núna, set inn myndir af því við tækifæri.
Áhugavert þetta sem Þórður segir, var einmitt að skoða eina Tikku í .204 ruger í gær, skoðaði lásinn sérstaklega og er ekki frá því að það væri betra að komast í Sako eða Remington short action lás ef maður hefur tök á því.
Reyndar var sú Tikka keypt í Ellingsen og verðmiðinn var virkilega sanngjarn eða rétt um 140k
Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 04 Jun 2012 09:28
by agustbm
Komið þið sælir félagar,
Gott að heyra að Sakoinn hafi reynst vel, þetta var eðal riffill
Jú ég var meðvitaður um þetta með láslengdina, það er alveg rétt að til að fá lás sem passar best fyrir kaliberið væri best að fá XS-Sako lás. Tikkan hefur sama lásinn og þar er nóg að skipta um boltann ef á að fara milli kalibera. Svona í hreinskilni langar mig ekkert í Remington lás ....
Málið er bara að ég ætlaði að setja þetta ofaní KKC skepti og eins og er eru bara til skepti fyrir Tikku lás, þannig að.... en auðvitað væri Sako lásinn heppilegri
Ef ég rekst á girnilega Tikku læt ég kannski vaða
Annars er ég með aðila úti sem getur skaffað nýja Sako lása, komplett með gikkverki og magasíni ef menn hefðu áhuga. Það eru Sako AII, Sako 75 og 85.
veiðikveðja,
Ágúst Bjarki
Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 04 Jun 2012 13:44
by Hrafnjo
Sæll
Á hvaða verði ertu að fá Sako 75 með gikkverki og magasíni?
En hvað eru Sako All lásar, hef í fáfræði minni ekki heyrt talað um þá áður.
Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 05 Jun 2012 22:40
by agustbm
Sæll Hrafn !
Eftir að ég fór að herja á aðilann úti kemur í ljós að þetta eru nýjir orginal Sako 75 lásar sem hann getur selt, segist ekki hafa heimild frá Beretta corp til að selja 85 týpuna.
Hann er með Sako75-I (223) og Sako75-III (308) og eflaust lengri (IV) líka.
Lásarnir kosta 1229 USD stykkið, svo kemur 350 USD fyrir svokallað export licence (deilist þá á fjöldann væntanlega) og ca 80 USD í sendingarkostnað heldur hann.
Sako AII eru L579 týpan - eldra módel.
Það er spurning hvort ætti að stofna nýjann þráð ef áhugi er hjá mönnum á svona lásum.. hmm
Bestu kveðjur,
Ágúst Bjarki
Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 06 Jun 2012 13:54
by maggragg
Ég þekki nú ekki mikið til Sako annað en að þeir hafa þótt afbragðs veiðirifflar í gegnum árin. Hinsvegar vildi ég bara benda á þar sem lásinn kostar 1229 USD hvort að menn myndu ekki frekar fara þá í custom lása sem kosta svipað en án alls vafa miklu nákvæmari. Stiller lásar kosta minna en Sako lás og þeir eru smíðaðir af gríðarlegri nákvæmni, fyrir benchrest og þessháttar. Ef þetta snýst hinsvegar bara um að eiga Sako því men vilja það þá er það svosem í lagi, en það er þá líka dýrt. Þú ert að tala um rúman 200.000 kr. fyrir bara Sako lásinn. Það eru fleirri custom lásar þarna út heldur en Stiller, nefndi þá bara sem dæmi.
Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 06 Jun 2012 15:42
by E.Har
Sæll ágúst fullt af áhuga á svona lásum en bara allt of stíft verð.
Bæði hægt að taka custom lása fyrir svipað eða bara einhvern donorriffil og átt þar jafnvel gikk ofl líka
samt fínt að hafa upp á svona gæja er hann ekki með rem 700 líka átti að kosta einn þriðja og þá væri hægt að stefna á 204 ruger

Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 06 Jun 2012 15:54
by Hrafnjo
Sælir
Sammála síðustu 2 mönnum, frekar stíft verð fyrir annars mjög fínan lás. Góður punktur hjá Einari, það væri áhugavert að vita hvaða aðra lása hann hefur. Ég væri alveg til dæmis alveg til í að grípa rem 700 lás ef hann fæst á góðu verði.
Annars var ég ótrúlega hrifinn af þessari tikku í .204 ruger. Langar í léttann gönguriffil fyrir rebba, væri snilld að hafa hann í .204 ruger, bara spurning hvort maður eigi að fara í custom smíði fyrir þannig eða einfaldlega grípa eina svona tikku og prófa sig áfram með hana.
Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 06 Jun 2012 17:03
by agustbm
Sælir félagar !
Jú þetta er sjálfsagt alltof dýrt fyrir plain Sako lás. Hann kemur reyndar með gikkverki og magasíni.
Trúlega er hægt að fá ansi frambærilega custom lása fyrir minni pening úti. Sjálfur væri ég til í Sako lás - búinn að eiga svo marga Sako riffla
Hrafn, ég held að þessi aðili sé bara með Sako lása. Hann smíðar custom riffla og byggir á Sako lásnum. Ég myndi í það minnsta frekar grípa Tikkuna í .204 Ruger heldur en eltast við rem 700 lás.
Hérna er þessi umræddi Sako aðili :
http://www.accuflite.com/
Langar hins vegar ekkert í þessa riffla sem hann setur saman..
Veiðikveðja,
Ágúst Bjarki
Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 06 Jun 2012 20:09
by Benni
Ef þú ert að fara að kaupa riffil fyrir lásinn og skipta um hlaup og skepti hefurðu skoðað að fá Stiller Pretador lás hjá Hlað?
Hef verið að skoða þetta töluvert undanfarið og þegar öllu er á botninn hvolft er ég eiginlega kominn inná að það sé betra til lengri tíma litið að kaupa custom lás og smíða frá grunni nákvæmlega riffilinn sem manni langar í.
Þekki einn sem er með 2 Stiller riffla og eru þeir báðir svakalega flottir.
Ég reyndar endaði á að panta vinstri handar Jalonen í 6,5x47 og er hann í raun ekki mikið dýrari en að kaupa notaðan lás og fá hlaup, skepti og gikk.
Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 06 Jun 2012 20:19
by Gísli Snæ
"Tikkan" hjá Heiðari er nú alveg sæmileg líka Benni.
Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 06 Jun 2012 21:01
by Benni
Jú ekki spurning, glæsilegur riffill.
Er hann ekki 7mm-08?
Re: Tikka lás 223 eða rifflill
Posted: 06 Jun 2012 21:04
by Gísli Snæ
Jú hann er í 7-08