Page 1 of 1
Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 01 Jun 2012 13:58
by T.K.
Ekki èg líti neitt sèrlega upp til Kanans, EN þegar kemur að CABELAS þá stòröfunda èg þá. Skruppum í Cabelas sem er kannski ekki stórfrètt. En barnadeildin var ekkert slor, fullt af flottu dóti fyrir upprennandi veiðimenn. Sárast var þó að þurfa skilja allt flottasta dótið (loftrifflana) eftir í búðinni.
....mundi það virkilega vera svo slæmt ef lögin leyfðu litlum gríslingum að leika sèr og læra umgengni við byssur (náttúru) frá unga aldri? Kannski í öðru lífi....

Re: Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 01 Jun 2012 14:23
by Veiðimeistarinn
Þórir minn
Þarf nú ekki krakka til að komast í nammidaga þarna
Það var fljótt að koma upp í mér barnið þegar ég fór þarna í fyrrahaust í fyrsta skiptið
Það er allavega ákveðið að fara aftur þarna út í haust
Vona bara að þetta verði ekki að vana og ég þurfi áfallahjálp ef ég sleppi úr ári

Re: Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 01 Jun 2012 16:35
by T.K.
Jamm. Cabelas er alltaf upplifun.
Væri heimurinn nokkuð verri ef krakkarnir fengju meira svigrúm til að leika sèr og læra?? Eeeeeen forræðishyggjan....
Re: Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 01 Jun 2012 18:24
by Gísli Snæ
Úff - ekki nefna þetta. Fór til Minneapolis í fyrra. Maður sleppti sér smá í Cabelas.
Re: Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 01 Jun 2012 21:58
by Aflabrestur
Sælir.
það er nú búið að versla svona loftriffil á mitt heimili og Savage cub .22 lr og .410 haglara og 20 ga haglara ásamt slatta af leikfangabyssum. Svo er áhugi sonarinns á skotnum gæsum í bílskúrnum búin að vera tilefni í eitt foreldraviðtal á leikskólanum, það vakti ekki hrifningu þegar hann var að "útlista" gæsaveiði fyrir hinum krökkunum og fóstrunum.
Re: Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 02 Jun 2012 20:14
by T.K.
Fullkomlega heilbrigður drengur. Èg er sannfærður um ad í mjög morgum tilfellum sè búið að fjarlægja æsku þessa lands frá því sem er náttúrulegt. Þá hættir náttúrulegt að vera eðlilegt....
Re: Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 03 Jun 2012 11:26
by Padrone
Það var nú bara í fréttunum í morgun að einhver skaut (líklegast) á gröfu í Beiðholti. Tek það fram að ég tel að mér finnst gott að fræða alla um alvarleika skotvopna þ.a.m. börnin og þegar ég heyri svona fréttir kemur tvennt upp í hugann.
A) Hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta með almennri fræðslu barna á skotvopnum og leifa þeim að nota kraft minni loftriffla.
B) Væru svona tilfelli fleiri ef loftrifflar væru á hvers barns snærum.
Re: Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 03 Jun 2012 22:14
by E.Har
Renndi við í fyrra og slapp vel frá því.
Ætlaði að panta einhvað smálegt í vikunni.
Púðurtrekt úr plasti, plastbakka undir skot og shellholdera.
Ekkert sennt út fyrir ammeríku, terroristrar gætu lamið mann með trektinni!
Re: Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 04 Jun 2012 08:09
by Hrafnjo
Cabelas er snilld!
Fyrir þá sem eru að fara í fyrsta skipti þá er snjallt að eyða smá tíma á vefsíðu Cabelas, skrifa niður vörunúmer á því helsta sem þig "vantar". Þá geturðu fengið starfsmann til að fylgja þér í gegnum búðina og taka þetta til og máta. Þá er maður með enn meiri tíma til að finna út hvað manni virkilega vantar svona þegar nauðsynjarnar hafa verið keyptar

Re: Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 04 Jun 2012 09:34
by Aflabrestur
Sælir.
Ég held að ef börn væru frædd meira um skotvopn og fengju að umgangast þau undir eftriliti væri minna um svona lagaðar uppákomur (er að vísu alls ekki vissum að þetta hafi verið börn þarna á ferð). Minn gutti er 5 ára og fyrir honum eru byssur jafn sjáfsagður hlutur og hamar, skiptilykill eða skæri og sýnir þeim ekkert meiri áhuga en öðru, enda hafa þær verið allt í kringum hann frá fæðingu. svo eru börn oft skinsamari en við höldum ef við komum rétt fram við þau. Drengurinn var á sprettinum um húsið um dagin með leikfangariffil og skammbyssu og skaut allt sem hreifðist og ef það hreifðist ekki þá hristi hann það, þar með talið frúnna og hundinn, þegar mamma hans gerði athugasemdir við þetta háttalag og sagði að ekki mætti skjókta menn og dýr var sá stuttti snöggur til svars "Já en Mamma þetta er allt í lagi, þetta er byssan mín ekki Pabba mín er bara plat" Hann var alveg með þetta á hreinu.
Re: Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 04 Jun 2012 09:45
by Veiðimeistarinn
Já Hrafn, það er gott að skoða síðuna og vörulistana, sem ég var búinn að gera mikið af.
Síðan hafði ég þann háttinn á að ég fór með leiðsögumönnum beint í Cabellas fyrsta daginn sem ég var í Minniapolis og var þar í 7 klukkutíma og keypti það helsta (síðan var mér boðið í steik á Mannys um kvöldið), síðan fór ég síðasta daginn, flaug heim seinnipartinn, og keypti það sem á vantaði og ég hafði seð fyrsta daginn og ekki verið viss um að mig vantaði endilega

þá var ég búinn að hafa 2 daga til að hugsa málið.
Ég keypti líka allar jólagjafirnar sem ég gaf stórfjölskildunni um síðustu jól og jólapappír líka
Allir pakkarnir frá mér voru í camo litunum

Re: Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 04 Jun 2012 11:03
by T.K.
7 tímar.....hljómar mikið fyrir þá sem ekki hafa reynt. En merkilegt er samt hversu fljótur tíminn er að líða þarna. Metið mitt eru bara 5 tímar.
Re: Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 04 Jun 2012 11:50
by Hrafnjo
Ég og frúin fórum saman í Cabelas í Minniapolis fyrir að verða ári síðan, minnir að við höfum verið í kringum 6-7 tíma. En það hefði verið gott að komast aftur í búðina 2 dögum seinna, fullt af hlutum sem mér tókst ekki að sannfæra sjálfan mig um að væru nauðsynlegir fyrr en eftir að ég kom heim

Re: Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 05 Jun 2012 20:56
by T.K.
Skemmtilegt að sjá myndirnar ykkar.
Eitt af því sem èg rak augun í í Cabelas síðast eru skotmörk sem springa í loft upp. Ótrúlegur óþarfi en örugglega ótrúlega gaman. Ekki sjèns maður eigi eftir að sjá svona á klakanum. Hèr er þetta...
http://www.youtube.com/watch?v=2yF468PZ ... ata_player
Re: Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 05 Jun 2012 22:13
by Gísli Snæ
Ótrúleg búð þar sem maður er fljótur að tæma veskið ef maður planar ekki fyrirfram. Fyrir aftan mig er hluti af skotveiði deildinni. Camo deildin sést að hluta en ég blokka u.þ.b. helminginn af henni. Sú deild er örugglega draumaland Veiðimeistarans.

Re: Cabelas og krakkarnir = nammidagur
Posted: 05 Jun 2012 22:59
by Veiðimeistarinn
Já ég fann mörg draumalönd þarna úti í Cabelas

Já og gallaði mig upp í camo deildinni

Hvað haldið þið
Já ég gleymdi að segja frá því að ég var 4 tíma í Cabelas seinni daginn svo ég dvaldi þar alls 11 tíma
