Aðeins meir um Hrendýraveiðiprófið.
Posted: 06 Jun 2012 23:58
Sælir ég vildi bara koma því á framfæri að UST hefur svarað mér og heitir hann Einar Guðmann sem varð fyrir svörum.
Og hér er smá bútur úr svarinu frá honum.
Prófið er staðlað í framkvæmd og tímamælt var hversu langan tíma það tekur að jafnaði að framkvæma próf og klára þá tölvuvinnu sem þeim fylgir. Í heildina eru prófdómarar á bilinu 30-50 mínútur að sinna hverjum próftaka þegar allt er talið og þessum 4.000,- krónum sem fellur í hlut framkvæmdaraðila er ætlað að greiða fyrir þá vinnu. Við ákvörðun gjaldskrár er ekki hægt að gera ráð fyrir öðru en að menn vilji fá greitt fyrir þann tíma sem þeir vinna fyrir aðra
Varðandi hina spurninguna þína þá er ekki allskostar rétt að ekki hafi verið haft samráð við framkvæmdaraðila varðandi ákvörðun gjaldsins. Snemma í ferlinu var rætt við forsvarsmenn stærstu félagana hér á landi og rökstuðningur fyrir gjaldinu borinn undir þá.
Og svona til að æra óstöðugan þá klikkir hann út með þessu og hvort sem það er rétt aða rangt þá er þetta talað út úr munni skotfélagana
hér er niðurlagið.
Gjaldinu var ætlað að standa undir þeim kostnaði sem fylgir framkvæmdinni og undirrituðum þykir gjaldið uppfylla það skilyrði enda ekki annað sanngjarnt en að vinna þeirra sem fórna tíma sínum í þetta sé metin. Það hefði líklega einhver kvartað ef lagt hefði verið til að prófið yrði byggt á sjálfboðavinnu framkvæmdaraðila.
kv.
Einar Guðmann
Umhverfisstofnun
Og þá er það komið á hreint eins og ég hafði óttast.
Gjaldið er launatengt og Það var ekki satt að ekki hafi verið haft samráð við skotfélög.
Svo því skal haldið til haga þá lagðist ég ekki á móti gjaldi og var gjörsamlega samþykkur leið Magnúsar að hafa brautargjald og skráningargjald til dæmis.Sjálfboðaliðinn hefði þá þénað fyrir félagið með því að vera á staðnum og sjá um braut og skrá.
En ég er gjörsamlega á móti því að það sé búið að launagera sjálfboðaliðann því það er í nafninu! Hann er ekki launaður starfsmaður.
Ég þakka pent og held að þetta þurfi ekkert að ræða.