Page 1 of 1
Shellholder
Posted: 08 Jun 2012 23:30
by marin
Sælir. Getið þið sagt mér hvort ég get notað shellholder frá einhverjum öðrum framleiðanda en hornaday, það virðist ekki vera hægt að fá shellholder nr. 1 hjá þeim í ellingsen.
Er annars með allar aðrar hleðslugræjur frá hornaday, vantar bara shellholderinn.
Er með 270 cal og er búinn að bíða síðan í mars en ekkert gerist ennþá.
Re: Shellholder
Posted: 08 Jun 2012 23:39
by Pálmi
Sælir
já, þú getur notað frá öðrum framleiðundum.
Re: Shellholder
Posted: 09 Jun 2012 00:23
by Aflabrestur
Sælir.
Skilst að gatið í Hornady haldaranum sé aðeins stærra þannig að það gæti verið vandi að prima þar sem pinnin í Hornady primertönginni er sverari en gengur og gerist. það má renna pinnan niður til að redda sér eða stækka gatið í holdernum sem er víst harðari andskotinn. geri ráð fyrir að þú sért með 270 win. sem er 30.06 hylki þá má redda sér á 6,5x55 holder hann er nógu likur hef oft gert það sjálfur þótt ég mæli ekki með því
Re: Shellholder
Posted: 09 Jun 2012 09:58
by Veiðimeistarinn
Ég nota sama shellholderinn á 243, 6,5x55, 308, 270, 6,5-284.
Re: Shellholder
Posted: 09 Jun 2012 10:29
by Gísli Snæ
Ertu að hlaða í 308 Siggi!!!!

Re: Shellholder
Posted: 09 Jun 2012 10:56
by Veiðimeistarinn
Já það fékk einn félaginn í Veiðifélaginu Geldingahnappi 308 riffil í afmælisgjöf (eða var það kannski fermingagjöf þá væri allavega hægt að fyrirgefa honum fyrir unggæðingshátt að taka við slíkri gjöf, annars teldist þetta til alvalegs dómgreindarskorts)
Ég er að ala hann upp fyrst hlóð ég bara í hann 123 og 125 gr. kúlur, þá gat hann hætt að vera í stáltáarskónum sem við í veiðfélaginu gáfum honum í afmælisgjöf þegar hann var búinn að fá riffilinn

,,og þyggja hann"
Nú hleð ég bara í hann 110 gr V-MAX svo félaginn keypti sér nýja gönguskó og þeir eru óskemmdir enn

Re: Shellholder
Posted: 09 Jun 2012 11:58
by Veiðimeistarinn
Fyrirgefðu Árni, ég er víst búinn að fara með þennan þráð út um víðan völl

Re: Shellholder
Posted: 09 Jun 2012 18:13
by Gisminn
Heheh það er eins gott að það séu ekki fiskar þarna sem finnst ormurinn langi góður

Re: Shellholder
Posted: 09 Jun 2012 18:33
by marin
Allt í góðu Sigurður, enda er ég er búinn að fá svörinn, enda vissi ég að ég fengi greinargóð svör hérna . Takk fyrir.
Re: Shellholder
Posted: 10 Jun 2012 10:12
by konnari
Þú getur notað RCBS holdera í Hornady pressuna