Page 1 of 1
Hagkvæmur 300 metra riffill?
Posted: 10 Jun 2012 13:13
by maggragg
Hvernig er best að verða sér úti um 300 metra riffill fyrir lítið. Er hægt að setja sigti á góðann hefðbundinn riffill, eða ætti maður að verað sér úti um óbreyttan otterupp? Þá er maður að spá í þessu svona til að koma sér af stað...
Re: Hagkvæmur 300 metra riffill?
Posted: 10 Jun 2012 13:42
by Pálmi
Sæll
Ég mæli með Otterup, það var óbreittur svoleiðis riffill í öðru sæti á fimmtudag í Höfnum.
http://www.keflavik.is/skot/frettir/300 ... slit/8238/
Re: Hagkvæmur 300 metra riffill?
Posted: 10 Jun 2012 13:48
by Stebbi Sniper
Ég myndi halda að það gæti verið ódýrast fyrir þig að fá þér Otterup. Annars er ég að spá í að fá mér all in one riffil, og geta þá notað hann í 100 - 300 metra pappagötun ásamt því að þetta verður veiðiriffillinn minn.
Finni talaði um að það væru til aftursigti á Picatinney Rail og framsigtið það er bara klemmt á hlaupið. Þetta er sá útbúnaður sem ég stefni á að koma á þennan riffil sem ég ætla að setja saman (hvenær sem því lýkur nú). En ódýra og einfalda leiðinn væri klárlega Otterup.
Re: Hagkvæmur 300 metra riffill?
Posted: 10 Jun 2012 21:22
by maggragg
Ég er með Otterup, en ég er búin að breyta honum í sjónaukariffil. Það væri auðvitað hægt að fá þá dioptersigti sem hægt er að setja á piccatinny railið. Væri gaman að getað tekið þátt í 300 metra keppni. Annars er stefnan að æfa sig á 50 metrunum til að byrja með
