Page 1 of 2
Vargur í váfréttum
Posted: 11 Jun 2012 07:37
by Veiðimeistarinn
Ja, Mogginn lýgur ekki, þetta er alveg samhljóða því sem margoft hefur komið hérna fram.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/ ... ngu_vargs/
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 12 Jun 2012 07:44
by Veiðimeistarinn
Þetta eru nu ekki allt váfréttir
Það er að vísu spurning hvað þessar ellefu voru búnar að gera af sér áður en þær voru felldar.
Var að tala við Gylfa Sig. í gær og hann sagði mér ekki fagrar sögur úr varpi norðanlands og hvað ein tófa getur valdið miklum usla, nánast lagt varp í rúst
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/ ... i_varpinu/
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 15 Jun 2012 07:41
by Veiðimeistarinn
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 15 Jun 2012 07:46
by maggragg
Hefði nú verið skemmtilegra hefði þetta verið héri heldur en mörður, eigum nóg af vargi...
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 16 Jun 2012 09:43
by Veiðimeistarinn
Það er alltaf sama svarið þarna uppi í ráðuneyti.
Rannsóknir, rannsóknir, rannsóknir......eða miklu heldur rannsóknarleysi....og ef það eru rannsóknir eins og í rjúpunni fyrir miljónatugi eru þær ekkert að marka ef það hentar ekki svörunum sem ráðuneytið vill gefa
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/ ... lgun_refa/
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 16 Jun 2012 10:46
by maggragg
Já þetta er ótrúlegt Sigurður. Það er vísað í rannsóknir ef það hentar, en annars vill ráðuneytið ekki vita af því. Það er greinilega á hvaða línu ráðuneytið er á þessu kjörtímabili.
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 16 Jun 2012 11:51
by Stefán_Jökull
Nú hélt ég að meira að segja sprenglærðir náttúruvísindamenn væru á einu máli um að ref hefði fjölgað. Ætlar þetta að enda í "látum náttúruna njóta vafans" kjaftæðinu?
Mig langar að minna þetta fólk á að maðurinn er hluti náttúrunnar, sama hvað hver segir, og ef þessum hlekk er kippt í burtu þá fer keðjan til andskotans. Veiði er búin að vera staðreynd frá landnámi og ef henni er hætt þá skapast ójafnvægi, það sér hver maður. Af hverju sér ekki ráðuneytisfólk þetta?
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 24 Jul 2012 07:34
by Veiðimeistarinn
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 28 Jul 2012 10:57
by Veiðimeistarinn
Friðun á ref eins og á Hornströndum er ekkert annað en gróft inngrip í jafnvægi náttúrunnar,
Tófuni fjölgar á svæðinu á kostnað annars lífríkis, æti minnkar = fuglum fækkar, síðan færir tó fan sig yfir á nærliggjand svæði þar sem enn er, æti = fuglar, tildæmis, nú eða lömbin á Laugarbóli.
Þarna er verkefni fyrir þá sm vilja skjóta tófur og eiga í vandræðum með að finna svæði til að skjóta á, og er sama hvort greitt er fyrir eður ei.
http://mbl.is/frettir/innlent/2012/07/2 ... _i_tofuna/
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 09 Aug 2012 08:01
by Veiðimeistarinn
Það er athyglisverð grein um ref og refaveiðar eftir Einar Ásmund Daðason alþingismann á bls. 21 í Morgunblaðinu í dag 9. ágúst.
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 09 Aug 2012 09:04
by johann
Er þarna að bætast í vargflóruna?
http://www.usatoday.com/news/nation/sto ... 56831262/1
Við fundum hálfdauða önd í garðinum hjá okkur í Kópavoginum, grannköttur hafði veitt hana við Kópavogslækinn og dröslað henni eitthvað áleiðis heim.
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 21 Aug 2012 23:40
by TotiOla
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 12 Sep 2012 18:50
by Gisminn
Er búinn að vera að leita að fé í fönn síðustu 2 daga og það þurfti að skera tvö lömb í gær þar sem tófan var búin að naga snoppuna nánast af lömbunum þar sem þau voru föst í fönn.
Skemtilegt helvíti.
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 12 Sep 2012 20:27
by skepnan
Ekki bara hjá þér vinur, þetta er líka hinumegin:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/ ... eita_fjar/
Hún er snögg til af dýri sem að gerir ekki flugu mein, samkvæmt Svandísi og félögum.
Kveðja Keli
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 12 Sep 2012 22:31
by Veiðimeistarinn
Þorsteinn tókstu ekki myndir af tófubitnu lömbunum?
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 12 Sep 2012 23:03
by Gisminn
Nei en ég held að það hafi verið teknar myndir en við höfðum í nógu að snúast í krapamýrum og upp í feikna skafla að koma sem mestu niður eða á haga og held að það hafi náðst um 700 niður í rétt og einhver hundruð á auða jörð en það er ómöglegt að segja hve mikið var enn undir því þetta var ósmalað land þarna. Fórum svo í útkall í dag sem var auðveldara og þar vantaði aðeins 16 kindur sem allar fundust og voru ekki í fönn heldur hressar upp í hlíðum.
En þetta sem Keli er að benda á þetta er ekki nema í ca 50km fjarlægð í beinni fluglínu.
Þetta var það sem við vorum að bagsa.
http://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=9170
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 13 Sep 2012 08:04
by iceboy
Siggi ég á mynd af svona tófubitnu lambi sem vantar kjálkann á.
Myndin er tekin 6 des 2012, fannst síðasta dag í rjúpu það ár.
Þetta var hrútlamb og því stórt og mikið lamb.
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 13 Sep 2012 09:10
by Veiðimeistarinn
Það er nú allt í lagi að setja svona myndir af tófubitnum lömbum hérna inn, svo þessir friðunarprelátar geti skoðað hvaða usla refir valda.
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 13 Sep 2012 10:32
by iceboy

- Náttúran í sinni "fallegustu" mynd. Rebbi búinn að naga þessan í einhverja daga
Hérna ein af myndunum sem ég á af þessu. Svo á ég aðra mynd af þessum hrút þar sem það sést hvernig rebbi var byrjaður að reita af hryggnum á honum.
Re: Vargur í váfréttum
Posted: 13 Sep 2012 22:16
by Gisminn