Page 1 of 1

Norma vs Lapua

Posted: 13 Jun 2012 10:26
by iceboy
Það var verið að ræða hleðslur hérna fyrir stuttu og þá var talað um muninn á Norma og Lapua hylkjum og muninn á hleðslum í hylkin.

Nú fann ég þetta ekki aftur og spyr því, hvernig var þetta, það var talað um að ef þú ert með eina hleðslu í annað hylkið þá þarftu gr minna í hitt hylkið.

Í hvort hylkið fer minni hleðslan?

ég vona að það skiljist hvað ég er að spá.

Málið er að ég er með helling af hylkjum en þau eru bæði Norma og Lapua.

p.s ég er ekki viss en ég held að það hafi verið Gylfi sem sagði frá þessu

Re: Norma vs Lapua

Posted: 13 Jun 2012 10:29
by maggragg
http://spjall.skyttur.is/endurhledsla/m ... -t360.html

Það er mjög góð leitarvél hérna efst :)

Re: Norma vs Lapua

Posted: 13 Jun 2012 10:32
by konnari
Það fer yfirleitt minna púður í Norma hylkið.......en n.b. það er ekki gáfulegt að blanda saman hylkjum í sömu hleðsluna...það er allt í lagi að eiga nokkrar tegundir af hylkjum í sama kaliberi en ekki blanda þeim saman, innanmálið er ekki endilega það sama og því er þrýstingurinn ekki sá sami.

Re: Norma vs Lapua

Posted: 13 Jun 2012 10:37
by iceboy
Takk fyrir þetta báðir.

Nei ég vissi að það er ekki gott að blanda saman hylkjum.
Ég á liklega um 200 hylki svo að ég ætti nú alveg að geta bjargað mér án þess, vildi bara vita í hvor hylkin fer minna

Re: Norma vs Lapua

Posted: 13 Jun 2012 11:28
by Gisminn
Ég prófaði þetta og hef verið með Lapua en prófaði svo það sem Gylfi sagði og það var ekkert flóknara en það að mér fannst grúbban bara betri með norma ef eitthvað er og sá gamli veit alveg hvað hann syngur en að sjálfsögðu með öllum varúðar reglum.

Re: Norma vs Lapua

Posted: 13 Jun 2012 19:14
by Benni
Bæði Norma og Lapua eru toppklassa hylki og Lapua oftast talið það besta því þau eru harðari en Norma og þola því þrísting betur.
Norma eru yfirleitt þykkari en Lapua og því minni að rúmmáli og þola því minna púður til að ná sama topp þrístingi.

Munurinn á milli hylkja getur verið mjög mikill og hefur td, Norma gefið út hleðslu upplýsingar fyrir létt og þung hylki í sama caliberinu eins og er fyrir 300 win mag í bókinni þeirra.
Þar eru léttari hylkin um 215 grein og þungu um 270grein.

Viktaði um daginn Sako og Remington hylki í 22 Hornet og var munurinn um 20 grein sem er ótrúlegt í svo smáu caliberi.