Page 1 of 1

Dót í hleðslu herbergið, hvað skal velja?

Posted: 19 Jun 2012 18:48
by Stebbi Sniper
Jæja... Nú er maður að vinna í því að koma sér upp aðstöðu til endurhleðslu svo allt verði klárt fyrir nýja riffilinn þegar maður verður búinn að koma honum saman.

6,5 x 47 verður mjög líklega caliberið í eins skota Stiller lás, en nú er spurning um hvað skal velja af dóti til þess að hafa við endurhleðslu borðið. Þetta er fáránlega mikill frumskógur og ég veit ekkert hvað skal velja og eftir því sem ég les meira því flóknara verður valið.

Ég fékk lánaða pressu og skammtara, bæði af eldri gerðinni en í góðu standi.

RCBS pressa
Hornady púður skammtari

Það sem mig vantar er eftirfarandi.

Die sett:
Forsters Full length sizing die / Til að sizea hylkið (spurning hvort maður ætti frekar að taka neck sizing die)
Forsters Ultra Micrometer Seater die / Fyrir kúlusetninguna

Þar sem ég mun nota Lapua hylki sem eru þykkari, þá bjóða þeir upp á að "Custom honing" á sizing die-anum, en einnig getur maður neck turnað hylkin. Ég hef ekki hugmynd um kostina og gallana við hvorn kostinn fyrir sig, svo það væri ágætt ef þeir sem hafa reynsluna aðstoði mig.

Case trimming tool:
Sinclair - Willson Ultimate Trimmer lítur út fyrir að vera nokkuð flottur, en allar hugmyndir vel þegnar.

Vigt:
Hvað skal velja þar? Það getur verið að ég fái lánaða svona old fashion Hornady vog, sem mun alveg duga mér til að byrja með, en þegar fram líða stundir þá mun ég kannski fá mér digital vog.

Digital rennimál:
Þetta fæst líklega bara hjá Fossberg, þannig að það er óþarfi að vera að flækja það mikið.

Ég ætla mér ekki að gera miklar málamiðlanir hvað kröfur um gæði varðar og mun því frekar spara lengur til þess að ná í það sem mig langar að kaupa, þó mun þetta ekki fara út í einhverja vitleysu hvað peninga þáttinn varðar. Ég mun t.d. ekki kaupa RCBS ChargeMaster vogina.

Hverju er ég að gleyma?

Re: Dót í hleðslu herbergið, hvað skal velja?

Posted: 19 Jun 2012 18:55
by Gisminn
http://www.sinclairintl.com/.aspx/pid=3 ... 7mm-30-cal
Þetta er nákvæmasta mæliaðferðin til að hafa allar kúlurnar jafnar.

Re: Dót í hleðslu herbergið, hvað skal velja?

Posted: 19 Jun 2012 20:44
by Stebbi Sniper
Sæll Þorsteinn

Var búinn að reka augun í þetta fyrir eitthverju síðan. Verður maður þá ekki líka að taka Hornady Lock-N-Load OAL Gauge?

Það er svo mikið af dóti þarna inn á Sinclair að hausinn á manni snýst í hringi þegar maður er búinn að vera að lesa um allt sem er til þarna og eins á 6mmbr.com

Re: Dót í hleðslu herbergið, hvað skal velja?

Posted: 19 Jun 2012 21:09
by maggragg
Hehe, já sinclairint er svakalegt.

Gott caliber, góð vog, trickler og svo case prep tól eru svona basic ásamt pressunni og dæjunum.

Trimmari er góður, thumbler eða ultra sonic cleaner eru næstu hlutir :) Maður safnar sér þessu sem er auka hægt og rólega en þú ert með þetta grunndót til að byrja. Svo fer maður að spá í neck trimmer, meaplat pointer og eitthvað svona þegar maður verður eldri ;)

Re: Dót í hleðslu herbergið, hvað skal velja?

Posted: 19 Jun 2012 21:26
by Gisminn
Hehehe jú stefán ef maður vill fara alla leið en er svo með mikro kúlusetjara sem ég stilli alltaf pínu ofar en ég vill mæli svo hvert skothylki og það er ótrúlegt hvað þau skiptast í þrjár lengdir og svo fullkomna ég 1 línu og held svo áfram með næstu og svo þriðju og er þá með öll skotin eins.
En ég er enn með lyman lóðavogina hún er stöðugari fyrir mig með mína aðstöðu digitalin var virkilega óstöðugur vegna loft og hitabreytingana í skúrherberginu mínu :D

Re: Dót í hleðslu herbergið, hvað skal velja?

Posted: 20 Jun 2012 10:16
by E.Har
Pappagatararnir gera mikklu meiri kröfur en ég. Enda hitti ég varla langvegg á hlöðu nema í meðvindi :-)

Fyrir riffilskot er engin ástæða til að fara í dillon eða einhvað slíkt.
Það sem ég er með er ca svona.

1. Góð pressa. Er með gamla RCB Rokchukker.
2. Góð vog, ég er að nota þokklega digital vog, fra Cabelas en dugar mér.
3. Skamtari, aðallega tímans vegna en ég vigta allt líka. er venjulega aðeins undir og tikkla svo :-) Ég er með RBC og redding.
4. Hylkja bakkar 2 sett fyrir þau cal sem þú notar. (Plast eða boraðar plötur) Gott að hafa tvo og vinna úr öðrum í hinn.
5. Smádrasl sem er dýrt. Trekt, nekk tool, bursti í háls og primerpokket, ausa tikkler, smurbakkar ofl.
6. Mikromál, bara nákvæm. Mín eru úr Fosberg
7. Einhvað til að pulla kúlur. Pullari beestur en Vicegrip dugar.
8. Fullt af dieum :-)
9. Góðar hleðslutöflur

Restin sem er minna áriðandi.
10. Trimmari, þarft sjaldan ef þú ert að nota sömu hólkana. (vantar minn er týndur en fæ lánaða)
11. Tumbler eða önnur hylkja þvottavél. (Er með Lee)
12. Aðganga að Crono eða einhverju sem mælir hraðan svo þú vitir hvar þú ert að enda.
13. Primer töng. Getur alveg notað pressuna en töng er fljótlegri.
14. Lítil plastbox t.d ísbox undir hylki. Eða rumfatalagrer plast sem póður lekur úr!

Gott skap, varkárni og þolimæði og forvitni :-)
Fullt af strákum hér sem er auðvelt að spyrja og flestir kunna þetta betur en ég.

Re: Dót í hleðslu herbergið, hvað skal velja?

Posted: 20 Jun 2012 10:52
by Gisminn
Í staðin fyrir þvottavélarnar er ég bara með WD40 og spreyja í tusku ;)
Og ég neck dia bara og nota grafít í staðin fyrir feitina og losna alveg við að kúla grói við brassið og líka það er engin mismunur á smurningu í hylkjunum bara snild einum aukaþætti minna :lol:

Re: Dót í hleðslu herbergið, hvað skal velja?

Posted: 20 Jun 2012 10:55
by TotiOla
Hvar er "like"-takkinn þegar maður þarf hann :D Flott og skemmtilegt svar E.Har!

Er sjálfur að safna mér fyrir góðum græjum til þess að hefja endurhleðsluferilinn og mun pottþétt skoða þennan lista þegar þar að kemur.

Re: Dót í hleðslu herbergið, hvað skal velja?

Posted: 20 Jun 2012 11:47
by E.Har
Elstu hlutarnir úr mínu dóti eru frá 85 (Djö hvað maður er gamall)
Þá var engöngu hægt að panta svona sérvitringa dót að utan.
Fékk mér lee kitt þá en einhvernvegin er ekkert eftir af því.
Lét pressuna frá mér fyrir RCB og vigtin skemdsist í láni.
Týndi svo trimmaranum hann er einhverstaðar í láni!

En í minni kittum þá er flest sem þú þarft. Ég legg meira upp úr góðum skamtara og pullara en primertöng og trimmara. Töngin kostar að vísu lítið og sparar vinnu en skamtarinn sparar meiri vinnu en hún. Svo þegar verið er að byrja þá þarf alltaf að púlla kúlur úr einhvað af hylkjum. :-( það er alveg hægt með wicegripp fyrir ofan pressuna, en bara líkar betur vil dija. Hef einhvernvegin aldrei verið sáttur við hamarinn!)

Oft hægt að fá kitt í upphafi og byggja svo utan á það. Þá skiptir pressan máli.

Annars eru margir mun betri í þessu en ég. Er rétt að byrja aftur eftir margra ára hlé. Aðstaðan var á hrakhólum svo ég var búin að lána stuffið hingað og þangað. Núna er komið alvöru herbergi ;-)

Re: Dót í hleðslu herbergið, hvað skal velja?

Posted: 20 Jun 2012 13:38
by Gisminn
Ég nota þennan en reyndar keyptan í ellingsen
http://www.sinclairintl.com/.aspx/pid=3 ... ock-Puller

Re: Dót í hleðslu herbergið, hvað skal velja?

Posted: 20 Jun 2012 14:49
by Stebbi Sniper
Sælir, þetta hjálpar mér mikið, ég get nokkurnveginn vinsað út úr þessu það sem ég þarf og hef áhuga á að nota og allar upplýsingar í þessum þræði munu nýtast mönnum sem fara að spá í þetta í framtíðinni. Ef ég fer aðeins yfir listann hjá Einari og það sem ég er að hugsa fyrir mínar þarfir og allan auka óþarfa... 8-)

1. Pressa
RCBS gömul, en góð

2. Vigt
Old fashion vigt
Digital vigt

3. Skammtari
Hornady

4. Case prep tools o.fl.
A) Fékk lánaða svona RCBS trekt, sem dugar mér allveg.
B) Bakkar undir skotinn 2 bakkar er bara fínt fyrir mig, verð bara með 6,5 x 47 / mögulega líka 6,5 - 284, ef ég sel þá ekki þann riffil
C) Bursti til að bursta hálsinn og þau tól sem þarf til að laga primer gatið á hylkinu.
D) Case lube, ég mun nota sömu feiti og Kalli vinur minn sem er í svona vaselín boxi og þarf að maka á með puttunum, hann er með bæði og ég hef alveg séð muninn í praxís.
E) Ísbox eða Rúmfó plastbakkar.

5. Mælitæki
A) Hornady LNL Bullet comparator
B) Sinclair Bullet seating depth tool / Hornady LNL OAL Gauge
C) Concentrency gauge
D) Rennimálin í Fossberg
E) Case neck gauge

7. Bullet puller (hvað af þessu)
A) Hamarinn?
B) Fosters Universal Bullet puller?
D) RCBS Bullet puller?
Mér líkar ekki við Vicegrip tillöguna, er einum of groddalegt fyrir mig ;)

8. Bara einn Die-i fyrir mig í bili 6,5 x 47, spurningin er bara hvort maður ætti að skoða eitthvað annað en Forsters Die-ana sem ég nefndi hér að ofan, RCBS kannski en eru þeir jafn góðir?

9. Helðslu töflurnar er hægt að sjá hjá framleiðendum kúlna á netinu í flestum tilfellum, einnig er nauðsynlegt að eiga góðar hleðslu bækur.

10. Trimmari
Sinclair - Wilson Ultimate Trimmer

11. Þvottavél / Hvað af þessu hafa menn reynslu af?
Thumbler
Thumblers - Tumbler
Ultrasonic

12. Hraðamælir - mjög lítið notað, en áægtt að hafa aðgang að.

Ég bý kannski til nýjan þráð þar sem ég set saman annars vegar lista yfir það nauðsynlegasta fyrir endurhleðslu og svo svona nice to have lista fyrir neðan og við getum gert þann þráð stiky hérna efst í þessum endurhleðslu flokki fyrir aðra til þess að skoða í framtíðinni.

Re: Dót í hleðslu herbergið, hvað skal velja?

Posted: 20 Jun 2012 20:04
by Pálmi

Re: Dót í hleðslu herbergið, hvað skal velja?

Posted: 20 Jun 2012 20:44
by Benni
Wilson dæjarnir eru alveg magnaðir og tek ég algjörlega undir tillögu Pálma hér að ofan.
Ég mun allavega hér eftir eingöngu nota Wilson dæja og auðvita redding body dæja með þeim.
Hef farið alla flóruna í dæjum frá Lyman uppí fokdýra redding competition dæja en Wilson toppar þá alla.

Svo er þetta tól alveg nauðsynlegt til að vita hversu mikið maður á að setja axlirnar aftur þegar þess þarf, venjulega fullþrengja menn hylkin alltof mikið!
http://www.sinclairintl.com/.aspx/pid=3 ... Case-Gauge

Re: Dót í hleðslu herbergið, hvað skal velja?

Posted: 21 Jun 2012 00:55
by E.Har
Það sem má bíða þar sem þúbert mest að skjóta hylkjunum úr sama rifflinum.
t.d mælitæki. Skifmálið dugar nokkuð langt.
Trimmara noatarðu litið. Fá lánaðan eða kaupa oftar hylki.
Tumbler má líka bíða bara vinna við að þrífa.
Hraðamælir, fá að renna í gegn hjá öðrum.

Pressa , vigt, dyar, skifmiál,
:twisted: