Nú er pressa :)
Posted: 20 Jun 2012 15:42
Sælir
Hvað finnst mönnum um þetta? Var ekki einhver umræða um það að menn ættu að geta tekið prófið alveg fram undir veiðitímabil? Þarf maður þá að sækja um einhverja undanþágu?
Ekki það að ég stefni á prófið í kvöld
Finnst þetta bara áhugavert.
Hvað finnst mönnum um þetta? Var ekki einhver umræða um það að menn ættu að geta tekið prófið alveg fram undir veiðitímabil? Þarf maður þá að sækja um einhverja undanþágu?
Ekki það að ég stefni á prófið í kvöld

Kæri veiðimaður
Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum þá átt þú eftir að fara í skotpróf vegna hreindýraleyfis sem þú fékkst úthlutað.
Þann 14. júni 2011 var samþykkt breyting á 14.gr laga 64/1994 þar sem gerð var aukin krafa til hreindýraveiðimanna. Enginn má stunda hreindýraveiðar nema að hafa til þess leyfi, vera í fylgd með leiðsögumanni og hafa staðist verklegt skotpróf.
Hafi veiðimaður ekki lokið skotprófi fyrir 1. júlí er veiðileyfi hans endurúthlutað.
Reglugerð 424/2012 fjallar um skotpróf vegna hreindýraveiða og þar kemur fram hvaða kröfur eru gerðar til veiðimanna. Í stuttu máli felst skotprófið í að skjóta fimm skotum á 14 sm skotmark í 100 m fjarlægð á innan við 5 mínútum. Öll skotin fimm þurfa að snerta eða vera innan hringsins. Í prófinu má eingöngu nota þann riffil sem ætlunin er að veiða með og eingöngu má nota skotfæri sem eru leyfileg til hreindýraveiða.
Ítarlegri upplýsingar um framkvæmd skotprófsins og lista yfir þá staði sem bjóða upp á skotpróf er að finna á vef Umhverfisstofnunar og hreindyr.is. Hægt er að fara í próf á 22 stöðum á landinu. Veiðimenn eru hvattir til að æfa sig áður en farið er í skotprófið.
Hugsanlega hefurðu nýlega lokið skotprófi og í því tilfelli biðjumst við velvirðingar á bréfi þessu.
Á þessu ári, 2012, endurgreiðum við staðfestingargjaldið hætti menn við veiðileyfi sitt vegna skotprófsins.
Bestu kveðjur, Best regards
Steinar Rafn Beck
Sérfræðingur, Advisor
Svið náttúruauðlinda, Department for natural resources