Page 1 of 1
Nýr á spjallinu
Posted: 21 Jun 2012 23:42
by atlimann
Hæ, ég er nýr hér á þessu spjalli, langaði bara að kynna mig aðeins og kasta kveðju á mannskapinn.
Atli Már Erlingsson heiti ég og hef verið að veiða síðan 2003. Bý í nafla alheimsins, Hafnarfirði.
Vopn: Benelli SBEII lefty
Remington 870 SP Camo
Kveðja Atli Már
Re: Nýr á spjallinu
Posted: 21 Jun 2012 23:46
by maggragg
Velkominn á spjallið Atli

Re: Nýr á spjallinu
Posted: 21 Jun 2012 23:50
by TotiOla
Sælir
Þú gleymir forgjöfinni, tilvonandi ... aka. Labbanum

Re: Nýr á spjallinu
Posted: 22 Jun 2012 07:49
by atlimann
TotiOla wrote:Sælir
Þú gleymir forgjöfinni, tilvonandi ... aka. Labbanum

hahah já og einn labrador líka

Re: Nýr á spjallinu
Posted: 22 Jun 2012 07:52
by Veiðimeistarinn
Sæll Atli Már.
Það er til mikillar eftirbreytni að kynna sig svona hérna, það ættu fleiri að taka sér til fyrirmyndar.
Því betur sem menn kynnast hér á spjallinu ber umræðan þess keim að viðing fyrir mönnum og málefnum ræður för. Eins og sannanlega hefur orðið raunin hér, á þessu spjalli sýna menn allar sínar bestu hliðar

Re: Nýr á spjallinu
Posted: 22 Jun 2012 09:09
by E.Har
Velkominn og glæsilegt.
E.Har
Einar Kr Haraldss
Re: Nýr á spjallinu
Posted: 23 Jun 2012 01:36
by atlimann
Veiðimeistarinn wrote:Sæll Atli Már.
Það er til mikillar eftirbreytni að kynna sig svona hérna, það ættu fleiri að taka sér til fyrirmyndar.
Því betur sem menn kynnast hér á spjallinu ber umræðan þess keim að viðing fyrir mönnum og málefnum ræður för. Eins og sannanlega hefur orðið raunin hér, á þessu spjalli sýna menn allar sínar bestu hliðar

Ég stunda fleiri spjallborð en þetta hér og þar tíðkast þetta mikið (að kynna sig), stundum er sér dálkur fyrir kynningar á nýliðum sem er mjög gott, þá er það bara allt á einum stað.