Page 1 of 1

Rössler!!

Posted: 26 Jun 2012 21:31
by AndriS
Sælir allir.

Smá pæling í gangi. Er búinn að ákveða að fá mér Rössler í 6,5xeitthvað.. en hef sé að menn kvarta undan plastskeptunum frá þeim. Einhver hérna sem getur frætt mig um skeptin? Er eina vitið að fá sér tréskepti eða á maður að þora að panta plastið??

Með fyrir fram þökk :D

Re: Rössler!!

Posted: 26 Jun 2012 21:42
by konnari
Fáðu þér timbrið ! Ekki spurning....

Re: Rössler!!

Posted: 27 Jun 2012 17:32
by Stefán_Jökull
Bróðir minn eignaðist Rössler 6.5x284 í plastskefti, og hann endaði með að steypa utan um það með spartli. Plast er yfirleitt til vandræða ef þú setur fót á riffilinn, og jafnvel án þess.

Re: Rössler!!

Posted: 27 Jun 2012 22:33
by Dr.Gæsavængur
Blessaður.

Er nýbúinn að versla mér Rössler. Ég tók viðarskepti og var það aldrei nein spurning hjá mér.. Bæði þykir mér það svo mikið fallegra og eigulegra en svo tel ég gæðin líka vera meiri í trénu. Það þarf kanski meiri umhyrðu en það er bara skemmtilegt! Svo er verðmunurinn á mismundandi útgáfum þessara vopna ekki neitt til að stoppa menn í að taka nákvæmlega það sem þá dreymir um! Svo hafði ég einnig, eins og þú heyrt, misjafna hluti um plastið..

Ég ætla samt að fara drífa í að reyna að setja inn myndir af rifflinum.. Kominn tími á það enda gullfallegur gripur :)

Re: Rössler!!

Posted: 09 Jul 2012 15:15
by E.Har
Flest ódýr plastskepti eru úr peh plasti sem er það sama og t.d snjóbræðslurör.

Slíkt plast svignar í allar áttir og er bara ekkert sniðugt.
Síðan er auðvitað fáanlegt alvöru plast /kefla/trefjabundin skepti en þau eiga ekkert sammerkt með
þessu rörasteypuplasti.

Annars er allt mitt dót núna komið í plast nema ein tvíhleypa :-)

Re: Rössler!!

Posted: 09 Jul 2012 17:09
by Benni
Átti Rössler í plastskepti og var riffilinn frábær en skeptið er enganveginn nógu gott og alveg eiðileggur annars frábæran riffil.
Það lyggur altaf utan í hlaupinu og því var nákvæmnin ekkert sérstök og alveg útum allt með tvífæti.
Ég var ekki sáttur við þetta og seldi hann þó riffilinn sjálfur sé mjög góður.

Re: Rössler!!

Posted: 10 Jul 2012 10:58
by E.Har
Svo hafa auðvitað komið mánudagsröslerar. :x

Re: Rössler!!

Posted: 11 Jul 2012 22:52
by Dr.Gæsavængur
Já þessir helv mánudagar... Þeir skjóta upp kollinum víða :)