Page 1 of 1

Skrá sig inn með facebook aðgangi sínum

Posted: 19 Aug 2010 23:49
by maggragg
Þá er ég búin að bæta við einni viðbót sem gerir það mögulegt að skrá sig inn með facebook aðgangi sínum og því þarf maður ekki að fara í gegnum innskráningarferlið. Hægt er að nota myndina á facebook sem avatar myndina á spjallinu. Þetta gerir það auðveldara að skrá sig inn og taka þátt í umræðunum. Hnappurinn er neðst á síðunni þar sem innskráningarreitirnir eru.

Þeir sem eru þegar búnir að skrá sig inn á spjallið geta skráð sig inn með facebook login og ef það er sama email skráð á spjallinu og er skráð á facebook viðkomandi þá tengir viðbótin facebook við gömlu skráninguna.

Vona að þetta komi að gagni

Kv.
Maggi.