Nýjustu fréttir af hreindýraprófi

Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Nýjustu fréttir af hreindýraprófi

Unread post by TotiOla »

Sælir

FYI fyrir þá sem eru ekki með leyfi en vilja fylgjast með... :geek:
ATHUGIÐ – Póstur þessi er sendur á alla sem eru með úthlutað leyfi til veiða á hreindýri í ár óháð því hvort þeir hafa þegar lokið skotprófi eða ekki.

Eins og kunnugt er þá er nú í fyrsta skipti verið að framkvæma verklegt skotpróf vegna hreindýraveiða í samræmi við breytingar á lögum nr. 64/1994. Framkvæmd prófanna hefur gengið ágætlega þó að borið hafi á vissum byrjunarörðugleikum.

Samkvæmt gildandi reglum ber að skila staðfestingu á skotprófi fyrir 1. júlí. Hafi veiðimaður ekki gert það verði leyfi hans úthlutað að nýju. Í ljósi mjög sérstakra aðstæðna nú í ár hefur Umhverfisstofnun ákveðið gefa veiðimönnum kost á að skila staðfestingu á verklegu skotprófi til stofnunarinnar fyrir 20. júlí. Þetta er gert þar sem framkvæmd skotprófa hófst síðar en áætlað var og skv. upplýsingum Umhverfisstofnunar er útlit fyrir að ekki muni takast að anna eftirspurn eftir próftöku á þeim tíma sem nú er til stefnu.

Til að fá útgefið veiðileyfi þarf veiðimaður að hafa skilað staðfestingu á skotprófi og má búast við að útgáfa leyfis taki allt að viku frá því að slík staðfesting berst. Því er mikilvægt að veiðimenn bíði ekki fram á síðustu stundu með að ljúka skotprófi hyggist þeir halda til veiða strax í upphafi veiðitímabils.

Þessu til viðbótar hefur stofnunin, vegna sérstakra aðstæðna í ár, einnig ákveðið að þeir sem ekki ná verklegu skotprófi og missa þannig veiðileyfi, eða þeir sem kjósa að skila inn veiðileyfi sínu með vísan til hins nýtilkomna skotprófs muni fá veiðileyfi sín endurgreidd að fullu hafi þeir fyrir 20. júlí tilkynnt að þeir skili inn leyfi sínu og óski endurgreiðslu.

Umhverfisstofnun telur að með framangreindum breytingum sé brugðist af sanngirni við því tímaálagi sem væntanlegir hreindýraveiðimenn finna nú fyrir en um leið náist markmiðið með skotprófunum, þ.e. að sannreyna færni veiðimanna til að skjóta stóra villibráð á réttan hátt og án óþarfa þjáninga fyrir dýrið.

Rétt er að ítreka að þrátt fyrir framangreindar breytingar er frestur til að ganga frá lokagreiðslu vegna úthlutaðs veiðileyfis óbreyttur. Greiðslu ber samkvæmt lögum að skila fyrir 1. júlí ár hvert en þar sem þann dag ber upp á sunnudag í ár er síðasti mögulegi greiðsludagur í ár mánudagurinn 2. júlí.

Með kveðju
Umhverfisstofnun
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
Tf-Óli
Posts: 119
Joined: 08 Mar 2012 21:26
Location: Borgarnes.

Re: Nýjustu fréttir af hreindýraprófi

Unread post by Tf-Óli »

Umhverfisstofnun virðist mistakast flest sem þeir leggja upp með.
Ég mæli með stjórnsýsluúttekt á þessari stofnun.
Kveðja - Ólafur Ágúst Stefánsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Nýjustu fréttir af hreindýraprófi

Unread post by Veiðimeistarinn »

Ólafur, mæl þú manna heilastur :D
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Nýjustu fréttir af hreindýraprófi

Unread post by TotiOla »

Rétt hjá ykkur.

En þetta stríðir mér svolítið. Þarf maður að gera þetta sjálfur?
Til að fá útgefið veiðileyfi þarf veiðimaður að hafa skilað staðfestingu á skotprófi og má búast við að útgáfa leyfis taki allt að viku frá því að slík staðfesting berst. Því er mikilvægt að veiðimenn bíði ekki fram á síðustu stundu með að ljúka skotprófi hyggist þeir halda til veiða strax í upphafi veiðitímabils.
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Nýjustu fréttir af hreindýraprófi

Unread post by Veiðimeistarinn »

Nei :D
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Nýjustu fréttir af hreindýraprófi

Unread post by TotiOla »

Nú, það er gott að vita :mrgreen: Ég var farinn að hafa áhyggjur af því að ég hefði gleymt að fá einhverja kvittun eða slíkt, sem skila ætti inn :P
Mbk.
Þórarinn Ólason
Post Reply